Bæjarins besta - 09.11.1988, Page 12
12
BÆJARINS BESTA
Fjórðungssjúkrahúsið:
Enn vantar tæki
fyrir 12 milljónir
Kristinn P. Renediktsson
yfirlæknir:
£kki flutt fyrir áramót.
Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði: Enn vantar peninga og enn
vantar nauðsynleg tæki.
F.nn vantar nauðsynleg tæki í
nýja sjúkrahúsið að andvirði um
12 milljóna króna. Llnnið er að
því að útvega fjárframlög til
kaupanna en ekki er búið að
panta fleiri tæki en þegar eru
komin til ísafjarðar. Að sögn
Kristins P. Benediktssonar yfir-
læknis líða a.m.k. 3 manuðir eft-
ir að pöntun er gerð áður en
tækin berast. Það verður því ekki
fiutt í sjúkrahúsið nýja fyrir ára-
mót.
í 40.tbI. BB var haft eftir Ei-
ríki Kristóferssyni formanni
byggingarnefndar að búið væri
að panta öll tæki og hafði hann
það eftir fulltrúum Innkaupa-
stofnunnar.
Kristinn sat síðan fund með
fulltrúum Innkaupastofnunar og
heilbrigðisráðherra í Reykjavík
nýlega og kom þar fram að Inn-
kaupastofnun taldi að öll tæki
væru komin til ísafjarðar.
„Mér var falið að fara vestur
með lista Innkaupastofnunnar
og merkja við þau tæki sem ég sá
að voru ekki komin“ sagði Krist-
inn. „Þegar ég var búinn að því
kom í Ijós að meira en helming-
inn af nauðsynlegustu tækjum
vantar ennþá og framreiknað þá
eru þetta tæki að andvirði um 12
milljóna.
Innkaupastofnun hefur haldið
því fram í allt sumar að þessi
tæki væru komin og við höfum
alltaf mómælt því en menn þar
hafa látið í veðri vaka að við
værum að heimta einhverja við-
bót sem er ekki rétt. Eins og
tækjakostur í húsinu er I dag
dettur engum í hug að hægt sé að
hefja starfsemi þar.
Auk þess tel ég sem læknir að
frágangur á loftunum sé ekki í
samræmi við þær kröfur sem
beri að gera til heilbrigðisstofn-
unnar og hef þess vegna farið
fram á að Vinnueftirlit ríkisins
geri hlutlausa úttekt á því. Ég
hef ekki fengið lokasvar við
þeirri beiðni.
Frágangurinn er þannig að
loftræstilagnir eru lagðar með
steinull sem ég tel vera mengandi
fyrir lungu. Lausu plöturnar í
fölsku loftunum eru úr glerull
sem gæti einnig verið skaðleg,
auk þess sem þarna safnast mikið
ryk sem erfitt er að losna við.
Þegar gegnumtrekkur er og
plöturnar titra þá sér maður ryk
og jafnvel agnir úr ullinni þyrlast
niður. Svona er frágangurinn til
dæmis á fæðingarstofunni, á
skurðstofuganginum og sótt-
hreinsunarherberginu.
Það er líka spurning hvort við
eigum að dragast með þennan
ramp sem allir vita að er ónot-
hæfur en Innkaupastofnun telur
heppilegan og hvort við eigum
að sætta okkur við að það sé
engin lyfta á milli legudeildar og
skurðstofuhæðar. Þetta eru at-
riði sem við viljum fá á hreint
sem fyrst.“
íbúð óskast
Einbýlishús eða raðhús
óskast fyrir væntanlegan
hótelstjóra, frá og með næstu
áramótum.
Upplýsingar gefur Björn Hermannson
í síma3711 eða3552.
SIDSEL-KODDINN
fyrir fólk á öllum aldri
SIDSEL
Rétt
Sidsel koddi
•SIDSEL-koddinn gefur
góðan stuðning við hálsliðina.
• SIDSEL-koddinn er talinn
geta fyrirbyggt og dregið úr
stirðleika í hálsi og herðum og
hefur því verið tekinn í notkun
á sjúkrahúsum hér á landi og
erlendis.
•SIDSEL-koddinn hefur
fengið afar góðar viðtökur frá
sjúkraþjálfurum hérlendis
sem erlendis.
Rangt
4
•SIDSEL-koddanum fylgir
koddaver.
• SIDSEL-koddann má
handþvo í volgu vatni.
•SIDSEL-koddinn er sér-
hönnuð sænsk gæðavara.
Venjulegur koddi
HAGKVÆM OG GÓÐ GJÖF
FYRIR BÖRN OG FULLORÐNA
Geymið auglýsinguna - pantið timanlega fyrir jólin.
Sendum í póstkröfu um allt land.
SIDSEL umboðið - F. KARLSSON
Pósthólf 9145,129 Reykjavík, sími 91-76731
--------------------------------------^
Ég óska að fá sent_stk. SIDSEL-kodda á kr. 2608,- pr. stk.
NAFN
HEIMILISFANG______________
PÓSTNÚMER ______ PÓSTSTÖÐ
Ath! Póstburðargjald innifalið við pöntun af 5 stk. eðafleirum.