Bæjarins besta


Bæjarins besta - 02.03.1988, Síða 6

Bæjarins besta - 02.03.1988, Síða 6
6 BÆJARINS BESTA I J I J BÆJARINS BESTA kemur út á miðvikudögum. Útgefandi: H-PRENT sf., Suðurtanga 2, 400 ísafjörður, 0 94-4560. Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson, Stórholti 7, 0 4277, og Halldór Sveinbjörnsson, Aðalstræti 20, 0 4101. Blaðamaður: Jakob Falur Garðarsson, 0 4570. Prentun: H-prent sf., pósthólf 201. Tekið á móti efni og auglýsingum í 0 4560 og 0 4570. ísafjörður: Sjóminjasafn í Turnhúsinu Opnað á sjómannadaginn Turnhúsið hefur tekið miklum stakkaskiptum undanfarin ár. Hefur verið unnið að endurbyggingu þess frá árinu 1984 á vegum Húsafriðunarnefndar ísa- fjarðarkaupstaðar og er sú vinna nú á lokastigi. Turnhúsið var byggt á ár- unum 1784-85 og þá sem pakkhús og saltgeymsla. Hlutverk þess í framtíðinni hefur verið ákveðið. Þar verður sjóminjadeild Byggðasafns Vestfjarða til húsa. Er nú verið að hefjast handa við að setja safnið upp. Verður það bæði inni í húsinu og eins á svæðinu í kringum það. Stefnt er að því að safnið verði opnað á sjómannadaginn, sem að þessu sinni er 5. júní. Jón Sigurpálsson safna- vörður ísafjarðarkaupstað- ar sagði í samtali við BB að hann ynni nú að því að setja safnið upp. Smíða- vinnu væri að mestu lokið. Húsið er fullfrágengið utanhúss en herslumuninn vantar á inni. Arnór Stígs- son hefur verið yfirsmiður í Turnhúsinu og hefur hann séð um verklega þátt verksins. Á annarri hæð turnhússins. Geysilega mikil vinna hefur verið lögð í að ganga sem best frá öllu. Bolungarvík: Bæjarbúum boðið uppá „mánudagshreinsun“ Á síðastliðnu ári tók Bolungar- víkurkaupstaður upp þjónustu við bæjarbúa sem nefnd hefur verið „mánudagshreinsun". Hvað er nú það? Kann einhver að spyrja. Olafur Kristjánsson bæjarstjóri upplýsti fávísan blaðamann BB um málið. Sagði hann að þarna væri umí það að ræða að bæjarbúar gætui hringt á bæjarskrifstofuna ef þeir væru með rusl sem þeir þyrftu að losna við og þá sæi bærinn um að sækja ruslið. Þessi þjónusta er aðeins veitt á mánudögum og hefur því feng- ið hið ágæta nafn „mánudags- hreinsun“. Ólafur sagði að þessi þjón- usta væri nokkuð nýtt af bæjar- búum og nú þegar væri þetta orðin umfangsmikil þjónusta. Pá sagði hann að hingað til hefði þessi þjónusta verið frí en nú hefði hann lagt það til í bæjarstjórn að byrjað verði á því að taka gjald fyrir. Ákveðið hefur verið að gjaldið verði kr. 400,- fyrir heimili en kr. 800,- fyrir fyrirtæki. ísfirðingar- nágrannar wr Nú gefst kjörið tækifæri til þess að heimsækja vini og kunningja á Akureyri. w- Þetta er líka hentugt fyrir þá göngumenn sem vilja keppa í Skógargöngunni á Egilstöðum. w Helgina 4. til 6. mars bjóðum við flugfarið á hálfvirði. <Æ rinc|fói<>c| noi<)iirl,mcl< Ferðaskrifstofa Yestfjarða UPPSAiIR Opið föstudagskvöld kl. 23-03 Stebbi í diskótekinu

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.