Morgunblaðið - 18.06.2020, Síða 14

Morgunblaðið - 18.06.2020, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2020 E in forvitnilegasta sögusýning lands- ins er töluvert úr alfaraleið, enda sýning helguð óbyggðum Íslands með allri sinni fegurð og merkilegu sögu. „Við erum ekki beinlínis við þjóðveg 1 og þeir gestir sem koma til okkar eru ekki að finna okkur fyrir tilviljun á leið sinni um landið. En fyrir vikið erum við líka að fá réttu gestina fyrir okkur: fólk sem er að leita að sannri upplifun og gefur sér tíma til að upplifa og njóta. Oftar en ekki dvelja gestir hjá okkur í tvær nætur eða lengur og nota tímann til að upplifa þá af- þreyingu sem við höfum upp á að bjóða en líka slaka á og t.d. heim- sækja heilsulindina okkar sem við byggðum úr rekaviði og endurnýttu timbri frá eyðibýlum, með hlaðinni laug og sánu smíðaðri úr íslenskri ösp,“ segir Steingrímur Karlsson. Óbyggðir í bakgarðinum Steingrímur er framkvæmdastjóri Óbyggðaseturs sem hann stofnaði með konu sinni Örnu Björg Bjarnadóttur. Til að komast að setrinu þarf að aka í suðvesturátt frá Egils- stöðum, meðfram Lagarfljóti og langt inn í landið. „Staðsetningin er óneitanlega sérstök en Óbyggðasetrið er innsta byggða ból í þess- um afdal sem Norðurdalur í Fljótsdal er og það er enginn erill hér í gegn – þetta er stað- urinn þar sem vegurinn endar. En bakgarð- urinn okkar er líka stærstu óbyggðir Norður- Evrópu.“ Fimm ár eru síðan Óbyggðasetrið opnaði og segir Steingrímur að þeim hjónum hafi þótt vanta stað sem gerði óbyggðum Íslands góð skil. Nóg sé af byggðasöfnum, sjóminjasöfnum og víkingasöfnum en engin önnur stofnun helguð óbyggðunum. „Óbyggðir Íslands hafa að geyma margar ævintýralegar sögur og alls kyns viðfangsefni sem við gerum skil í vand- aðri og sjónrænni sýningu,“ segir Steingrímur en fjallað hefur verið um starfsemi setursins í virtum erlendum dagblöðum og tímaritum á borð við Vogue, Marie Claire, Cosmopolitan og Guardian. Sýning Óbyggðaseturs þykir sérlega vel heppnuð og ber þess kannski merki að Stein- grímur á að baki langan feril sem kvikmynda- gerðarmaður. Framsetningin er litrík og lif- andi og fá allir gestir hljóðleiðsögn sem fylgir þeim í gegnum hluta sýningarinnar með fjölda leikradda og tónlist auk þess sem leiðsögu- menn setursins fara með gesti um safnasvæð- ið. Hefur verið hugað að hverju minnsta smá- atriði og þannig er t.d. hljóðleiðsagnartækið handsmíðað svo það minnir á forngrip. Sýning- arupplifunin er gagnvirk og kallar t.d. á að gestir snúi gamalli sveif eða gægist inn um lítið gat. En sýningin er aðeins hluti af stærri upp- lifun og býður setrið m.a. upp á mjög óvenju- lega gistimöguleika, heimilislegar íslenskar veitingar og ferðir á hestum, hjólum og tveim- ur jafnfljótum um nærumhverfið og langt inn á hálendið. Á leið sinni til safnsins aka gestir yfir gamla trébrú sem Steingrímur segir að marki upphafið að ferðalagi til fortíðar, en til að undirstrika sérstöðuna blaktir ekki þjóðfáninn við hún fyrir framan setrið heldur gamaldags föðurland. „Þeir sem dvelja hjá okkur yfir nótt geta m.a. valið hreppstjórasvítuna, notaleg tveggja manna herbergi eða varið nóttinni á ekta bað- stofulofti,“ segir Steingrímur en Óbyggðasetr- ið er sennilega eini staðurinn á landinu þar sem sofa má í alvörulokrekkju. „Við rekum ekki fimm stjörnu hótel, en bjóðum þess í stað upp á fimm stjörnu upplifun.“ Óbyggðir Austurlands skarta mörgum feg- urstu náttúruperlum landsins og mælir Steín- grímur m.a. með að ferðalangar skoði Fljóts- dalsheiði og Stuðlagil, Laugarfell og Hafra- hvammagljúfur. „Svo mætti halda áfram upp fyrir Kárahnjúkastíflu, enda kannski á Hengi- fossi og Hallormsstaðaskógi. Þar væri kominn mjög flottur dagur,“ segir Steingrímur en áhugasömum stendur til boða að fara í lengri göngu- og hestaferðir sem spanna frá dagparti upp í nokkurra daga upplifun. Sérstaða svæðisins er þó ekki síst fólgin í því að fá að vera nánast einn í heiminum. „Það er hluti af gæðunum hvað friðsældin er mikil og náttúran stór. Á mörgum gönguleiðum eru meiri líkur á að rekast á villt hreindýr eða tófu en á annað fólk. Hér þarf ekki að klifra yfir girðingar eða opna hlið heldur er fólk að kom- ast í tæri við alveg ósnortna náttúru. Þetta er eitthvað sem við sjáum að snertir fólk og að- stæður sem fæstir hafa upplifað áður.“ Þá er margt annað til að skoða og gera á ferðalagi um Austurland og mælir Stein- grímur með að ferðamenn þræði Austfirðina til að upplifa mannlífið og náttúruna sem þar er. „Hér hefur átt sér stað mikil breyting á tæpum áratug og stóraukið framboð á þjón- ustu við ferðamenn. Það sem mér finnst helst einkenna ferðaþjónustu á svæðinu er að hún eru rekin af fjölskyldum og þjónustan því mjög persónuleg og þeir sem koma í heimsókn eru ekki túristar heldur gestir.“ „Ekki fimm stjörnu hótel, en fimm stjörnu upplifun“ Þeir sem heimsækja Steingrím Karlsson og fjölskyldu á Óbyggðasetrinu geta m.a. feng- ið að sofa í ekta lokrekkju að hætti forfeðra okkar. Í göngu um óbyggðir Austurlands eru meiri líkur á að rekast á villt hreindýr en að rekast á aðra ferðamenn. Ásgeir Ingvarsson | ai@mbl.is Sýning Óbyggðaseturs þykir mjög vel heppnuð og skemmtileg.Ferðast má um svæðið með ýmsum hætti. Það snertir marga hvað náttúran er stór og friðsældin mikil. Heilsulindin skartar hlaðinni laug. Gestum er boðið upp á heimilislegan og ljúffengan mat og m.a. hægt að verja nóttinni á baðstofulofti, hafi fólk áhuga á því. Ætli færi vel um lesendur í lokrekkju? Steingrímur Karlsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.