Bæjarins besta


Bæjarins besta - 09.11.1988, Síða 3

Bæjarins besta - 09.11.1988, Síða 3
BÆJARIJMS BESTA 3 Nýja kirkjan: Deilt um staðarvalið Nýlega barst bæjarráði undir- skriftalisti með 120 nöfnum, þar sem mótmælt er niðurrifi gömlu kirkjunnar og jafnframt því að ný kirkja rísi handan Hafnarstrætis, framan við nýja sjúkrahúsið. Bæjarráð boðaði sóknarnefnd- armennina Gunnlaug Jónasson og Árna Traustason á sinn fund til að ræða þetta mál. Þá kom fram hjá Gunnlaugi að sóknarnefnd telur ekki ráð- legt að gera skoðanakönnun meðal bæjarbúa um málið þar sem búið sé með löglegum hætti á almennum safnaðarfundum að taka ákvarðanir varðandi nýja kirkju og staðsetningu hennar. Engin endanleg ákvörðun var tekin um þessi mál á fundinum og að sögn Ingibjargar Ágústs- dóttur formanns bæjarráðs verð- ur það ekki gert fyrr en aðal- skipulag Isafjarðar verður tekið til umfjöllunar sem verður að öllum líkindum um miðjan nóv- ember. „Það er einsog margir hafi vaknað upp við vondan draum þegar kirkjuteikningarnar voru sýndar almenningi og fjöldi fólks hefur hringt í bæjarfulltrúana til að lýsa óánægju sinni með stað- arval nýju kirkjunnar“ sagði Ingibjörg í samtali við BB. „Varðandi spurninguna um niðurrif gömlu kirkjunnar þá bendi ég á að ný lög um friðlýs- ingu kirkna sem byggðar eru fyr- ir 1918 ganga væntanlega í gildi fljótlega og hún mun þá falla undir þau.“ Það eru skiptar skoðanir um hvar hin nýja kirkja ísfirðinga á að vera. ísafjörður: Félagsmálastjóri segir upp Árni Stefán Jónsson félags- málastjóri hjá ísafjarðarkaup- stað hefur sagt starfi sínu lausu frá og með l.nóvember. Árni Stefán mun vinna þriggja mánaða uppsagnarfrest og hættir því störfum 1. febrúar. Aðspurð- ur sagðist Árni ekki geta greint strax frá ástæðu uppsagnarinnar en sagði að hún snerti starfssvið félagsmálastjóra. Bæjarráð mun fjalla um málið í næstu viku. Blikksmiðja Vélsmiðjunnar Þór auglýsir Önnumst alla almenna blikksmíði, uppsetningu oq smíði loftræstikerfa. Eigum ýmist á lager og smíðum: ► Þakrennur ► ► Þakventla ► ► Kjöljárn ► ► Blásara ► ► Útsogsventla ► ...og margt fleira Eldvarnarhurðirnar ístjórnsýsluhúsinu eru frá okkur. GERUM FÖST VERÐTILBOÐ. Blikksmiðja Vélsmiðjunnar Niðurföll Veggventla Kantjárn Ristar Innblástursventla

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.