Bæjarins besta


Bæjarins besta - 10.08.1989, Blaðsíða 1

Bæjarins besta - 10.08.1989, Blaðsíða 1
Skálavík um helqina Pöbbinn opinn föstudag kl. 22-1 Pöbbinn opinn laugardag kl. 22 -1 SKALAVIKl Bolungarvík S 7130 Hlífarmálið: Greiðslubyrði bæjarsjóðs 73,5 milljónir á þessn ári Eignaraðild bæjarsjóðs að Hlíf II rædd og samþykkt á lokuðum fundi. Framkvæmdasjóður aldraðra samþykkti 52 milljón króna framlag á fjórum árum Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra og Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri skrifuðu undir samning um framlag Framkvæmdasjóðs aldraðra til bæjarsjóðs vegna Hlífar II í síð- ustu viku. Umferðin: Harður árekstur í Djúpinu Tyeir sendir suður með sjúkraflugi Bílarnir voru töluvert skemmdir eftir áreksturinn. Hér sést bíll hjónanna frá Isafirði eftir að búið var að draga hann inn í Reykjanes. Hjónin sluppu bæði svo til ómeidd enda í bílbelt- um. TVEIR menn voru sendir til Reykavíkur með sjúkraflugi frá Reykjanesi eftir að hafa lent í hörðum árekstri rétt innan við Kleif í ísafirði. Slysið varð með þeim hætti að tveir bílar lentu saman á hæð. Hjón voru í öðrum bílnum, sem voru á leið til ísafjarðar, og sluppu þau svo til ómeidd. Þau notuðu bílbelti og er það talið hafa bjargað þeim. í hinum bílnum, sem var á leið norður í land, voru þrír ungir menn á aldrinum 17-22 ára og slösuðust tveir þeirra nokkuð. Bílstjórinn skarst mikið í andliti og grunur lék á að framsætisfarþeginn hefði orðið fyrir innvortis áverkum. Hvorugur var í belti og bílstjórinn var próf- laus. Farþegi í aftursæti slapp ómeiddur. Björgunarbáturinn Daníel Sigmundsson fór rneð lækni og sjúkralið inn í Reykjanes og þar úrskurðaði læknir að senda þyrfti mennina til Reykjavíkur. Flugvél frá Flugfélaginu Erni fór síðan með þá suður. Þeir reyndust ekki eins alvarlega slasaðir og talið var í fyrstu og voru útskrifaðir af sjúkrahúsi um helgina. BÆJARSTJÓRN ísa- fjarðar samþykkti á lok- uðum fundi á miðvikudag að kaupa sameiginlegt þjón- usturými í Hlíf II og 13 vernd- aðar þjónustuíbúðir, samtals 49,2% af heildarrýminu. Tveir af fjórum fulltrúum Sjálfstæðistlokksins sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Að loknum umræðum og atkvæðagreiðslu var fund- urinn opnaður áheyrendum og þá undirrituðu heilbrigð- isráðherra og bæjarstjóri samning um 52 milljón króna framlag Fram- kvæmdasjóðs aldraðra ti) bæjarsjóðs ísafjarðar vegna eignaraðildar hans að Hlíf II. Upphæðin er 35% af eignarhlut bæjarsjóðs sem er 150 milljónir. Fyrir íbúðirn- ar greiðir bæjarsjóður 74 milljónir og fyrir þjónustu- rýmið 76,6 milíjónir. Ráðherra lét þess getið að þessi samningur væri eins- dæmi en ekki fordæmi að því leyti að með honum er bæj- arsjóði tryggð ákveðin fram- lög fjögur ár fram í tímann með vöxtum og verðbótum. Framlag sjóðsins greiðist með fjórum jöfnum greiðsl- um, að þeirri upphæð frá- dreginni sem þegar hefur verið lögð fram. Ráðherra afhenti síðan bæjarstjóra 2 milljón króna ávísun sem síðasta hluta af framlagi sjóðsins í ár og hef- ur hann þá alls greitt 15,1 milljón af styrkveitingunni. Greiðslubyrði bæjarsjóðs vegna kaupanna verður rúm- ar 73,5 milljónir á þessu ári. Árið 1990 verður greiðslu- byrðin um 13 milljónir um- fram framlag Frkvsj. aldr- aðra, árið 1990 og 4,8 milljónir árið 1991. Ekki er gert ráð fyrir framkvæmdum árið 1992 en sjóðurinn greið- ir 9,4 milljónir það ár og árið 1993 greiðir bæjarsjóður 1,8 milljónir umfram framlag sjóðsins. í þessum tölum er ekki gert ráð fyrir fjármagns- kostnaði vegna lána sem taka verður vegna kaupa og framkvæmda en samkvæmt upplýsingum bæjarstjóra er áfallinn fjármagnskostnaður frá 15. júní 1989 til 15. ágúst 1990 á skuldum Bsvf. Hlífar orðinn 4,7 milljónir miðað við 2,5% ársvexti. Bæjarstjóri sagði í samtali við BB að sótt hefði verið um 49 milljón króna lán hjá Húsnæðisstofnun og 22,5 milljónir verði fengnar að láni annars staðar til þess að borga greiðslur þessa árs. Lántökur þessar eru utan fjárhagsáætlunar. Fast verð hefur nú verið sett á íbúðir annarra kaup- enda í Hlíf II og má því reikna með því að ísafjarð- arkaupstaður komi til með að bera þá hækkun sem lík- leg er að verði á fram- kvæmdakostnaði.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.