Bæjarins besta


Bæjarins besta - 02.03.1988, Qupperneq 1

Bæjarins besta - 02.03.1988, Qupperneq 1
I BÆ[ARINS BESIA MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 1988 - 5. ÁRGANGUR 9. Sjónvarpsbingó: ísfírðingur fékk Yolvo í beinni útsendigu Svanhildur Sörensen, símavörður á símstöðinni á ísafirði, datt heldur bet- ur í lukkupottinn á mánu- dagskvöldið. Þá vann hún hvorki meira né minna en eitt eintak af Volvo 740 GL í beinni útsendingu í sjónvarpsbingói Stöðvar 2 og Vogs. Þarna er um að ræða fyrsta sjónvarps- bingóvinninginn sem ís- firðingur fær, að því er best er vitað. Svanhildur var í Vest- mannaeyjum á mánudags- kvöldið og keypti bingó- spjald þar. En hvernig varð henni við? „Þetta var alveg meir- iháttar. Ég er ekki farin að ná þessu ennþá. Ég hugsa að ég nái þessu ekkert fyrr en ég fæ lyklana að þessum bíl.“ Aðspurð um hvort hún ætli að koma heim á nýja bílnum, sagði Svanhildur: „Ég fer nú og tek við hon- um en ég ætla ekki að eiga hann. Eg læt bara selja hann fyrir mig. Þetta er svona full dýr bíll fyrir mig.“ Svanhildur sagði að þetta væri í þriðja skiptið sem hún spilaði með. Á mánudaginn hefði hún keypt tvö spjöld en gefið annað þeirra. „En þetta er alveg með ólíkindum. Það var víst voðalega gaman að fylgjast með mér þegar ég var að fá tölurnar, hverja á fætur annarri, en ég trúi þessu varla enn.“ Dómarar að störfum. Taliö frá vinstri: Gylfi Knudsen lögfræðingur, Pétur Kr. Hafstein formaður dómsins, og Garðar Gíslason borgardómari. Frostamálið: Dómur kveðinn upp innan þriggja vikna Lesendum BB eru eflaust í fersku minni deilur þær sem risu í Súðavík um sölu meiri- hluta virkra hlutabréfa í Frosta h.f. til Togs h.f. síðastliðið vor. Spruttu upp harðar deilur vegna þessa. Málið fór síðan í bið þegar hreppsnefnd Súðavíkur- hrepps ákvað að leita allra ráða til að hnekkja sölu bréf- anna sem varð til þess að sal- an var kærð til sýslumanns- ins á ísafirði og þar með var málið orðið að dómsmáli. Nú fyrir skemmstu fór síð- an fram aðalflutningur í mál- inu fyrir aukadómþingi ísa- fjarðarsýslu. Tók hann tvo daga. Fyrri daginn fóru fram skýrslutökur fyrir luktum dyrum samkvæmt úrskurði sem var kveðinn upp um það að ósk lögmanna beggja að- ila. Seinni daginn fór síðan fram munnlegur flutningur. í dómnum sátu þrír dóm- arar. Formaður dómsins var Pétur Kr. Hafstein sýslu- maður, og meðdómendur voru Garðar Gíslason borg- ardómari og Gylfi Knudsen lögfræðingur. Fyrir hönd stefndu, þ.e. Frosta h.f. og Togs h.f., flutti Jónatan Sveinsson hæstaréttarlögmaður málið, en Viðar Már Matthíasson hæstaréttarlögmaður fyrir hönd stefnanda, þ.e. hrepps- nefndar Súðavíkurhrepps. Eftir að flutningi er lokið er málið dómtekið og dóm verður að kveða upp lögum samkvæmt innan þriggja vikna frá því að það er dóm- tekið. Dóms í málinu er því að vænta innan þriggja vikna.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.