Bæjarins besta


Bæjarins besta - 02.03.1988, Qupperneq 10

Bæjarins besta - 02.03.1988, Qupperneq 10
10 BÆJARINS BESTA Jarðgöngin á Vestfjörðum: Ekki spurning hvort heldur hvenær göngin koma Fjölmennur fundur ályktar um málið SMÁAUGLÝSINGAR Slysavarnakonur ísafiröi Munið föndrið næstkomandi laugardag í Sigurðarbúð kl. 2-5 eftir hádegi. Kaffi á könnunni. Þær sem eiga kökudiska frá kaffisölunni, vinsamlega sækið þá. Nefndin. Til sölu Til sölu Loki PC tölva, IBM samhæfð. 640 Kb með grafísk- um skjá. Upplýsingar í síma 3526 kl. 20-22 á kvöldin. ísskápur Til sölu er rúmlega eins árs gam- all ísskápur. Upplýsingar í síma 7195. Dagmamma Dagmamma óskast allan daginn fyrir fjögurra mánaða stúlku. Upplýsingar í síma 3881. Mitsubishi Galant Til sölu er Mitsubishi Galant 2000 GLS, árgerð 1987. Upplýsingar í síma 7348 á dag- inn og 7319 á kvöldin. Slysavarnakonur Isafiröi Skyndihjálparnámskeið hefst 8. mars. Þátttaka tilkynnist fyrir 5. mars til Láru (S 3325) eða Ást- hildar (S 3703). Subaru Justy Til sölu er Subaru Justy sendi- ferðabíll, árgerð 1984. Ekinn 59 þús. km. Upplýsingar í síma 3719 eftir kl. 19 eða í vinnusíma 4400 (Jósef). Húseign í miðbænum Húseignin Hrannargata 9 er til sölu. Lán geta fylgt. Tilboð óskast. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Upplýsingar í síma 4014. Heimabær 5 Heimabær 5, tveggja herbergja íbúð á neðri hæð, er til leigu eða sölu. Upplýsingar gefur Jósef í síma 3719 eftir kl. 19, eða í vs. 4400. Til leigu Til leigu er þriggja herbergja íbúð. Upplýsingar í síma 4152. Hvolpar Hvolpar fást gefins. Upplýsingar í síma 4998. - Húsnæði óskast Húsnæði óskast til leigu á ísa- firði eða í Súðavík. Skipti á þriggja herbergja íbúð í Reykjavík koma til greina. Upplýsingar í síma 4942. Fjölmennur fundur var hald- inn á Hótel ísafirði s.l. föstu- dag um jarðgöng á Vestfjörð- um. Það var stjórn Fjórðungs- sambands Vestfjarða sem boð- aði til fundarins. Mikill fjöldi sveitarstjórnarmanna mætti á fundinn. Einnig tveir þing- manna Vestfirðinga, þeir Ólafur Þ. Þórðarson og Sig- hvatur Björgvinsson. Fjórir menn voru með fram- sögu á fundinum. Það voru: Bjarni Einarsson aðstoðarfor- stjóri Byggðastofnunar, Einar Oddur Kristjánsson frá Flat- eyri, Bergur Torfason frá Núpi, og Gísli Eiríksson um- dæmistæknifræðingur Vega- gerðar ríkisins. f fundarlok var samþykkt einróma eftirfarandi ályktun: „Fundur sveitarstjórnar- manna í ísafjarðarsýslum, Bolungarvík og ísafirði, hald- inn á lsafirði 26. febrúar 1988, fagnar eftirtöldum skýrslum um jarðgangamál: 1. Önundarfjörður-Súganda- fjörður - ísafjarðardjúp, frumathugun á jarðfræði- legum aðstæðum við gerð farðganga á Vestfjörðum. 2. Skýrsla nefndar um jarð- gangaáætlun. 3. Jarðgöng á Vestfjörðum. Það er álit fundarins að skýrslur þessar varpi ljósi á áætlað umfang verkefnisins. í einni skýrslunni komi fram, að ekki verði hægt að tryggja fullnægjandi akvegasamband milli Skutulsfjarðar annars vegar, og Súgandafjarðar og Önundafjarðar hins vegar, nema með veggöngum. Fund- armenn líta því svo á, að það sé ekki lengur spurning um, hvort gera eigi jarðgöng, held- ur að ljúka nauðsynlegum undirbúningsrannsóknum og hefjast handa um framkvæmd- ir. Fundurinn bendir á, að á fyrrgreindu svæði, eru búsettir nálega tveir af hverjum þrem- ur Vestfirðingum. Með veg- gangatengingu verði svæðið samfellt atvinnu- og þjónust- usvæði, auk þess sem mögu- leikar til félagslegra samskipta muni stóraukast. Fundurinn skorar á Alþingi íslendinga (samgönguráð- herra) að taka nú þegar ákvörðun um gerð tvíbreiðra jarðganga milli Skutulsfjarð- ar, Súgandafjarðar og Ön- undarfjarðar, og tryggja jafn- framt fjármagn til verksins þannig að því verði lokið eigi síðar en 1993.“ Eins og fyrr segir var fund- urinn fjölmennur og sam- þykkti þessa tillögu einróma. Að sögn Jóhanns T. Bjarna- sonar framkvæmdastjóra Fjórðungssambands Vestfirð- inga er helst verið að hugsa um tvíbreið göng með þremur munnum, þ.e. göngum sem myndu greinast inni í fjallinu. Þó væri ekki búið að taka neina ákvörðun í þessu sam- bandi en ljóst væri að göngin komi, það væri bara spurning hvenær. Ræðukeppni á milli vestfirskra grunnskóla Mælsku- og rökræðukeppnir hafa notið mikilla vinsælda meðal framhaldsskólanema undanfarin ár. Hefur keppni framhaldsskólanema vakið mikla athygli og nú er svo komið að grunnskólane- mendur hafa hrifist með. Fyrir tilstilli nokkurr grunnskólakennara og með- lima úr ræðuliði Mennta- skólans á ísafirði hefur nú verið hrint í framkvæmd ræðukeppni á milli vest- firskra grunnskóla. Þarna er um að ræða mjög svo athyglisvert framtak og í fyrsta skipti í langan tíma sem skólar hér á Vestfjörð- um keppa sín á milli. Þegar hafa verið haldnar forkeppnir í skólunum og valið í lið. Nú hafa átta lið skráð sig til þátttöku, tvö frá Flateyri, tvö frá ísafirði, tvö frá Bolungarvík, eitt frá Núpi, og eitt frá Þingeyri. Fyrsta umferð stendur nú yfir og verður greint frá úr- slitum í næstu viku. Innilegar þakkirtil allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför Símonar Jóhanns Helgasonar Túngötu 12, ísafirði. Elin Elíasdóttir Kristín Símonardóttir Jóhann Hauksson SigríðurSímonardóttir Jón Guðbjartsson ElísaSímonardóttir ÁrniHelgason Stefán Símonarson Steinunn Sölvadóttir Barnabörn, barnabarnabarn.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.