Morgunblaðið - 02.07.2020, Side 2
Grillhanskar
Þetta eru mögulega flottustu grillhanskar
sem sést hafa. Sérhannaðir af sérfræð-
ingunum hjá Rösle til að geta vaðið eld
og brennistein. Bókstaflega. Ef þú ert í
einhverjum alvöru tilfæringum við grillið
borgar sig að vera vel hanskaður.
Kokka. 4.950 kr.Þ
að er kominn júlí og grillsumarið
mikla er varla hálfnað. Heima hjá
mér er grillað sem aldrei fyrr og ég á
í mjög merkilegu sambandi við grill-
ið í garðinum mínum sem mér finnst
stórkostlegt. Það er með sérstökum grindum
þannig að eldtungurnar komast ekki upp. Fyrir
vikið hefur talsvert dregið úr brunaslysum og öll
eldamennska er mun friðsælli. Maturinn þarf
nefnilega frið á grillinu og þegar eldurinn er ekki
að þvælast fyrir þá get ég óáreitt grillað allt milli
himins og jarðar. Í uppáhaldi þessa dagana eru
grænmeti og ávextir. Ég er reyndar líka búin að
vera dugleg að grilla fisk og hef ég þá aðallega
verið að grilla skötusel og villtan lax. Grænmeti
finnst mér dásamlegt og grillaðir eftirréttir eru
sælgæti. Við erum einmitt með gott úrval af þeim í
þessu blaði og forsíðumyndin er með því fallegra
sem ég hef séð enda fátt girnilegra en grillað
pönnukökufjall.
Annars varð uppi fótur og fit á heimili mínu um
daginn. Eiginmaður minn og dóttir tilkynntu mér
að þau væru búin að fá nóg af pylsum þetta sum-
arið. Þeim var fúlasta alvara og nú er sumsé búið
að banna pylsur heima mér til mikillar skelfingar.
Ég veit nefnilega fátt betra en góða grillaða pylsu
og ég hef verið að gera nokkuð merkilegar til-
raunir með meðlæti í sumar. Tilraunir sem munu
væntanlega ekki líta dagsins ljós þar sem mér og
mínum pylsum hefur verið úthýst. Eða svo gott
sem. Ég ætla samt bara að vera þolinmóð enda
veit ég sem víst er að þau munu brotna. Í kringum
miðjan júlí munu þau bæði mjálma mjóróma tóni á
pylsur og þá verð ég tilbúin. En þar til þá held ég
bara áfram að grilla allt hitt... og hef gaman af!
Pylsubannið
Þóra Kolbrá
Sigurðardóttir
umsjónarmaður
Matarvefs
mbl.is
Verð frá499kr/stk
• Black Garlic
• Ítölsk parmesan
• Pipar
• Roasted Garlic
GÓMSÆTAR
STEIKARSÓSUR
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2020
Útgefandi Árvakur Umsjón Þóra Kobrá Sigurðardóttir Blaðamenn Þóra sigurðardóttir thora@mbl.is, Auglýsingar
Jón Kristinn Jónasson jonkr@mbl.is Prentun Landsprent efh. Blaðið er unnið í samvinnu við Hagkaup.
Forsíðumyndina tók
Kristinn Magnússon
Hafðu steikina alltaf við stofuhita. Þannig verður steikingin jafn-
ari og umtalsvert betri.
Hitið grillið vel áður en þið byrjið að grilla. Stærstu mistökin sem
fólk gerir er að skella steikinni á um leið og kveikt er á grillinu. Án
þess að orðlengja það neitt frekar þá skorar sú tækni ekki hátt.
Ekki stinga gaffli í matinn. Við viljum halda safanum sem lengst
inni, hvort sem um ræðir grænmeti eða kjöt. Notaðu heldur töng.
Ekki kremja kjötið. Margir hafa tilhneigingu til að ýta spaðanum
niður á steikina og flýta þannig fyrir eldun. Það virkar alls ekki og
gerir matinn í raun verri þar sem þrýstingurinn ýtir safanum út.
Hvílið kjötið til að safinn haldist inni. Við eldun herpist kjötið
saman í hitanum. Gefið kjötinu tíma til að slaka á eftir eldunina. Ef
steikin er skorin strax og hún er tekin af grillinu lekur allur safinn út.
Fylgstu með því hvað er að gerast á grillinu. Það er nákvæmis-
íþrótt að grilla og krefst einbeitningar. Fylgstu vel með matnum því
ekkert er meira svekkjandi en illa grilluð steik.
Ef þú ert ekki örugg/ur skaltu nota kjöthitamæli. Með slíka græju
eru þér allir vegir færir og steikin verður fullkomin.
Vertu með góð áhöld. Það skiptir ótrúlega miklu máli. Góð töng
er gulli betri og spaði er líka frábær. Finndu það sem þér finnst
þægilegast að nota og haltu þig við það.
Undirbúningurinn skiptir öllu. Sjálf eldamennskan tekur ekki
langan tíma en ef undirbúningurinn er góður er þetta svo auðvelt.
Þetta kalla kokkar „að preppa“ í alvörueldhúsi þannig að lykilatriði
er að vera vel preppaður.
9 gullvægargrillreglur
Ferðagrill
Ef þú ætlar á annað borð að fá þér ferðagasgrill í útileg-
una er allt eins hægt að vanda til verka og fá sér lúxus-
ferðagasgrillið frá Char Broil. Það er með TRU-Infrared-
hitatækni og innbyggðri eldtunguvörn sem gerir grill-
mennskuna afar þægilega. Heimkaup. 29.025 kr.
Leðursvunta
Boos Blocks er vörumerki sem
þarf vart að kynna fyrir neinum
þungavigtarmanni í eldhúsinu.
Boos stendur fyrir gæði í gegn
og þessi leðursvunta er svo flott
að margur hefur tekið andköf af
aðdáun. Kokka. 19.900 kr.
Grillpensill
Hér erum við með gríðarlega
sniðuga uppfinningu, en sósu-
skeiðin er ofan á penslinum,
sem gerir flest sem viðkemur
grillmennsku umtalsvert auð-
veldara. Ótrúlega svöl græja
sem kemur að góðum notum.
Olís.is. 2.490 kr.
Bestu grill-
græjurnar
Grillspjót.
Hver segir að grillspjót
þurfi að vera bein? Þessi
sjúklega snjöllu grillspjót
ættu að vera til á hverju
heimili enda fullkomlega
rökrétt að hafa þau í laginu
eins og diskinn.
Kokka. 4 stk. 2.980 kr.
Smjörpottur
Fullkominn til að pensla hverju sem er á steikina, hvort heldur
sem er grillsósu, smjöri eða einhverju öðru. Frá Lodge þannig
að gæðin eru gulltryggð. Kokka. 7.900 kr.
Ferðagrilltaska
Heyrst hefur af fólki sem féll í stafi
við að sjá þessa ferðagrilltösku.
Hvað er svalara en að ferðast um
með ferðagasgrill í sérhannaðri
tösku? Heimkaup. 12.895 kr.