Morgunblaðið - 29.08.2020, Síða 4

Morgunblaðið - 29.08.2020, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2020 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is F iskveiðiárið hófst með sterkri eftirspurn,“ segir Friðleifur Friðleifsson, deildarstjóri sölu frystra afurða hjá Iceland Sea- food. Vísar hann til hagstæðrar verðþróunar og aukinnar sölu sem átti sér stað á tímabilinu sept- ember til desember í fyrra. „Það var sterk eftirspurn á mörkuðum þá og ég myndi segja að lok [almanaks]ársins hafi verið mjög góð fyrir íslenskan sjávarútveg. Svo hefst ákveðinn darraðardans í kringum þessar veirusýkingar í hinum og þessum löndum sem hef- ur haft gífurleg áhrif á allt viðskiptaumhverfi okkar eftir ára- mót. Það má kannski segja að við höfum verið í svolitlum eltingaleik hvað varðar hvar veiran er að valda lokunum á veitingastöðum, í hvaða löndum og þar fram eftir götunum.“ Markaðsstarfið breytt Stór hluti af íslenskum fiski hefur í gegnum tíðina verið seldur inn á veitingahúsamarkaði. Það hefur því kallað á breytt vinnubrögð þeg- ar rekstur veitingageirans var sett- ur í uppnám, útskýrir Friðleifur. „Besta verðið í þessum viðskiptum fæst inni á þessum veitingahúsa- markaði. Þar hafa Íslendingar staðsett sig undanfarin ár. Þar eru líka gæðakröfurnar mestar og við erum að framleiða vöru með mjög mikil gæði. Þess vegna liggur lung- inn af framleiðslu okkar Íslendinga inn á veitingahúsin í Evrópu. Og þú skiptir ekki svo glatt út frá hon- um og inn á smásölumarkaðinn. Veitingahús eru afþreying, þar hafa menn verið að loka, draga saman seglin og stjórnvöld að loka veitingahúsum. Sum veitingahús hafa getað tekið við færri við- skiptavinum vegna tveggja metra reglunnar og annað í þeim dúr. Þannig að þessi veira er að valda miklum breytingum á markaðs- starfinu í heild sinni.“ Um árabil hafa Íslendingar átt sterka þorskmarkaði í Suður- Evrópu sem eru fyrst og fremst veitingahúsamarkaður, að sögn Friðleifs. Hann segir Tyrkland einnig hafa verið mikilvægan markað, en þar endar talsvert magn af íslenskum fiski á hlað- borðum hótela. „Nú eru náttúrlega engir ferðamenn, hótel lokuð og spurning hvort hlaðborð heyri sög- unni til almennt séð sem neyslu- mynstur. Þetta eru allt hlutir sem við erum að vinna með dag frá degi og reyna að finna lausnir á fjöl- breyttum áskorunum.“ Ágætt í Bretlandi Minni eftirspurn innan veitinga- húsageirans, lokanir og takmark- anir sem settar eru á rekstur veit- ingahúsa víða um heim auk síbreytilegs rekstrarumhverfis hef- ur haft töluverð áhrif á verðmynd- un á mörkuðum. „Það hefur verið mjög óstöðugt verð á okkar helstu tegundum og það hefur verið að sveiflast mikið milli markaða og milli mánaða eftir því til hvaða að- gerða yfirvöld eru að grípa, hvort það eru að koma upp hópsmit, loka borgum, svæðum og svo framvegis. Þetta er allt önnur dýnamík í gangi í markaðsstarfi en við höfum kynnst áður,“ segir Friðleifur Hann bendir á að salan sé heldur takmörkuð í dýrustu afurðunum enda er eftirspurnina hvað þær varðar helst að finna hjá veitinga- húsunum. Þá eru það ekki einungis lokanir sem valda samdrætti í eft- irspurn. „Fólk er líka bara að spara við sig. Það eru margir á hlutabótaleið út um alla Evrópu og fólk er að hætta við að ferðast. Þótt við séum að fara á veit- ingastað og gera vel við okkur við Íslendingar í mat og drykk í Reykjavík og um landið, þá eru kannski ekki allar þjóðir alveg þar.“ Spurður hvernig hafi verið brugðist við þessum aðstæðum svarar Friðleifur: „Í samstarfi við okkar viðskiptavini höfum við reynt að leysa þetta og halda vöru- flæðinu gangandi. Það er jafn mik- ilvægt fyrir þá eins og okkur að hafa þessar vörur, fyrir okkur að geta sinnt framleiðendum til að halda veiðum og vinnslum gang- andi. Svo höfum við leitað leiða til þess að finna þessum afurðum far- veg og verið að dreifa kannski á fleiri útgönguleiðir í markaðnum. Selja meira inn í smásöluna, selja inn á stór eldhús ef þau opnast. Það er verið að horfa til allra mögulegra söluleiða sem færar eru.“ Staðan er hins vegar ekki eins á öllum vígstöðvum og er staðan ágæt á breska markaðnum. „Við finnum það að þar er mjög sterk hefð fyrir fiskneyslu og flest veit- ingahúsanna eru opin. Mikið af þjóðarréttinum fisk og frönskum er selt viðskiptavinum sem neyta hans heima hjá sér. Þannig að fólk hefur verið að kaupa þann rétt. Markaðurinn í Bretlandi er eig- inlega skástur af því sem við erum að sjá núna,“ útskýrir Friðleifur. „Sumt gengur vel, það má ekki gleyma því,“ bætir hann við. Viðkvæm staða Fátt bendir til þess að kórónu- veirufaraldurinn hverfi á næstu vikum og mánuðum og því spurn- ing hvort líklegt sé að hann muni valda áframhaldandi óvissu á mörkuðum. „Já, ég myndi segja að þessi óvissa sé algjörlega viðvar- andi næstu misseri. Eins og við sjáum hjá okkur á Íslandi eru stjórnvöld að stíga inn og opna og loka, herða aðgerðir og slaka á að- gerðum eftir því hvernig smitfjöldi er að þróast hverju sinni. Í okkar litla landi er þetta tiltölulega ein- falt, en í þessum stóru löndum er verið að loka svæðum, borgum. Það getur vel farið svo að þar séu menn með sterka markaði, eins og til að mynda ýmsa strandstaði sem geta orðið fyrir lokunum. Það er ýmislegt sem bendir til þess að þetta verði viðvarandi „on-off“ dæmi næstu misseri. Staðan er mjög viðkvæm og breytist hratt,“ útskýrir Friðleifur. Hann telur óvissuna koma fram í hægari söluhraða og að það kunni að safnast upp birgðir sem ekki hefur gerst í langan tíma þar sem eftirspurn eftir sjávarfangi hefur verið gríðarleg undanfarin ár. Hinn þátturinn sem þarf að fylgj- ast með er verðþróunin sem mun að miklu leyti velta á því hvernig kaupmáttur á mörkuðunum fyrir íslenskar afurðir þróast. „Ég á heldur von á því að verð þrýstist niður á við en að það verði ein- hverjar hækkanir. Ég held að geirinn þurfi að lifa með þessu ástandi og aðlagast þessu ástandi. Við höfum verið að aðlaga okkur að þessu breytta neyslumynstri, aðlaga okkur að opnunum og lokunum á markaði og aðlaga okkur að verðsveiflunum. Það góða við iðnaðinn á Íslandi er að hann er nokkuð sveigjanlegur og menn eru nokkuð snöggir til og eru samstarfsfúsir. Við munum al- veg standa þetta af okkur en þetta er raunveruleikinn í dag.“ Friðleifur segir stöðuna kalla á að seljendur séu á tánum og að stöðugt sé verið að skoða alla möguleika. „Þá skiptir máli að vera með öfluga alþjóðlega starfsemi eins og við erum með hjá Iceland Seafood. Við erum með starfsemi í mörgum löndum og erum að fylgj- ast með stöðunni á fleiri stöðum í gegnum okkar dótturfélög. Þar fást allar upplýsingar um leið og hlutirnir gerast. Þannig erum við í lykilstöðu til að taka skjótar og góðar ákvarðanir byggðar á því sem er að gerast í viðkomandi landi. Það felast mikil verðmæti í því núna að vera á staðnum.“ Felast mikil verðmæti í því að vera á staðnum Það er ekki til sá at- vinnuvegur á landinu sem hefur komist hjá áhrifum kórónuveiru- faraldursins og hefur ástandið sett svip sinn á fiskveiðiárið sem nú er að líða undir lok. Margt bendir til þess að sú óvissa sem hefur ein- kennt fiskveiðiárið 19/ 20 muni einnig hafa veruleg áhrif á 20/21. Morgunblaðið/Eggert Friðleifur Friðleifsson segir óvissuna á mörkuðum ekki hverfa á næstunni miðað við hvernig mál standa nú. Mikilvægt sé að vera vel vakandi enda geta breytingar verið örar. Mikill kostur getur verið að vera með alþjóðlega starfsemi þegar miklar sveiflur eru á mörgum mörkuðum á sama tíma. Þetta gefur fyrirtækjum tækifæri til að skipta ört um áherslur og afla upplýsinga af mörkuðum jafn óðum og hlutirnir gerast. Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.