Bæjarins besta - 02.03.1988, Qupperneq 12
12
BÆJARINS BESTA
ísafjörður:
Súpa:
Gratineruð lauksúpa
★ ★ ★
Forréttur:
Hörpuskel og rækjur
í búttudeigsskeljum
★ ★ ★
Fiskréttur:
Soðinn lax m/smjöri
og graslauksristuðum kartöflum
★ ★ ★
Kjötréttir:
Gljáður hamborgarhryggur
m/rauðvínssósu
★ ★ ★
Ofnsteik lambalæri
m/koníaksósu og kjörsveppum
★ ★ ★
Heilsteiktar nautalundir
m/malibúsósu
★ ★ ★
ATVINNA!
Stúlka óskast
til verslunarstarfa
BJÖRNSBÚÐ
Sími 3032 og 36TO
Komum um leið
og buddan leyfir
segir Ólafur Hauksson útvarpsstjóri Stjörnunnar
Stjarnan, ein hinna nýju út-
varpsstöðva, er að breiða sig
hægt og rólega um landið. Nú
fyrir skemmstu hófust útsend-
ingar Stjörnunnar til Akureyr-
ar og við það tækifæri sagði
Ólafur Hauksson útvarpsstjóri
stöðvarinnar að ísafjörður
væri næstur í röðinni. En hve-
nær verður það?
í samtali við BB staðfesti
Ólafur það að ísafjörður væri
næstur í röðinni. „En það er
stóra spurningin hvað langt er
í það. Það er svo óhemju dýrt
að senda merkið vestur. Mið-
að við vegalengdina er þetta
um 1.2 milljónir á ári að senda
til ísafjarðar. Síðan er kostn-
aðurinn við sendi og annað um
500 þúsund á ári. Sem sagt, að
senda út á ísafjörð er um 1.7
milljónir á ári. Við erum nú
búnir að vera átta mánuði í
loftinu en Ríkisútvarpið í 57
ár, við verðum að passa að fara
ekki of geist af stað og hrein-
lega bara ráðum við ekki við
það. En það er gífurlegur
áhugi hjá okkur fyrir því að
komast til ísafjarðar."
Einhver dagsetning?
„Nei, en eins og ég segi, við
verðum að láta budduna ráða
þessu, því miður. En þetta er
alltaf í athugun.“
Ný umferðarlög:
Opinn fræðslu-
fundur 6. mars
Ný umferðarlög tóku gildi í
gær og þau þarf að kynna fyrir
fólki. ísafjarðardeild Bindind-
isfélags ökumanna og lögregl-
an á ísafirði efna til opins fund-
ar um nýju umferðarlögin á
sunnudaginn, 6. mars. Fund-
urinn verður haldinn í Grunn-
skólanum (gamla Gagnfræða-
skólanum), og hefst hann
klukkan 15.
Á fundinum verða sýnd
myndbönd um umferðarmál.
Annað er kennslumynd um út-
fyllingu tjónatilkynninga sem
þarf að útfylla ef óhapp verður
í umferðinni. Hitt ber nafnið
„Líðan eftir atvikum" og bygg-
ir á viðtölum við fólk sem lent
hefur í umferðarslysum. Þá
mun lögreglan gera grein fyrir
helstu nýmælum umferðarlag-
anna eftir því sem fyrirspurnir
koma fram um og um leið gera
grein fyrir þeim vinnubrögð-
um sem hún mun taka upp í
kjölfar þessara lagabreytinga.
Ljóst er að þarna er verið
að framkvæma veigamiklar
breytingar á umferðarlögun-
um á ýmsum sviðum. Því von-
ast lögreglan til þess að bæjar-
búar sjái sér fært að koma á
fundinn til að kynna sér nýju
lögin.
ísafjörður:
Siggi Sveins fær veiöileyfi
Mikil óvissa hefur verið ríkj-
andi um hvort rækjuskipið
Siggi Sveins fái kvóta. Endan-
legur kvóti fyrir skipið hefur
ekki verið reiknaður út en ljóst
er að útgerðin verður að láta
veiðileyfi Glaðs, sem fórst á
síðasta ári, af hendi til þess að
Siggi Sveins fái veiðileyfi.
Siggi Sveins hefur farið í
eina veiðiferð eftir áramótin
en ís hefur gert rækjubátunum
erfitt um vik. Aflinn í um-
ræddri veiðiferð var um tíu
tonn af rækju.