Bæjarins besta - 02.03.1988, Side 16
KÆLISKÁPAR frá
Siemens, Zanussi, og Gram
á verði frá því fyrir
gengisf ellingu!
POLLINN HF. Verslun sími 3792
MIÐVIKUDAGUR
2. MARS 1988
Hestaferð um
Hornstrandir
kvikmynduð í sumar
Áð á Glámujökli í ferðinni 1985.
í júlí í sumar verður farin
merkileg ferð um Horn-
strandafriðland. Um er að
ræða ferð á hestum, og verða
þátttakendur 15-20 manna
hópur hestamanna frá ísafirði
og Bolungarvík. Fagranesið
mun flytja hestana til Hesteyr-
ar og verða þeir látnir synda í
land þar. Síðan verður riðið til
Aðalvíkur og þaðan til Fljóta-
víkur og áfram til Hornvíkur
um Hlöðuvík.
Frá Hornvík verður riðið til
Bolungarvíkur á Ströndum,
þaðan í Hrafnsfjörð, yfir Skor-
arheiði í Furufjörð og til
Reykjafjarðar. Frá Reykja-
firði verður haldið yfir
Drangajökul að Bæjum á
Snæfjallaströnd, þar sem hest-
arnir verða teknir í Fagranesið
og fluttir til ísafjarðar aftur.
Ef ekki viðrar á jökulinn mun
farið um Ófeigsfjarðarheiði til
Melgraseyrar, í stað Bæja.
Áætlað er að ferðin taki viku
til tíu daga.
Gísli Hjartarson, Horn-
strandafararstjóri, mun leiða
hópinn og að hans sögn er hóp-
urinn að mestu leyti sá sami og
sá sem reið um Hornstrandir
og Glámu 1985. Sagði Gísli að
einhverjir úr þeim hópi gætu
þátt í þessari ferð og yrði fyllt
í skörðin með nýju fólki.
Ferðin mun verða kvik-
mynduð í heild fyrir sjónvarp
af Jóni Björgvinssyni, „okkar
manni í Sviss,“ eins og ríkisút-
varpið kynnir þennan frétta-
mann sinn þar. Jón kvikmynd-
aði ferð Hafþórs Ferdinands-
sonar, Hveravallaskrepps, sl.
haust. Hann fór þá þvert yfir
landið frá Öndverðarnesi eftir
hálendinu og að Dalatanga.
Enn fremur tók hann Vatna-
jökulsmyndina sem sýnd var í
Sjónvarpinu á jóladag.
Viðfangsefni Jóns í þessari
ferð er kvikmynd um íslenska
hestinn og ósnortið náttúrufar
Hornstranda, ásamt ferðalag-
inu sem slíku. Ekki er enn Sem
komið er vitað um fjölda
ferðalanganna, en í síðustu
hestaferð Gísla voru sextán
manns og má reikna með að
fjöldi verði svipaður nú.
Þessi leið í heild hefur aldrei
verið riðin áður svo sögur fari
af. Telur Gísli að allar þessar
leiðir séu vel færar með hesta
og má geta þess hér, að ekki
þótti í frásögu færandi fyrir
daga Djúpvegar, að hestar og
aðrir gripir væru látnir synda í
land úr Djúpbátnum.
Litli leikklúbburinn:
Frumsýning á sunnudag
Litli leikklúbburinn frum-
sýnir á sunnudaginn klukk-
an 21 leikritið „Sveitapilts-
ins draumur“ eftir þá félaga
Guðjón Ólafsson og Pál Ás-
geir Ásgeirsson. Þarna er
um að ræða leikrit sem fjall-
ar um komu ungs pilts til
ísafjarðar frá Hornströnd-
um um svipað leyti og bítla-
æðið er að hefja innreið
sína. Sautján leikarar taka
þátt í uppfærslunni. Leik-
stjóri er Hörður Torfason.
Sýnt verður í sal Mennta-
skólans á ísafirði. Er það í
fyrsta skipti sem leikrit er
sett upp í þessum nýja sal
Menntaskólans.
Súðavík:
Nýr Bessi haustið 1989
Undirritaður hefur verið
samningur á milli Álftfirð-
ings h.f., útgerðarfélags
Bessa ÍS, og norsku skipa-
smíðastöðvarinnar Flekke-
fjord um smíði á nýjum
skuttogara fyrir félagið.
Að sögn Ingimars Hall-
dórssonar framkvæmda-
stjóra Álftfirðings h.f. er þó
venjulegur fyrirvari á samn-
ingnum því enn vantar sam-
þykki stjórnvalda og ekki
hefur verið gengið endan-
lega frá nauðsynlegum
lánum. En ef allt gengur að
óskum er reiknað með því
að hinn nýi skuttogari verði
afhentur í ágúst eða sept-
ember á næsta ári.
Smíðasamningurinn felur
það í sér að skipasmíðastöð-
in tekur gamla Bessa upp í
kaupverðið á þeim nýja.
Ekki vildi Ingimar gefa upp
kaupverð skipsins, en þegar
verkið var boðið út bárust
átta tilboð, það lægsta upp
á 190 milljónir króna, en
það hæsta 480 milljónir.
Hinn nýi Bessi sem samið
hefur verið um að smíða fyr-
ir Álftfirðing verður mjög
svipaður nýja Sjóla. Um er
að ræða hefðbundinn ísfisk-
togara en þó með frystilest
og vinnsluaðstöðu á milli-
dekki. Togarinn, sem hann-
aður var af Skipahönnun
h.f. í Garðabæ, verður 59
metralangurog 12.20 metra
'breiður. Smíði togarans
hefst um leið og stjórnvöld
hafa gefið grænt ljós og
gengið hefur verið frá lán-
um vegna verksins.