Morgunblaðið - 18.06.2020, Side 12

Morgunblaðið - 18.06.2020, Side 12
Þ að er mikil upplifun að koma í Vök Baths. Hönnun nátt- úrulauganna er heillandi en byggingin sjálf fellur inn í um- hverfið á áreynslulausan hátt (þegar keyrt er að staðnum). Á Íslandi ríkir mikil sundmenning og því ættu ferðamenn ekki að láta þessi náttúruböð framhjá sér fara. Þegar inn er komið tekur steinsteypt- ur heimur við sem er þó ekki eins og hell- ir heldur bjartur og fagur með afgreiðslu og veitingastað. Þegar inn í búningsklef- ana er komið opnast hlýlegur heimur þar sem mikið er lagt í útlit og þægindi. Sal- erni í búningsaðstöðunni eru grábrún á litinn ásamt vöskunum. Sturtuglerið er sanserað í brúngylltum tónum. Svo fal- leg er þessi litapalletta að fólki gæti auð- veldlega liðið eins og það væri konung- borið í þessum aðstæðum. Þegar út í böðin sjálf er komið tekur við notalegur heimur. Umhverfið er ein- stakt og útsýnið út á vatnið fallegt. Ef þú vilt hita þig vel upp geturðu valið heitasta pottinn en ef þú fílar köld böð geturðu vipp- að þér út í vatnið sjálft og tekið nokkur sundtök. Þegar þú ert búin/n að kæla líkamann vel í vatninu er gott að hita hann aftur í stóra pottinum og ef þorstinn gerir vart við sig þarftu ekki að óttast neitt því veitingasala er í jaðri pottsins. Svo er bara að slaka, anda og njóta þess að fá að upplifa. Hver þarf Benidorm þegar hann kemst í Vök Baths? Ein af undrum Austurlands eru Vök Baths sem opnuð voru í fyrra. Um er að ræða heitar náttúrulaugar við bakka Urriðavatns við Egilsstaði. Ef þú ert á ferð á þessu svæði verð- urðu að dýfa þér ofan í, anda djúpt og njóta þess að vera til. Marta María | mm@mbl.is Heillandi baðheimur Morgunblaðið/Marta María Kolbeinn Ari Jóhannesson naut lífsins í Vök Baths. 12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2020

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.