Bæjarins besta


Bæjarins besta - 10.08.1989, Blaðsíða 3

Bæjarins besta - 10.08.1989, Blaðsíða 3
BÆJARINS BESTA 3 Kirkjumálin: Eyrarkirkja flutt ? Sóknarnefnd kannar hvort flytja má Eyrar- kirkju á svæðið framan við gamla sjúkrahúsið SÓKNARNEFND ísa- fjarðar hefur sent inn fyrirspurn til þjóðminjavarð- ar um hvort hægt er að fá ieyfi til þess að færa Eyrar- kirkju á gamlan bæjarhól Eyrar á svæðinu bak við minnismerki sjómanna á sjúkrahústúninu. Á þessu svæði stóð Eyrarbær og þar hefur aldrei verið grafið í rústum né byggt á þeim. Svar hefur ekki borist enn og allt er óvíst um hvort vilji er fyrir flutningi kirkjunnar. Rétt þótti þó að kanna þenn- an möguleika að sögn Björns Teitssonar formanns sóknar- nefndar. bann 27. júlí sl. voru tvö ár liðin frá því að Eyrar- kirkja skemmdist í eldi. Að sögn Björns verður einhver viðhorfskönnun framkvæmd í haust á því hvaða leiðir söfnuðurinn vill fara í kirkju- málinu. Samþykkt sú, sem gerð var á síðasta aðalfundi, um að bæjarsjóði beri skylda til að greiða kostnað vegna hönnunar nýrrar kirkju á svæðinu framan við nýja sjúkrahúsið, liggur enn hjá sóknarnefnd og allt óvíst um hvenær hún verður lögð fyrir bæjaryfirvöld. Björn sagði það nýlega ljóst hver hönn- unarkostnaðurinn væri og því ekkert verið gert í mál- inu ennþá. Endanlegur kostnaður er líklega í kring- um fjórar milljónir. ísafj arð arkaup staður Áhugavert starf Laust er til umsóknar starf forstöðu- manns Félagsmiðstöðvar í Grunnskóla- num ásamt forstöðustarfi Vinnuskólans. IJm eitt starf er að ræða. Starfið er stjórn- un og ábyrgð á daglegum rekstri og skipulagningu starfs í Félagsmiðstöð og félagsstarfs í skóla. Laun 71. lfl. samkv. F.O.S. Vest sam- ningi. Nánari upplýsingar í síma 3035 Guðríður, síma 3722 Björn. Umsóknarfrestur er til 20. ágúst 1989. íþrótta og æskulýðsráð. Athugið! Hvítu sorppokarnir sem nú er dreift í hús eru eingöngu ætlaðir undir glerflösk- ur. Sorphreinsunarverktaki mun síðan fjarlægja pokana er þurfa þykir. Vinsamlegast setjið glerpokann ekki út fyrr en þið álítið að hæfilegt magn sé í honum. Með fyrirfram þökk og von um gott samstarf. Stjórn Sorpbrennslustöðvarinnar á Skarfaskeri. DÚNDUR ÚTSALA o Seljalandsvegi 20

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.