Morgunblaðið - 20.10.2020, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 20.10.2020, Blaðsíða 9
220 km á hleðslunni, sem er með því minnsta sem gerist hjá rafmagnsbílum nú orðið. Og sjálfsagt er drægið merkjanlega styttra yfir veturinn þegar menn kynda miðstöðina dug- lega. Það er algerlega boðlegt innanbæjar en ekki til langferða út á land, þar sem ekki er alls staðar hægt að komast í hraðhleðslu. En það er bara eins og það er, Honda ákvað að búa til borgarbíl, og það kallar ekki á stór- eflis rafhlöðu. Það gefur bílnum líka ýmsa aðra eiginleika, hann liggur lágt og fólk finnur ekki fyrir háum rafhlöðubotni eins og í sumum rafbílum, hann er „aðeins“ rúm 1.500 kg, sem þykir ekki verulegt með rafbílum en er meira en maður á að venjast af ekki stærrri bíl. Fleira gerir Hondu e að frábærum borgar- bíl. Hann er afturhjóladrifinn og beygju- radíusinn eins og á Lundúnataxa. Vélin í hon- um er mjög spræk og fljót upp, en er líka mjög vel tempruð, þannig að hann er næmur þegar stigið er á pedalann, en ekki of næmur. Honda e kemur í tveimur gerðum, „e“ og „e Advance“, en munurinn felst aðallega í aflinu. Yðar einlægur fékk Advance til reynslu hjá Öskju, sem er með 154 hestafla vél, en grunn- gerðin er með 136 hestöfl. Sannast sagna eru 154 hestöfl miklu meira en nóg, svo það eru sjálfsagt nokkru betri kaup í grunngerðinni. Jú, það fylgir fleira Advance-gerðinni, en samt er staðalútbúnaður beggja gerða svo vel úti- látinn, að það er ekki víst að fólk sakni neins í grunngerðinni. Það er eitthvað sem fólk ætti að velta fyrir sér, því það munar um 300.000 kr. á þessum tveimur gerðum af Hondu e. Og það er ekki heldur hægt að horfa fram hjá því, að Honda e er ekki ódýr bíll af borgarbíl að vera, byrjar í 4.390.000 kr. Það er ekki vegna þess að þetta sé ekki gott verð, það er bara ekki lágt verð. Af því að Hondu e er ekki ætlað að vera ódýr bíll. Nei, allt við hann ber með sér að þetta sé bíll sem fólki eigi að þykja vænt um, þyki þægilegur og umfram allt skemmtilegur. Og það er hann svikalaust allt. Eins og minnst var á hér að framan tekur fólk eftir þessum bíl á götu, hann hefur sér- stakt yfirbragð og góða hönnun. Að því leyti til höfðar hann sjálfsagt til svipaðs kaup- endahóps og gæti hugsað sér rafmagnsútgáf- una af Fiat 500 eða Mini, vill eiga sérstakan og praktískan bíl, þar sem áhersla er lögð á hönnun, gæði og skemmtilega aksturseig- inleika. Það fólk ætti tvímælaust að gefa Hondu e gaum. Jú, hann er kannski skamm- drægur og í dýrara lagi, en hann er hugsaður fyrir borgarbúa með góðan smekk. Þetta er sprækur bíll, með nóg af hestöflum og fínu togi (315 Nm). Og af því að hann er þungur, þá steinliggur hann, líka í beygjum. Fyrir vikið er hann beinlínis sportlegur í akstri, en mjög öruggur líka. Hann er með sjálfstæða fjöðrun á öllum, sem sakar ekki heldur og gerir bílinn veigameiri í akstri en stærðin segir til um. Það er enginn vandi að þræða bílinn um þrönga stíga Grjótaþorpsins og hann gaf ekki heldur neitt eftir á frekar lélegum og bugð- óttum malarvegi. Þrátt fyrir að hann sé ekki gerður fyrir langferðir, þá var Honda e þræl- fínn á Keflavíkurveginum líka, en drægið sem fyrr segir takmarkað, sérstaklega ef bílnum er haldið uppi við hraðatakmarkið. Í stuttu máli sagt, einstaklega skemmti- legur bíll í akstri og það er nú einhvers virði. Myndavélar í stað spegla Það á líka við akstursrýmið. Það er aðsniðið, en ekki þröngt. Það er líka nýstárlegt um sumt, fyrst og fremst hvað varðar skjámæla- borðið, sem gefur marga möguleika, en er samt ekki óþarflega flókið. Þar kemur einn stakur snúningstakki líka sterkur inn. Á Hondu e eru ekki hliðarspeglar, heldur eru myndavélar staðalbúnaður og yst sitt hvorum megin eru sérstakir skjáir sem gefa manni mynd af því sem er fyrir aftan. Þeir skjáir eru hárrétt staðsettir og venjast miklu fyrr heldur en maður gæti óttast. Og gott bet- ur, því þeir gefa betri mynd en speglar gerðu við léleg birtuskilyrði. Baksýnisspegillinn er líka skjár og svo er bakkmyndavél og ýmsar myndavélar aðrar sem koma sér vel. Tölvu- tæknin gerir þá svo enn betri, því það má t.d. fá upp tilbúna mynd sem virðist tekin eins og 5 m fyrir ofan hann til þess að átta sig á af- stöðu í þröngu stæði. Og þegar bakkað er út úr stæði er engu líkara en að bíllinn „sjái“ fyr- ir horn. Mjög til fyrirmyndar allt. Svo er hann auðvitað með hleðslutengjum fyrir síma, CarPlay og allt bullið. Það er meira að segja hægt að hafa hann nettengdan svo farþeg- arnir tengist WiFi meðan þeir eru í honum. Eitt enn, sem nefna þarf, er að bíllinn er ótrúlega hljóðlátur. Ekki aðeins þannig að lítið heyrist í vélinni út á við, heldur er varla að menn taki eftir henni, vindi eða veghljóði í akstri. Svo er Honda e peninganna virði? Ef dræg- ið truflar fólk ekki, ef það er í alvöru að leita að borgarbíl sem það ætlar að nota þannig, þá er hann það. Hann er ekki ódýr, en þetta er ekki heldur nein dós, heldur alvörubíll með frábæra eiginleika. Með tilvísun til fortíðar í útliti, en vísar um allt annað til framtíðar. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Umfram allt er Honda e fallega hannaður og snotur bíll með frábæra aksturseiginleika. MORGUNBLAÐIÐ | 9 » 113 kW með 35,5 Kws rafhlöðu » Sjálfskiptur » Afturdrifinn » 154 hö / 315 Nm » 0-100 km/klst. á 8,3 sek. » Hámarkshraði 150 km/klst. » 0 g/km CO2 » 14,7 kWst / 100 km » Eigin þyngd 1.518 kg » 171 l farangursrými » Umboð: Askja » Grunnverð 4.690.000 kr. Honda e Advanced Mælaborðið í Honda e er æði nýstárlegt, en kemur vel út. Það er ekki mikið farangursrými aftur í en dugar fyrir innkaupin, skólatöskur og ámóta. Aftursætin henta eiginlega bara börnum. Hliðarmyndavélarnar eru með miklu minni vindmótstöðu en speglar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.