Morgunblaðið - 21.08.2020, Page 45
og efni. Síðan stilli ég því öllu upp og sýni viðskiptavini og
út frá því gerast hlutirnir.“
Hvaða ráð gefur þú foreldrum fermingarbarna þegar
kemur að skreytingum?
„Ég myndi byrja tímanlega að huga að þema, ég mæli
með að kíkja á Pinterest, að skoða hönnunarblöð og
ákveða þema fyrir veisluna. Út frá þemanu myndi ég
ákveða liti, hvernig skreytingar eiga að vera og finna
hluti sem tengjast fermingarbarninu. Ef fólk er vanmátt-
ugt gagnvart þessu, þá má alltaf heyra í okkur,“ segir
hún og hlær.
Áttu uppáhaldsveislurétt að bjóða upp á í veislum eins
og fermingu?
„Ég er mikill aðdáandi Lindu Ben og hef bakað og eld-
að mikið frá henni. Það er allt gott sem kemur frá henni
að mínu mati. Þegar ég held afmæli eða veislur þá er rétt-
urinn hennar – pepperóní-brauðréttur; uppskrift frá
mömmu í miklu uppáhaldi hjá okkur.
Auðvelt að búa til skreytingar
Svava er sérfræðingur í að búa til fallega hluti úr nánast
öllu. Sem dæmi gerir hún rósir og fleira úr viskastykkjum í
gluggum KOKKU svo dæmi séu tekin.
„Blómin sem við gerðum fyrir KOKKU eru gerð úr
viskastykki. Það er auðvelt að gera þau. Það eina sem þarf
er gaffall og viskastykki. Þú setur viskastykkið á borðið hjá
þér, slettir úr því og stingur gafflinum í miðjuna og snýrð
upp á, þangað til það er byrjað að myndast rós. Svo stingur
þú endanum inn í og þá helst hún eins og hún á að vera. Það
þarf ekki endilega að nota viskastykki, það er líka hægt að
nota efnisbúta eða tauservéttur.“
Hvað getum við notað heiman frá sem fáum myndi detta í
hug sem skraut?
„Það er margt hægt að nota heiman frá, eins og gamlar
myndir af fermingarbarninu, blómavasa, kertastjaka,
kampavínsglös ef sett er blóm ofan í þau. Brjóta saman
gamlar bækur og tímarit. Margir eiga fallegar diskamottur.
Hægt er að setja þær hlið við hlið í miðjuna á borðinu.
Pottaplöntur eru líka flottar í skreytingar. Einnig má
nota dót, hluti sem fermingarbarnið á og fleira.“
Aukavinnan var farin að taka yfir aðalvinnuna
Svava segir söguna á bak við fyrirtækið hennar vera
þannig að hún hafði lengi unnið í búðarbransanum við hin
ýmsu störf en tók reglulega aukaverkefni við útstillingar
fyrir hinar ýmsu verslanir.
„Þegar aukavinnan var orðin meiri en aðalvinnan mín þá
vissi ég að það væri mikil eftirspurn á markaðinum. Ég
ákvað að stíga svo skrefið. Árið 2019 var það ár sem ég ætl-
aði að láta þennan draum rætast að stofna mitt eigið skreyt-
inga- og útstillingafyrirtæki. Ég var að vinna hjá H&M í út-
stillingadeildinni, þegar ég ákvað að taka stökkið, sagði upp
vinnunni og stofnaði Listræna ráðgjöf. Ég var ekki búin að
vinna nema í eina viku hjá sjálfri mér í draumastarfinu þeg-
ar ég komst að því að ég var ólétt að mínu öðru barni. Eins
og allir segja þá er ekki hægt að plana þessar barneignir.
Þetta var smá áfall, en mikil gleði hér á bæ og núna er
Magnús Ingi orðinn yngsti meðlimurinn í LR - teyminu.
Einstaklingar jafnt sem fyrirtæki geta ráðið mig og mitt
teymi til að skreyta fyrir hvaða tilefni sem er.“
Fermingarborðsskreyt-
ingar að hætti Svövu.
Svava hefur skreytt fyrir margskonar veislur og er
dugleg að skreyta fyrir aðra. Þegar kemur að hennar eig-
in heimili þá er sagan eilítið önnur.
„Það er svolítð fyndið, þar sem ég vinn við skreytingar
þá er ég ekki voða dugleg að skreyta heima. Eins og fyrir
jólin, þá er svo bilað að gera hjá mér að gera bæði skreyt-
ingar og gluggaútstillingar fyrir verslanir að ég set varla
upp jólatré.“
Hugmyndaborð eru góð byrjun
Notar þú hugmyndaborð áður en þú skreytir í
veislum?
„Já, ég geri það fyrir öll verkefnin sem ég geri. Þá
ákveð ég þema fyrir verkefnið, vinn hugmyndavinnu, finn
myndir sem mér finnst passa við þemað. Finn liti, form
Hægt er að setja ljósmynd
af fermingarbarni og blóm
inn í bókaskreytingar.
FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2020 MORGUNBLAÐIÐ 45
uppskrift frá mömmu
1 bréf pepperóní
2-3 beikonsneiðar
½ blaðlaukur
1 hvítlauksrif
10 sveppir
16 brauðsneiðar
10 sólþurrkaðir tómatar
600 ml rjómi frá Örnu
1 stk. kryddostur frá Örnu mjólkurvörum með beik-
oni og papriku
1 stk. kryddostur frá Örnu mjólkurvörum með hvít-
lauk eða svörtum pipar
Rifinn ostur frá Örnu mjólkurvörum
Steikið beikonið þar til það er stökkt og gott, takið
af pönnunni og skerið það í litla bita.
Steikið blaðlauk og sveppi saman á pönnu, bætið
pepperóníinu og hvítlauk á pönnuna og steikið létt.
Skerið brauðið í teninga og raðið þeim í tvö eldföst
mót, hellið blöndunni af pönnunni yfir brauðið. Sker-
ið sólþurrkaða tómata og bætið út á ásamt ólífum og
beikoninu.
Skerið kryddostana niður í bita og setjið í pott
ásamt rjómanum, hitið þar til allt hefur bráðnað sam-
an. Hellið rjómanum yfir blönduna í eldföstu mót-
unum og dreifið svo rifna ostinum yfir.
Hér er hægt að geyma réttina yfir nótt, pakkið
þeim vel inn í plastfilmu og geymið inni í ísskáp.
Kveikið á ofninum, stillið á 180ºC, bakið inni í ofni í
u.þ.b. 20 mín. eða þar til osturinn fer að verða gullin-
brúnn. Fallegt að setja smá svartan pipar yfir þegar
rétturinn kemur úr ofninum, berið strax fram.
Pepperóní-brauðréttur
KRINGLAN OG SMÁRALIND