Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.08.2020, Page 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.08.2020, Page 12
VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.8. 2020 íþróttinni. „Mér fannst bara mjög þægilegt að vera á bíl og kunni að skemmta mér án áfeng- is. Ég sá ekki tilganginn í að fara að drekka strax. Þegar ég vaknaði ferskur á laugardags- eða sunnudagsmorgnum til að fara á æfingu vildu vinir mínir margir kúra aðeins lengur. Ég sá þá oft ekki á helgaræfingum.“ Á þessum árum var markmið Martins alveg skýrt: hann ætlaði að verða bestur. „Ég fann innra með mér að það ætti eitthvað eftir að gerast og þegar líkaminn myndi þroskast myndi ég taka fram úr þessum gaurum sem voru fyrir framan mig.“ 15 ára var Martin tekinn inn í meistaraflokk KR og segir hann hafa verið pirrandi að fá ekki að spila strax. Leikskilningurinn og tæknilegur þáttur íþróttarinnar var nógu góður en ekki var sömu sögu að segja um líkamlega þáttinn. „Mér fannst ég vera betri en þessir gæjar en ég átti bara ekki séns ef það var aðeins ýtt við mér eða ég þurfti að spila vörn.“ Að vera valinn bestur á Norðurlandamótinu gaf honum byr undir báða vængi og hlutirnir gerðust hratt eftir það. 17 ára var Martin tek- inn inn í 20 ára landsliðið, 18 ára var hann far- inn að spila mikið með meistaraflokki og valinn í A-landsliðið, 19 ára var hann orðinn besti leikmaður úrvalsdeildarinnar. „Þetta gerðist allt svo hratt að ég áttaði mig kannski ekki á því sem var að gerast. Fyrir mér var mjög eðli- legt að þetta væri að gerast á þessum aldri. Sem er auðvitað galið þegar maður hugsar út í það núna.“ Að vera valinn í 20 ára landslið og svo A- landslið svo snemma veitti Martin mikið sjálfs- traust. Það hefði verið hægt að velja betri leik- menn en þjálfararnir sáu hve efnilegur hann var. „Þá var hausinn kominn enn þá hærra og ég fór að æfa eins og skepna,“ segir Martin og heldur því fram að hlutirnir hefðu getað þróast öðruvísi hefði þetta ekki gerst. „Ég hefði getað lent í einhverju mótlæti sem ég réði ekki við á þeim tíma. Ég hugsa oft um hvað hefði gerst.“ Get alltaf farið í nám Eftir að hafa útskrifast úr Verzlunarskóla Ís- lands 2014, orðið Íslandsmeistari með KR og verið valinn besti leikmaður úrslitakeppninnar hélt Martin til Bandaríkjanna í háskólanám á skólastyrk. Nokkur viðbrigði voru að koma þangað, allt annað umhverfi og meira æft en hér heima. „Líkamlega tók ég fáránlegt stökk á fyrstu tveimur mánuðunum. Styrkurinn og formið varð allt annað. Ég held líka að það sé eitthvað smá í matnum þarna úti sem er ekki hér heima. Ég var allt í einu farinn að bæta aðeins á mig og komnir einhverjir vöðvar,“ segir Martin en bætir við að þetta hafi þó verið erfitt. „Það var æfing á morgnana, hlaupið á ströndinni eða teknar heræfingar. Það var skóli á daginn, aftur æfing í hádeginu og smá skóli aftur. Svo vorum við kannski kallaðir á skot- æfingar eða vídeófundi. Svo kom maður heim á kvöldin og þá var eitthvert heimanám sem þurfti að gera. Maður var gjörsamlega búinn á því.“ Martin lék með LIU Brooklyn í tvö ár en hann fór upphaflega til liðsins með Elvari Má Friðrikssyni, öðrum landsliðsmanni. „Við vor- um eldri og nokkrum stigum ofar í leikskiln- ingi en aðrir í liðinu en líkamlega vorum við langt á eftir. Þessir gaurar eru svo fáránlegir íþróttamenn. Ég held það hafi verið hárrétt skref að fara þangað. Ég bætti varnarleikinn alveg helling því það er lögð mikil áhersla á vörn þarna úti, ólíkt því sem er hér heima.“ Að tveimur árum liðnum ákvað Martin að halda í atvinnumennsku. „Ég vissi strax að ég var ekki að fara að klára fjögur ár þarna. Mig langaði í stærri körfuboltaáskorun. Ég hef oft sagt að ég fór ekki út í skóla til að læra. Það vita það allir í kringum mig. Margir segja að ég sé klikkaður að hafa fórnað þessu námi en maður getur alltaf farið í nám en körfubolta- ferillinn er bara ákveðið langur.“ Íslendingurinn þurfti að sanna sig Fyrsti áfangastaðurinn í atvinnumennsku var franska B-deildarliðið Étoile í Charleville- Méziéres í norðurhluta Frakklands. „B-deildin þar er frekar sterk, það kom mér á óvart. Ég var drullupirraður að umboðsmaðurinn skyldi ekki finna eitthvað betra fyrir mig. Það var erfitt að sætta sig við að fara í aðra deild. Þarna kemur sjálfstraustið aftur inn. Ég horfði á leiki í B-deildinni og hugsaði að ég væri miklu betri en þessir gaurar og svo horfði ég á leiki í efstu deild og hugsaði að ég gæti léttilega spilað þarna. Menn þorðu ekki að taka sénsinn á einhverjum litlum Íslendingi.“ Þurftirðu meira að sanna þig því þú ert Ís- lendingur? „Já, sérstaklega vegna þess hvernig leik- urinn minn er. Ég er mikið með boltann og þarf svolítið að stjórna liðinu. Við erum ekki hátt skrifuð körfuboltaþjóð. Kannski svona á seinni árum höfum við náð smá virðingu. Fyrstu árin í atvinnumennsku vildu menn fyrst sjá mig spila hérna eða þarna og þá væru þeir áhugasamir. Það var bara erfitt að finna lið og ég þurfti að fara á stað þar sem ég fengi mikið að spila. Ég hugsaði bara: „Ég fer þarna og sanna mig.“ Ég var ekkert sáttur enda launin ekkert spes, þannig séð. Maður var að fara í smá hark og vissi að ef maður sannaði sig þarna myndu góðir hlutir gerast. Og það gerðist.“ Nokkur viðbrigði voru að fara í atvinnu- mennsku. „Maður þurfti að fara að sjá um sig sjálfur og hafa fyrir öllu. Elda sjálfur, búa um sig sjálfur og allt þetta. Svo inni á vellinum þurfti maður að spila vel í hverjum einasta leik því ég var ekki öruggur með samninginn minn,“ segir Martin en á þessu stigi körfuboltans er al- gengt að hægt sé að rifta samningi við leikmenn í raun hvenær sem er. Nokkrir lélegir leikir og það er hægt að senda þá heim með næstu vél. Liðið og aðstaðan komu Martin þó á óvart. „Aðstaðan þarna og körfuboltinn voru sterkari en ég bjóst við. Þeir voru nýbúnir að byggja höll og með flott lið. Ég kom út með engar væntingar en svo fór þetta fram úr mínum björtustu vonum. Það gekk vel, við náðum besta árangri í sögu liðsins þannig að það var bara ofboðslega gaman. Það rættist vel úr þessu og svolítið lukkuskref fyrir mig,“ segir Martin en hann var valinn í úrvalslið deild- arinnar þetta árið. Martin fylgdi svo þjálfara sínum hjá Étoile í lið í efstu deild í Frakklandi ári seinna og fékk þar stórt hlutverk. „Það var hárrétt skref hjá mér að taka.“ Þar var hann í eitt ár áður en hann hélt til Alba Berlin í Þýskalandi. Fljótur að gleyma Var erfitt að taka alltaf þessi litlu skref upp á við? „Það var það en ég og umboðsmaðurinn minn settumst niður og settum upp þriggja ára plan með ákveðinn tröppugang. Í stað þess að fara í stærra lið þar sem maður væri ekki öruggur með leiktíma og sitja á bekknum tók ég kannski aðeins lægra stig og fékk að gera mistök, þroskast sem leikmaður og sanna mig.“ Þegar Martin hélt til Berlínar 2018 var það hans fyrsta stóra stökk í körfuboltaheiminum. Alba Berlin spilar í þýsku úrvalsdeildinni, einni bestu í Evrópu, og hafði nýlega tapað í úrslitum deildarinnar árið áður. „Þetta var risaskref, enginn Íslendingur hafði spilað þarna og lið með mikla sögu,“ segir Martin. Hann fékk strax stórt hlutverk hjá liðinu, var ætlað að leika bæði sem leikstjórnandi og skot- bakvörður, sem hann var þó ekki eins vanur. Liðið spilar í 15 þúsund manna höll sem er full á stórum leikjum liðsins, þegar liðið spilar í úrslitakeppni eða Bayern München kemur í heimsókn. „Ég vil spila í EuroLeague með bestu liðum í Evrópu,“ sagði Martin í viðtali fyrir heimildarmynd Bjarts Sigurðssonar um kapp- ann sem kom út árið 2017. „Það halda örugg- lega margir að ég sé klikkaður en síðan ég var ungur hef ég alltaf haft bilað sjálfstraust. Mig dreymir um að komast í þessi stóru lið.“ Á síðasta tímabili spilaði Martin loks í Euro- League, þar sem öll sterkustu lið Evrópu mæta til leiks. Hvernig var tilfinningin að komast loksins í EuroLeague? „Hún var geggjuð. Þegar ég skrifa undir hjá Alba eru þeir í EuroCup, keppninni fyrir neð- an. Á sama tíma var ég með tilboð frá Euro- League-liði og umboðsmanninum fannst ég klikkaður að taka því ekki. En mér fannst ég þurfa að fara í lið þar sem ég myndi venjast því að spila tvo, þrjá leiki í viku. Ég vissi að ef við lentum í efstu tveimur sæt- unum færum við í EuroLeague árið eftir og þess vegna gerði ég tveggja ára samning. Fyrsti EuroLeague-leikurinn var geggjaður; ég fæ ennþá gæsahúð þegar ég hugsa um hann. Maður var samt fljótur að gleyma að maður væri á þessu sviði. Maður er það klikk- aður að mér fannst bara eðlilegt að vera þarna. Sem er náttúrlega galið.“ Þegar komið var til Berlínar var mun meira um ferðalög og leiki hjá Martin enda tveir eða þrír leikir í viku í stað eins í Frakklandi. Martin tekur dæmi: „Ég fer kannski til Rússlands á mánudegi, spila á þriðjudegi; flýg yfir til Spán- ar á miðvikudegi, spila á fimmtudegi; fer til Þýskalands á föstudegi og spila á laugardegi. Ég held að það skýri sig sjálft hvað þetta er gal- ið,“ segir Martin kíminn. „Það er miklu minna um æfingar og meira bara spilað. Ég veit ekki hvað ég eyddi miklum tíma í flugvél í vetur.“ Muna að stoppa og njóta Martin segir þó atvinnumannslífið nokkuð ljúft. „Núna eftir að ég kom til Þýskalands er Ljósmynd/EuroLeague Martin í leik með KR árið 2014. Morgunblaðið/Ómar Martin í leik í Euro- League með Alba Berlin.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.