Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.08.2020, Qupperneq 32
SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 2020
STAN model 3035
L 170 cm Leður ct. 10 Verð 369.000,-
L 206 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
DUCA model 2959
L 215 cm Áklæði ct. 70 Verð 369.000,-
L 215 cm Leður ct. 10 Verð 529.000,-
ESTRO model 3042
L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 279.000,-
L 198 cm Leður ct. 10 Verð 379.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
JEREMY model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 70 Verð 449.000,-
L 202 cm Leður ct. 25 Verð 669.000,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur
(meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði.
GOLF model 2945
L 216 cm Áklæði ct. 70 Verð 259.000,-
L 216 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,-
„Þetta er Covid-verkefni mitt og hljómsveitarinnar
minnar, The SP74,“ segir söngkonan Una Stef um nýja
lagið, Tunglið, tunglið taktu mig, sem kom út í vikunni og
er aðgengilegt á Spotify. „Lagið er eftir pabba minn og
Theódóru Thoroddsen og ég hef ætlað mér að gera nýja
útsetningu í tíu ár eða svo. Covid var svo bara rétti tím-
inn til að leggjast yfir þetta verkefni. Ég get alveg viður-
kennt að ég var logandi hrædd enda gefur pabbi aldrei
neinn afslátt,“ bætir hún við hlæjandi en lagið kom upp-
haflega út árið 1978 með Ljósunum í bænum.
Það er Elvar Bragi Kristjónsson, trompetleikari The
SP74, sem á heiðurinn af útsetningunni og Una segir það
hafa verið viðhöfn þegar faðir hennar fékk að heyra af-
raksturinn. „Ég hellti upp á kaffi og var með hjartað í
buxunum en hann varð strax bara mjög ánægður.“
Una segir móður sína hafa stungið upp á því að hún
tæki frekar annan frægan slagara eftir föður sinn, Disco
Frisco, en sjálfri þótti henni Tunglið henta betur en þess
má geta að Stefán var aðeins sextán ára þegar hann
samdi lagið. „Þetta yndislega lag hefur verið hluti af mér
allt mitt líf, svo að segja, og það er virkilega ánægjulegt
að geta gefið því nýtt líf.“
Unu þykir vel við hæfi að vinna svona persónulegt
verkefni á þessum viðkvæmu tímum. „Það leit allt vel út
snemma á árinu, mikið að gera og hljómsveitin að fara að
spila erlendis. Því var svo öllu aflýst. Framhaldið er auð-
vitað alveg óljóst en sem betur fer hef ég nóg að gera við
að semja, bæði fyrir mig og aðra. Maður er svo sem van-
ur afkomukvíðanum, hafandi valið þetta fag, en við get-
um huggað okkur við að þetta er tímabundið ástand. Og
tónlistin hefur líklega aldrei skipt meira máli og gaman
verður að sjá hvað kemur út úr þessu skrýtna ástandi.“
Með hjartað í buxunum
Söngkonan Una Stef sendi í vikunni frá sér lagið Tunglið, tunglið taktu mig
sem er eftir föður hennar, Stefán S. Stefánsson, og kom upphaflega út 1978.
Una Stef kveðst hafa verið með hjartað í buxunum þegar
hún spilaði nýju útgáfuna í fyrsta sinn fyrir föður sinn.
Ljósmynd/Birta Rán Björgvinsdóttir
„Laugardalsvöllurinn varð á
sunnudaginn vettvangur íþrótta-
afreks, sem vekja mun heims-
athygli,“ stóð í frétt á forsíðu
Morgunblaðsins, þriðjudaginn 9.
ágúst 1960. „Í þrístökkskeppni
Meistaramóts Íslands í frjáls-
íþróttum stökk Vilhjálmur Ein-
arsson 16.70 m í þrístökki. Það
afrek er annað bezta þrístökks-
afrek sem íþróttasagan getur
um.“
Enn fremur sagði í fréttinni:
„Þar til á föstudaginn hefði þessi
árangur Vilhjálms verið jafn
staðfestu heimsmeti í greininni,
sem Rússinn Fedosojev átti. En á
föstudaginn stökk Pólverjinn Jos-
ef Schmidt 17.03 m, og er ekki
vitað annað um það afrek en
það verði staðfest sem heims-
met.“
Að sögn blaðsins samsvaraði
stökkið samkvæmt stigatöflu
frjálsíþróttanna 19,30 m í kúlu-
varpi, 62 m í kringlukasti, 2,17 m
í hástökki, 8,37 m í langstökki,
4,89 m í stangarstökki, 9,8 sek. í
100 m hlaupi, 19,7 sek. í 200 m
hlaupi, 3:36,0 í 1500 m hlaupi og
13,1 sek. í 110 m grindahlaupi.
„Stórkostlegt afrek, sem allar
milljónaþjóðir yrðu stoltar af.“
GAMLA FRÉTTIN
Stórkost-
legt afrek
Fram hjá öllum merkjum, 15 m, 16 m, flaug Vilhjálmur Einarsson á Laug-
ardalsvellinum í ágúst 1960 og stökkið mældist 16,70 metrar.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Johnny Depp
kvikmyndaleikari
Björn Ingi Hrafnsson
ritstjóri Viljans
Jónas Sen
tónlistarmaður og -gagnrýnandi