Morgunblaðið - 18.06.2020, Síða 4

Morgunblaðið - 18.06.2020, Síða 4
bestu hamborgararnir og fleira á Hamri, litlum veitingastað rétt utan við Breiðdalsvík. Pítsurnar á Aski á Egilsstöðum eru eldbakaðar og í miklu uppáhaldi hjá mér, en þar geta líka skapast miklar um- ræður um tónlist því þær heita all- ar eftir íslenskum dægurlögum.“ Hún mælir líka með Borgarfirði eystri og segir hann veröld út af fyrir sig. „Þar er náttúran ægifögur og orkan einstök. Ef ég væri að fara austur myndi ég gista á Blá- björgum á Borgarfirði, en þar er einnig frábær veitingastaður og spa-aðstaða með heitum pottum og gufu. Annar gististaður sem ég myndi mæla með á Austurlandi eru smáhýsi á Mjóeyri við Eskifjörð, en þar í kring eru frábærar gönguleið- ir og umhverfið dásamlegt.“ Hver eru plönin þín í sumar- fríinu? „Sjálf ætla ég austur í frínu til þess að heimsækja ættingja og vini. Það eina sem ég er búin að ákveða að gera þar er að láta loksins verða af því að ganga í Stórurð sem ligg- ur milli Héraðs og Borgarfjarðar. Stórurð er mynduð úr risavöxnum móbergs- og þursabergsbjörgum sem liggja inn á milli þörunga- blárra vatna, þannig að umhverfið er ævintýri líkast.“ M inn draumarúntur um Austurland myndi hljóma sirka svona: Væri ég að keyra suður fyrir landið myndi ég byrja á því að stoppa hjá vinum mínum Prins Póló og Berglindi á Havarí, Karlsstöðum í Berufirði. Þar myndi ég fá mér bulsu með öllu og vöfflu í eftirrétt. Best væri að hitta á tón- leikadag í hlöðunni, en það gerast töfrar sem allir ættu að upplifa að minnsta kosti einu sinni á lífsleið- inni. Þá væri næsti við- komustaður í mínum uppeldisbæ, Stöðv- arfirði. Þar myndi ég skoða Steina- safn Petru sem er það stærsta sinnar tegundar í Evrópu. Engin einustu orð lýsa þeirri upplifun og saga safnsins ein og sér er einstök, saga stórbrotinnar konu sem helgaði líf sitt steinasöfnun. Fyrir listsinnaða mæli ég með því að skoða Sköpunarmiðstöðina, en kraftmiklir einstaklingar hafa breytt gamla frystihúsinu þar sem ég plokkaði orma úr ýsu í gamla daga í glæsilegar vinnustofur fyrir hvers konar listsköpun og eitt fullkomasta tónlistarstúdíó lands- ins,“ segir Kristborg Bóel. Fyrir þá sem ekki hafa heimsótt Atlavík í Hallormsstaðarskógi er það nokkuð sem ætti að vera á list- anum. „Sá rótgróni útilegustaður inni í skógi við Lagarfljótið hefur alltaf sinn sjarma. Fátt jafnast á við að rölta um víkina á björtum sumar- kvöldum, það er rómantík. Ef ferðalangar eru í göngustuði þá fær Stuðlagil í Jökuldal hjartað til að slá örar, en sú náttúruperla er ein sú fegursta hérlendis. Seyðisfjörður er svo staður sem allir verða að heimsækja, en mér líður alltaf eins og ég sé erlendis þegar ég kem þangað. Þar er önn- ur menning, sköpun og list flæðir um allt, þar er fullt af litlum fal- legum verslunum og veitingastöð- um og bærinn svo fallegur. Minn eftirlætisveitingastaður á landinu er einmitt þar; Norðaustur, sushi og bar, besta sushi norðan Alpa- fjalla!“ Aðrir veitingastaðir sem Krist- borg Bóel mælir með á svæðinu eru: Beituskúrinn í Neskaupstað. „Eins og nafnið gefur til kynna er hann starfræktur í gömlum beitu- skúr þar sem sjórinn gutlar værð- arlega undir fótum þér. Þá eru Kristborg Bóel Steindórsdóttir dag- skrárgerðarmaður þekkir Austfirði vel eftir að hafa búið á svæð- inu í um áratug en hún býr nú í Hafnarfirði. Marta María | mm@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Morgunblaðið/Eggert Norræna siglir til Seyðisfjarðar og frá allt árið um kring. Fegurð Berufjarðar er einstök. Besta bulsa með öllu og vaffla í eftirrétt Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Kristborg Bóel Steindórsdóttir dagskrárgerðar- maður ætlar á Austfirði í sumarleyfinu. Hin litríka gata, sem liggur frá Bláu kirkjunni að miðbænum, er orð- in eitt helsta kennileiti Seyðisfjarðar. Havarí er í miklu uppáhaldi hjá Kristborgu Bóel. 4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2020 22.900KR ÁMANN REYKJAVIK SUMMIT ÞYRLUFLUG FREKARIUPPLÝSINGAR OGBÓKANIRÁ INFO@NORDURFLUG.IS Sumar tilbo

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.