Bæjarins besta


Bæjarins besta - 09.11.1988, Page 4

Bæjarins besta - 09.11.1988, Page 4
ísafjörður: BÆJARINS BESTA, óháð vikublað á Vest- fjörðum. Útgefandi: H-PRENT sf, Suðurtanga 2, 400 isafjörður, S 4560. Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson. Blaðamaður: Vilborg Davíðsdóttir. Útgáfudagur: Miðvikudagur. Rit- stjórnarskrifstofa og auglýsingamóttaka að Suðurtanga 2, s 4570 og er svarað allan sólar- hringinn. Setning, umbrotog prentun: H-prentsf, Suður- tanga 2, 400 ísafjörður. RITSTJÓRN Nauðsyn samstöðu í hvalveiðideilunni Allt frá því að forfcður okkar álpuðust til að finna eyland það, er síðar nefndist ísland, höfum við nrátt lifa á landsinsgæðum og gnótt sjávarins. Þessu lögmáli fáum við ekki breytt með tölvuvæðingu. Sú var trú manna í eina tíð, að sjórinn gleypti allt. Afleiðing fá- viskunnar birtist í dag í alvarlegri mcngun, scm ekki erséðfyrirend- ann á. Á sama hátt trúðu mcnn aðauðlindirhafsins væruóþrjótandi. Við vitum nú manna bcst að þcssar hillingar voru tálsýn. Neyðin kcnnir naktri konu að spinna. Skjálfandi í útsynningi veruleikans tókum við upp stjórnun fiskveiða og lögðum hlustir, í ríkari mæli cn áður, að viðvörunarorðum fiskifræðinga. Betra scint cn aldrci. Komnir til meðvitundar gerðu íslendingar sér grein fyrir nauðsyn þess að þeir cinir réðu fiskimiðunum. Þess vegna færðunr við t'isk- veiðilögsöguna út í 200 mílur. Sérstaða okkar, senr fiskveiðiþjóðar, skóp samúð annara þjóða með málstaðnum me,ð tfmabundnum undantckningum scm allir muna. í þorskastríðinu var þjóðin einn hugur, ein hönd, því var aldrei spurning hvort við sigruðum, aðeins hvenær. í hvaiamálinu er annað uppi. Sundrung innbyrðis, skilningur á sértöðu okkarekki fyrir hcndi. Með útúrsnúningum ogóhróðri hef- ur lífsleiðum, ofdekruðum yfirstéttarhópum, gjörsneyddum allri til- finningu fyrir lífsbaráttu venjulegs fólks, tekist að magna andúð í garð íslendinga vegna hvalveiða þeirra. Og nú cr svo komið að farið er að beita okkur viðskiptaþvingunum Stjórnvölduin cr vandi á höndum. Einarðlcg afstaða sjávarút- vegsráðhcrra á stöðugt mcira og meira undir högg að sækja. Loforð bandarískra til utanríkisráðherra um stuðning við hvalveiðar í nafni vísinda dugir ekki. Sem stcndur erum við á undanhaldi. Auðvitað er það út í hött að aðrar þjóðir segi okkur til verka um nýtingu sjávarafla, að í skjóli auðmagns, sent menn vita ekki hvað þeir eiga að gera við, séum við sviptir frumrétti veiðimannsins. Pess- ir höfðingjar spyrja ekki um lög, hefðir eða siðferðisrétt. í hvala- deilunni kunna miklir hagsmunir að vera í veði. Það vita kúgararnir. Vera má að af þessurn sökunt séunt við tilneyddir til að gefa eftir unr stundarsakir. En áður en til aðgerða og afstöðu út á við kemur, er brýnt að finna lausn sem viðsjálfirgetum sameinast um. Fyrren svo er, er baráttan vonlítil og sigur ekki í sjónmáli. s.h. BÆJARINS BESTA Sorpeyðingu við Snndahöfn mótmælt Sorphaugarnir við Sundahöfn eru ófögur sjón. Forsvarsmenn flestra fyrir- tækja í Neðstakaupstað, sem og allir íbúar, hafa skrifað undir mótmæli við tillögum Hollustu- verndar ríkisins að starfsleyfi fyrir eyðingu á heimilis, iðnaðar og verslanasorpi á Sundahafnar- svæði á ísafirði. Að sögn Einars Otta Guðmundssonar heilbrigð- isfulltrúa fóru bæjaryfirvöld frain á að Hollustuvernd veitti formlegt starfsleyfi fyrir urðun óhrennanlegs sorps á svæðinu en ekkert annað. Tillögurnar fela hins vegar í sér mun víðtækari starfsemi, það er að segja cyðingu alls sorps, og ekki kemur fram í þeim hvort setja á upp sorpbrennsiustöð við höfnina eða urða þar sorp. Tillögurnar liggja frammi á bæjarskrifstofunum til 15. nóv- ember og hefur Hollustuvernd óskað eftir að athugasemdir við þær berist sem fyrst. Heilbrigðisfulltrúi mun mót- mæla þeim og að öllum líkindum einnig heilbrigðisnefnd. Að sögn Ólafs Péturssonar forstöðumanns mengunardeildar Hollustuverndar ríkisins mun stofnunin endurskoða tillögurn- ar þegar athugasemdir hafa borist. Útgerðin: Nýtt félag stofnað um Framnes ÍS Stjórnir Útgerðarfélags Bíld- dælinga og Fáfnis h.f. á Þingeyri ræða nú stofnun nýs hlutafélags um útgerð togarans Framnes IS 708 frá Þingeyri. Eignahlutföll hafa ekki endanlega verið ákveðin en líklegt er að Fáfnir h.f. muni eiga 52% og Útgerðar- félagið 48%. Að sögn Jakobs Kristinssonar framkvæmdastjóra Fiskvinnsl- unnar á Bíldudal verður hlutafé- lagið stofnað fyrir áramót og þá mun Framnes landa jafnt á Þing- eyri og á Bíldudal. „Við höfum verið í vinsamleg- um viðræðum við Bílddælinga um þessi mál en það er ljóst að ekki verður gengið frá neinu fyrr en okkur berst svar við umsókn okkar til atvinnutryggingasjóðs um fyrirgreiðslu til Kaupfélags Dýrfirðinga“ sagði Hallgrímur Sveinsson stjórnarformaður Fáfnis h.f. í samtali við BB. „Ef af þessu verður mun tog- arinn verða mannaður af Þing- eyringum og framkvæmdastjórn verður óbreytt frá því sem verið hefur. Okkar óskastaða er auð- vitað sú að þurfa ekki að selja eignir en eins og staðan er í dag þá er nokkuð óljóst um fram- haldið. Það verður hvorki seldur heill né hálfur togari frá Þingeyri nema um líf eða dauða sé að tefla fyrir fyrirtækið í heild.“

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.