Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.08.2020, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.8. 2020
LÍFSSTÍLL
samflot
L augarnar í Rey k jav í k
w w w. i t r. i s
Miðvikudagskvöld í sumarkl. 20–21
Sundhöll Tónleikaflotmeðneðansjávartónlist
Árbæjarlaug Flotmeð tónheilun
Vesturbæjarlaug Vatnadansog flot
Breiðholtslaug Flotmeð jóga
Ylströnd Rósabaðog samflot
15. júlí
22. júlí
29. júlí
5. ágúst
15. ágúst
Nafnið Jesse Owens bar fyrstá góma í íslenskum dag-blöðum sumarið 1935 en
Nýja Dagblaðið fjallaði þá um hann á
forsíðu undir fyrirsögninni „Afburða
íþróttamaður“. Þar sagði orðrétt:
„Sunnudaginn 26. maí setti Jesse
Owens, ungur Ameríkunegri, há-
skólastúdent og framúrskarandi
íþróttamaður, heimsmet í langstökki,
er hann stökk 8.13 metra. Fyrra met-
ið átti Japaninn Nambu, 7.975 metra.
En Owens lét sér þetta ekki nægja,
heldur setti hann þegar annað heims-
met og nú á 220 yards skeiði. Rann
hann skeiðið á 20.3 sekúndum, og þá
3/10 úr sekúndu skjótar en nokkru
sinni áður. Og til þess að gera þetta
ekki endasleppt, snart hann tvö önn-
ur heimsmet, allt sama daginn.“
Morgunblaðið fjallaði einnig um
málið daginn eftir og sagði heimsmet
Owens í langstökki „framúrskarandi
glæsilegt“.
Rann skeiðið á 10.2 sek.
Íþróttaáhugamenn hafa því mögu-
lega kannast við nafnið þegar Ólymp-
íueldurinn var tendraður í Berlín í
ágústbyrjun 1936. Vísir flutti frétt af
fyrsta gulli Owens á leikunum og var
hennar aflað með einkaskeyti frá
Kaupmannahöfn. Þar sagði:
„Enginn Íslendingur tók þátt i
Olympisku leikunum í dag. Í 100
metra hlaupinu fór Sveinn Ingvars-
son þegar halloka í undirbúnings-
hlaupi. — Sigurvegari varð þar svert-
inginn Jesse Owens, sem rann skeiðið
á 10.2 sek og setti nýtt heimsmet.“
Vísir sagði einnig frá gull-
verðlaunum Owens í langstökki og
200 metra hlaupi. „Bandaríkjanegr-
inn, Jesse Owens, setti enn nýtt met á
Olympiuleikunum í gær, er hann
stökk 8,06 metra í langstökki. Þýskur
maður var næstur honum, en Japani
þriðji,“ sagði um langstökkið.
Ítarlegri grein var gerð fyrir 200
metra hlaupinu enda spennan mikil.
Heimildin kom að þessu sinni gegn-
um Lundúnir. „Bandaríkja sverting-
inn, Jesse Owens, vann úrslitasigur í
dag í 200 metra hlaupi, og rann hann
skeiðið á 20.7 sekúndum. Er þetta
þriðji úrslitasigur hans á Olymp-
íuleikunum, en sjöunda met hans.
Næstur honum varð Robinson,
Bandaríkjamaður, og rann hann
skeiðið á 21.1 sekúndu, og náði þann-
ig meti því er Owens setti í gær. Það
er í frásögur fært, að Owens hafi
hlaupið afar rösklega af stað, og þeg-
ar hann hafði hlaupið 50 metra, féll
óvenjuleg þögn yfir áhorfendur, með
því að auðséð var að Robinson lagði
sig ógurlega fram um að ná honum.“
Glæsilegasti
íþróttamaðurinn
Morgunblaðið hermdi af fjórðu gull-
verðlaunum Owens, í 4x100 metra
hlaupi og voru upplýsingarnar fengn-
ar frá „frjettaritara vorum í Berlín“.
„Í Olympisku leikunum í dag fór fram
fyrsta keppni í 4 sinnum 100 metra
boðhlaupi. Bandaríkjahlaupararnir
voru fyrstir á 3 mínútum, og er það
18,2 sekúndum skemri tími en fyrra
Olympíumet. — Sænskir hlauparar
voru aðrir í röðinni, á 3 mín., 14,6
sek., næstir Bretar, og þá Frakkar.
Jesse Owens sem áður hefir getið
sjer svo mikla frægð í Olympileik-
unum, er einn af Bandaríkjahlaup-
urunum.“
Í sömu frétt kom fram að sund-
flokkur Íslendinga hefði tapað fyrir
„Svissum“ með sjö mörkum á móti
einu. En það er allt önnur saga.
Morgunblaðið gerði afrek Owens
betur upp að leikunum loknum og
kom þar fram að öllum bæri saman
um að hann væri „glæsilegasti
íþróttamaðurinn á Olympíuleik-
unum“. „Hann er Bandaríkjamaður
og fyrstu fjóra daga leikanna vann
hann þrjá gullpeninga, þ.e. hann var
sigurvegari í þrem íþróttagreinum.“
Sérstaklega var vikið að langstökk-
inu.
„Á þriðja degi setti hann nýtt Ol-
ympíumet í langstökki og stökk 8.06
metra. Olympíumetið var áður 7.73
m. Strax í fyrsta stökkinu stökk.
Owens 7.74 m. og tók forustuna með
nýju meti. Næst stökk hann 7.87 m.
Fimm mínútum síðar stökk Þjóðverj-
inn Long 7.84 m. og ætlaði fagn-
aðarlátunum af áhorfendapöllunum
þá aldrei að linna; hann var ekki
nema 3 cm. á eftir svertingjanum. Í
fimtu umferð náði Long svertingj-
anum, stökk nákvæmlega 7.87 m.
Áhorfendurnir grjetu af fögnuði.
Blaðamennirnir voru forviða og
góndu. Aðeins einn maður misti ekki
taumhald á sjálfum sjer – Owens.
Hann flýtti sjer til Þjóðverjans og tók
í hendina á honum. Síðan bjó hann sig
undir að stökkva og áhorfendur
hjeldu niðri í sjer andanum af eft-
irvæntingu. Owens stökk – og kom
niður ekki fjarri 8 metra markinu.
Stökkið var mælt: 7.94 m. Owens
stökk einu sinni enn. Þegar hann rak
niður fæturna í sandgryfjuna dundu
samstundis við óhemju fagnaðarlæti.
Áhorfendur höfðu sjeð, að nýtt glæsi-
legt met var sett. Skömmu síðar til-
kynti kallarinn að Owens hefði stokk-
ið 8.06 m.“
Afsannaði kynþátta-
kenninguna
Rauði fáninn, málgagn verkalýðs-
æsku bæja og sveita, fjallaði ítarlega
um ævi og feril Jesse Owens um
haustið og þar sagði meðal annars:
„Hinir nasistisku „Ólymps-
skipuleggjendur vildu umfram allt
gera leikana að sigurför „aríanna“;
umfram allt „sanna“ kynþáttadelluna
um yfirburði þeirra yfir aðra menn.
En leikarnir fóru á annan veg! Þeir
afsönnuðu kynþáttakenninguna ger-
samlega. Og það er negrastrákurinn
Jesse Owens, sveitadrengurinn, skó-
burstarinn, lyftudrengurinn, blaðsal-
inn, garðyrkjumaðurinn, dyravörð-
urinn og stúdentinn, sem á heiðurinn
af því!“
Og enn fremur:
„Árangurslaust reyndu Nas-
istablöðin að deyfa hrifninguna yfir
Jesse. Hann var orðinn uppáhald
allra, hvar sem hann kom í Berlín. –
Kynþáttagrýla Hitlers verkaði ekki
meir á fólkið heldur en grýlusaga á ís-
lenska nútímamenn. Afrek Jesse og
hinna svörtu félaga hans höfðu ger-
samlega ónýtt Ólympsfyrirætlanir
Nasista á sviði kynþátta-„kenning-
arinnar“.“
Kvað niður kynþáttagrýlu Hitlers
Jesse Owens í 200
metra hlaupinu á Ól-
ympíuleikunum í Berlín.
AP
Bandaríkjamaðurinn
Jesse Owens stal sem
frægt er senunni á
Sumarólympíuleik-
unum í Berlín 1936, þar
sem hann vann gull í
fjórum greinum. Afrek-
ið fór ekki fram hjá fjöl-
miðlum hér í fásinninu.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is