Morgunblaðið - 18.06.2020, Page 12
Þ
að er mikil upplifun að koma í
Vök Baths. Hönnun nátt-
úrulauganna er heillandi en
byggingin sjálf fellur inn í um-
hverfið á áreynslulausan hátt
(þegar keyrt er að staðnum). Á Íslandi
ríkir mikil sundmenning og því ættu
ferðamenn ekki að láta þessi náttúruböð
framhjá sér fara.
Þegar inn er komið tekur steinsteypt-
ur heimur við sem er þó ekki eins og hell-
ir heldur bjartur og fagur með afgreiðslu
og veitingastað. Þegar inn í búningsklef-
ana er komið opnast hlýlegur heimur þar
sem mikið er lagt í útlit og þægindi. Sal-
erni í búningsaðstöðunni eru grábrún á
litinn ásamt vöskunum. Sturtuglerið er
sanserað í brúngylltum tónum. Svo fal-
leg er þessi litapalletta að fólki gæti auð-
veldlega liðið eins og það væri konung-
borið í þessum aðstæðum.
Þegar út í böðin sjálf er komið tekur
við notalegur heimur. Umhverfið er ein-
stakt og útsýnið út á vatnið fallegt. Ef þú
vilt hita þig vel upp geturðu valið heitasta
pottinn en ef þú fílar köld böð geturðu vipp-
að þér út í vatnið sjálft og tekið nokkur
sundtök.
Þegar þú ert búin/n að kæla líkamann vel
í vatninu er gott að hita hann aftur í stóra
pottinum og ef þorstinn gerir vart við sig
þarftu ekki að óttast neitt því veitingasala
er í jaðri pottsins. Svo er bara að slaka,
anda og njóta þess að fá að upplifa. Hver
þarf Benidorm þegar hann kemst í Vök
Baths?
Ein af undrum Austurlands eru Vök Baths sem opnuð voru í fyrra. Um er að ræða heitar
náttúrulaugar við bakka Urriðavatns við Egilsstaði. Ef þú ert á ferð á þessu svæði verð-
urðu að dýfa þér ofan í, anda djúpt og njóta þess að vera til.
Marta María | mm@mbl.is
Heillandi
baðheimur
Morgunblaðið/Marta María
Kolbeinn Ari Jóhannesson naut lífsins í Vök Baths.
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2020