Morgunblaðið - 18.06.2020, Síða 10
Þ
að er ekki hægt að
komast mikið austar á
Íslandi en í Mjóafjörð,
og ef kortaforritin
blekkja ekki þá er eng-
inn vegur á landinu sem liggur
eins langt til austurs og Mjóa-
fjarðarvegur sem nær alla leið út
að vitanum á Dalatanga.
Svæðið er strjálbýlt og reiknast
Margréti Sigfúsdóttur til að aðeins
tíu manns búi í Mjóafirði allt árið
um kring, þó að nokkuð fleiri séu
með skráða búsetu þar. Er það
enda svo að á veturna gerist það
iðulega að vegurinn yfir Mjóa-
fjarðarheiði verður ófær og þá
verða íbúar fjarðarins að reiða sig
á áætlunarbátinn Björgvin sem
siglir til Norðfjarðar tvisvar í viku,
frá 1. október til 31. maí.
En það er líka einn af kostum
svæðisins hvað Mjóifjörður
er afskekktur, því þar
eru ekki margir á ferli
og hægt að vera
einn með fallegri
náttúrunni. Mar-
grét er gestgjafi
hjá Ferðaþjónust-
unni í Sólbrekku
og er um þessar
mundir að taka við
rekstrinum af móð-
ur sinni sem býr á
bænum Brekku. „Þetta
er verkefni sem vatt smám
saman upp á sig. Í byrjun 9. ára-
tugarins vildi það oft gerast á
sumrin að ferðalangar komu við á
bænum til að athuga hvort ekki
mætti kaupa þar eitthvað matar-
kyns enda langt í næstu verslun.
Varð því úr að móðir mín Jóhanna
breytti einu herbergi á bænum í
nokkurs konar sjoppu. Bráðum
var aðsóknin samt orðin meiri en
foreldrar mínir kærðu sig um og
stundum myndaðist biðröð við
íbúðarhúsið, en þá áskotnaðist
okkur aðstaða í Sólbrekku stein-
snar frá Brekku, og færðum við
þjónustuna við ferðamenn þang-
að,“ útskýrir Margrét.
Í dag býður Sólbrekka upp á
gistingu og heimagert bakkelsi.
„Allt sem við seljum bökum við og
útbúum sjálf, ef undan er skilið
brauðið í samlokurnar. Getur fólk
staldrað hér við og fengið sér sæti,
gætt sér á kleinu eða vöfflu og
skolað niður með kaffibolla,“ segir
Margrét. „Gistingin er tvískipt:
annars vegar er hægt að dvelja í
Sólbrekku þar sem við höfum fjög-
ur þriggja manna herbergi og eitt
sex manna fjölskylduherbergi sem
deila sameiginlegri stofu, eldhúsi
og baðherbergjum. Til viðbótar
þessu höfum við tvö sumarhús,
Brekkubrún 1 og 2, sem rúma allt
að fjóra til fimm gesti og geta þeir
sem gista hjá okkur fengið afnot
af heitum potti. Að auki stendur
ferðalöngum tjaldstæði til boða og
loks starfrækjum við reiðhjóla-
leigu enda gaman að upplifa
Mjófafjörð á hjóli.“
Þrælatindur og Smjörvogur
Þó að Mjóifjörður sé ekki í al-
faraleið þá er svæðið vel þess virði
að skoða. Margrét segir að strax
og ekið er niður heiðina að fjarð-
arbotninum blasi við Klifbrekku-
fossar. „Um er að ræða einstak-
lega fallegt vatnsfall sem kemur í
stöllum niður fjallshlíðina og ligg-
ur slóði upp að fossunum. Ef ekið
er áfram út fjörðinn kemur fólk
fljótlega að innrásarprammanum
svokallaða, sem lagt var af ásetn-
ingi í fjarðarbotninum. Þetta er
fley frá bandaríska hernum sem
upphaflega var hannað til að færa
hermenn frá skipi upp á land en
heimamenn nýttu prammann á
síldarárunum til að flytja síldar-
úrgang yfir í Neskaupstað og var
hann þá dreginn af öðru skipi á
milli fjarða. Reyndist hann vera
óhentugur til þeirra nota og var
prammanum lagt uppi í fjöru eftir
aðeins fáeinar ferðir þar sem hann
situr enn og er farinn að láta á sjá
eftir allan þennan tíma,“ segir
Margrét. „Búið er að festa skilti á
prammann sem segir sögu hans,
enda ferðalangar mjög forvitnir
um þetta flak.“
Fallegar sprænur renna út í
fjörðinn á mörgum stöðum og má
t.d. sjá vel hlaðna fjárborg á leið-
inni út ströndina auk þess að mörg
nöfn eyðibýla eru merkt allt út að
vitanum á Dalatanga. „Það er
gaman að virða fyrir sér bæði nýja
vitann og þann gamla sem er frá
árinu 1895. Búið er að stika
gönguleiðir um svæðið og t.d. stik-
uð leið frá Dalatanga yfir á Skála-
nes þar sem rekin er ferðaþjón-
usta yst við Seyðisfjörð,“ segir
Margrét en í Sólbrekku má fá kort
sem sýnir gönguleiðirnar í og við
Mjóafjörð.
Mjóifjörður býr ekki aðeins að
mikilli náttúrufegurð heldur líka
áhugaverðri sögu og segir Mar-
grét ýmsar „smásögur“ tengjast
kennileitum á svæðinu. „Þannig er
t.d. fjall fyrir ofan Sólbrekku sem
kallað er Þrælatindur og segir
sagan að þrælar hafi flúið upp á
tindinn einhvern tímann í fyrnd-
inni en ekki komist lengra áður en
þeir voru handsamaðir. Á leiðinni
út á Dalatanga má síðan finna
svæði sem kallað er Smjörvogur
og var notað sem n.k. náttúrulegt
fangelsi fyrr á tímum. Voru fangar
látnir síga niður á syllu og geymd-
ir þar en sagan segir að vinnukona
nokkur hafi haft svo miklar
áhyggjur af velferð eins fangans
að hún stundaði það að koma
smjörklípu niður til hans til að
halda í honum lífinu.“
Friður, ró og náttúrufegurð
austast á Austurlandi
Margrét Sigfúsdóttir
og fjölskylda taka á
móti gestum í Sól-
brekku með heima-
bökuðu góðgæti.
Ásgeir Ingvarsson | ai@mbl.is
Ljósmynd/Guðjón Halldórsson
Margrét
Sigfúsdóttir
Heljarfoss á góðviðrisdegi. Svæðið er svo
afskekkt að varla er hægt að finna mynd af
þessum fallega fossi á netinu.
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2020
Komdu og kynntu þér
sögu hreindýranna á
Austurlandi frá upphafi til
okkar daga.
Fjölbreyttar sýningar
og afþreying fyrir alla
aldurshópa
Opið alla daga í sumar,
10:00-18:00
Hefur þú tekið sjálfu
með hreindýri?
Laufskógum 1, Egilsstöðum // www.minjasafn.is