Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.08.2020, Blaðsíða 18
Það var næs að komast í eigin eign af því að nú get-um við gert hvað sem við viljum við íbúðina semer skemmtilegt. Ég er svona aðeins fram-
kvæmdaglaðari heldur en Árni,“ segir Ingibjörg Sædís
þegar hún er spurð hvernig það sé að vera flutt í sína eig-
in íbúð. Áður en þau fluttu í Skipasundið bjuggu þau í um
40 fermetra íbúð í húsi foreldra Árna.
„Þau bjuggu til íbúð og þar fékk ég prinsessan að ráða
hvernig allt væri, hannaði eldhúsið og svona. Þá fékk ég
nasaþefinn af því hvernig það er að búa til sitt eigið,“
segir Ingibjörg og segir það ferli hafa gert sig enn
spenntari fyrir að kaupa sína eigin íbúð.
Ingibjörg Sædís flutti fyrst að heiman þegar hún var
16 ára og segir hún að stíllinn hafi breyst síðan þótt hún
sé enn mikið í því kaupa notað en hún er sérstaklega veik
fyrir öllu sem er retró. Áhuga Ingibjargar Sædísar á
gömlum tískustraumum gætir ekki bara í húsgögnum en
nýlega flísalögðu þau Árni sjálf eldhúsið með taflflísum.
Ingibjörg segist hafa pælt í því að fá sér gráar flísar eins
og er í tísku í dag en að lokum komist að því að það væri
betra að kaupa eitthvað sem er hennar stíll.
Kærustuparið flísalagði eldhúsið sjálft. Ingibjörg Sæ-
dís er ánægð með afraksturinn en segir að fagmenn
hefðu líklega flísalagt betur.
„Þetta hefði klárlega verið betur gert hefði vanur ein-
staklingur gert þetta. Þetta er ekki fullkomlega jafnt á
öllum stöðum. Ef það kæmi múrari í heimsókn þá myndi
hann örugglega hlæja en þetta lítur ágætlega út.“
Í eldhúsinu má einnig sjá fleiri merki um retróáhuga
Ingibjargar Sædísar. Hún málaði eldhúsið myntugrænt
og upp á eldhússkápnum má sjá gamaldags vigt í sama
lit. Auk þess að mála og flísaleggja lakkaði Ingibjörg Sæ-
dís innréttinguna í eldhúsinu og er hún ekki frá því að
það sé skemmtilegra að vera í eldhúsinu eftir að hún
gerði það upp.
Hugmyndauðgi er eitt sem einkennir íbúðina en ljósa-
krónuna í stofunni gerði Ingibjörg sjálf. Hún fór í Bau-
haus og keypti grind sem hún málaði svarta. Hugmyndin
var að hafa plöntur hangandi í henni en vegna ljósleysis
virkaði það ekki og hanga því nú perur og diskókúla í
grindinni.
Gulur litur er áberandi í íbúðinni en hún ákvað að mála
rör og ofna í eins áberandi lit og hún gat fundið.
„Vinur minn keypti íbúð stuttu áður en við keyptum og
hann var með eitthvert pínulítið rör í íbúðinni sinni sem
hann gerði svo mikið mál úr og þurfti að fela. Ég hugsaði
að þetta væri bara lítið rör, þetta er ekki svona mikið
mál. Svo keypti ég íbúð með miklu fleiri og stærri rörum
svo ég eiginlega gerði þetta til að stríða honum en svo
fannst mér þetta bara flott. Ég keypti mest áberandi lit
sem ég fann og málaði með honum. Þessi litur er líka
skemmtilegur við sófann. Við fengum sófasettið á tíu
þúsund kall á nytjamarkaði og það er grænt.“
Ingibjörg Sædís heldur mikið upp á listaverkin á
heimilinu. Mörg þeirra eru eftir fólk sem hún þekkir og
kannast við og þykir vænt um. Ljóðabækurnar á heim-
ilinu eru líka í miklu uppáhaldi. Henni finnst einnig gott
að vera inni í stofu þar sem hún segir mikið líf meðal ann-
ars vegna plantnanna. Hún ver líka miklum tíma í eld-
húsinu þar sem hún hlustar á tónlist og eldar eða bakar.
Ingibjörg Sædís segir að íbúðin hafi verið í góðu ásig-
komulagi þegar þau fluttu inn en þau hafi þó séð mikla
möguleika og hafa verið að breyta smátt og smátt. Hún
segir að það hefði verið þeim ofviða fjárhagslega að fara í
eina stóra framkvæmd þegar þau fluttu inn. Fram-
kvæmdum er því hvergi nærri lokið og stefna þau Ingi-
björg Sædís og Árni meðal annars á að skipta svefn-
herberginu í tvennt og gera fataherbergi í dimmari
endanum.
Ingibjörg Sædís tekur mikið af myndum og á
gamlar myndavélar sem keyptar voru erlendis.
Það besta við að eiga
íbúð er að geta gert allt
sem hugurinn girnist
Í notalegri íbúð í Skipasundi hefur kærustuparið Ingibjörg Sædís og Árni Sigur-
jónsson komið sér smekklega fyrir ásamt tveimur hundum. Íbúðin er fyrsta eign
þeirra og hafa þau frá árinu 2018 verið að breyta og bæta á skemmtilegan hátt.
Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is
Hér má sjá heimagerða ljósakrónu eftir húsmóðurina. Í ljósakrónunni hangir
diskókúla sem getur skapað miklu meira fjör ef þess þarf.
Skemmti-
legt origami
í glugganum. Dýr er að finna víðs vegar á heimil-
inu. Þessi risaeðla er blómapottur.
Ingibjörg við fallegt veggfóður en fyrir framan hana er
ljósakróna sem hún föndraði sjálf.
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.8. 2020
LÍFSSTÍLL
Reykjavík
Bíldshöfði 20
Akureyri
Dalsbraut 1
www.husgagnahollin.is
558 1100
11 – 18 virka daga
11 – 17 laugardaga
13 – 17 sunnudaga
11 – 18 virka daga
11 – 16 laugardaga
Ísafjörður
Skeiði 1
5 DAGA
TAXFREE