Bæjarins besta - 02.03.1988, Side 7
BÆJARINS BESTA
7
ísafjörður:
Óbrennanlega sorpið
brennur betur og betur
Hús Pólstækni fylltist af reyk
Lausn í sjónmáli segir bæjarstjóri
Aðfaranótt þriðjudags gaus
upp mikill eldur í „óbrennan-
lega“ sorpinu við Sundahöfn.
Undir morgunn var eldurinn
orðinn mikill og lagði upp af
honum mikinn reyk. Suðvest-
an gola var og lagði reykinn
því inn yfir bæinn. Húsin sem
standa næst haugunum sáust
varla fyrir reyk og fór svo að
hús Pólstækni allt að því fylltist
af reyk og við það fór sjálfvirkt
boðunarkerfi slökkviliðs í
gang. Óþægindi sem fylgja
reyk sem þessum eru þannig
að ekki var vinnandi í húsinu
fyrst um morguninn.
Þorbjörn Sveinsson slökkvi-
liðsstjóri sagði það með öllu
óviðunandi að hafa hauga á
þessum stað sem að öllu jöfnu
kæmu upp eldur í fjórum sinn-
um í viku. Matvælaiðnaður
væri þarna í grendinni og einn-
ig olíutankar. Sagði Þorbjörn
að slökkviliðið hefði verið á
haugunum nær óslitið alla
nóttina.
En stendur til að gera eitt-
hvað í málinu? Haraldur L.
Haraldsson sagði að nú væri
verið að hefjast handa við að
urða ruslið á haugunum. Jafn-
framt sagði Haraldur að sam-
nigaviðræður stæðu yfir við
Úlfar Önundarson um að taka
að sér það verkefni að sjá um
haugana. í þeim samningi er
gert ráð fyrir því að maður
verði á vakt á svæðinu allan
ársins hring.
Það vill oft loga glatt í hinu óbrennanlega sorpi.
ATVIlNnMA
Starfskraft vantar í veitingasal Hótels
ísafjarðar.
Þeir sem hafa áhuga, vinsamlegast
hafi samband við hótelstjóra.
nwiHHin iiiíWítoií; iííM
AUGL'
V '? -■
-
___________ HÖFUM HAFIÐ SÖLU Á HINUM
VICIBR EINKATÖLVUM, OGIBM PS/2 E
VALA TÖLVUM. EINNIG ÝMSAR GERÐIR AF PRENTUR
OG ÖÐRUM JAÐARTÆKJUM. SKJÁSÍUR OG MARGT FL:
TIL TÖLVUNOTKUNAR.
HAFIÐ SAMBAND...
ALLT hugbúnaður (fjárhags- og viðsl
mannabókhald og fleira.
RAFREIKNIS launabókhald og fleira
Perfect, Perfect Plan).
STÓLPA launabókhald, og fleira, oc
jReiknistofa
® 3854 og 3864