Morgunblaðið - 02.07.2020, Side 4

Morgunblaðið - 02.07.2020, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2020 Tilbúið meðlæti Beint á grillið Grillaðar ferskjur með mascarpone og brómberja- kremi 6 ferskjur 3 msk. flórsykur ¼ stk. sítróna, safi Suðusúkkulaði með kara- mellu og sjávarsalti  Ferskjur skornar í kringum steininn en ef þær eru nógu mjúkar er hægt að skera þær í helminga og ná stein- inum út úr þeim, þá er þeim velt upp úr flórsykri og smá sítrónusafi kreistur yfir. Grill- aðar á beinum hita til að byrja með og fá góðar grillr- endur í ferskjurnar, þá eru þær færðar upp á efri grindina eða til hliðar á óbeinan hita í um það bil 5 mínútur. Raðað fallega á disk og kreminu sprautað á og súkkulaðið rifið yfir. Mascarpone og brómberjakrem 250 g mascarpone ostur 1 dl sýrður rjómi 2½ dl þeyttur rjómi 4 msk. flórsykur 1 dl brómber ½ tsk. vanilludropar Piña colada-eftirréttur 1 stk. ananas 1 dl dökkt room 3 msk. flórsykur karamellusósa að eigin vali Ís með kókos og mangó  Ananasinn er flysjaður og skorinn í 1,5 cm þykkar sneiðar. Þá er kjarninn skorinn úr sneiðunum. Hitað er upp á romminu og syk- urinn leystur upp í því. Ananasinn er látinn liggja í romminu í að minnsta kosti tvo tíma en mjög gott að láta hann liggja yfir nótt. Síðan er hann grillaður í 2-3 mínútur á hvorri hlið, eða þangað til hann er orðinn mjúkur. Karamellusósan er hituð upp varlega í potti.  Síðast er ísinn settur í kúlum ofan á ananasinn og volg karamellusósan ofan á. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Grillaður pönnukökuturn 1 kassi pönnukökur 1 krukka Nutella 1 pakki jarðarber 2 ástríðuávextir litlir sykurpúðar  Pönnukökurnar eru smurðar með Nutella og sykurpúðunum stráð yfir þær. Þá eru þær settar á grillið á frekar lágum hita þar til þær hitna vel í gegn.  Jarðarberin eru skorin smátt. Þá er pönnukökunum raðað saman, og jarðarberin sett á milli líka. Ofan á pönnukökuturninn fer síðan ástríðuávöxturinn. Eftirréttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.