Morgunblaðið - 20.10.2020, Qupperneq 9
220 km á hleðslunni, sem er með því minnsta
sem gerist hjá rafmagnsbílum nú orðið. Og
sjálfsagt er drægið merkjanlega styttra yfir
veturinn þegar menn kynda miðstöðina dug-
lega. Það er algerlega boðlegt innanbæjar en
ekki til langferða út á land, þar sem ekki er
alls staðar hægt að komast í hraðhleðslu.
En það er bara eins og það er, Honda ákvað
að búa til borgarbíl, og það kallar ekki á stór-
eflis rafhlöðu. Það gefur bílnum líka ýmsa
aðra eiginleika, hann liggur lágt og fólk finnur
ekki fyrir háum rafhlöðubotni eins og í sumum
rafbílum, hann er „aðeins“ rúm 1.500 kg, sem
þykir ekki verulegt með rafbílum en er meira
en maður á að venjast af ekki stærrri bíl.
Fleira gerir Hondu e að frábærum borgar-
bíl. Hann er afturhjóladrifinn og beygju-
radíusinn eins og á Lundúnataxa. Vélin í hon-
um er mjög spræk og fljót upp, en er líka
mjög vel tempruð, þannig að hann er næmur
þegar stigið er á pedalann, en ekki of næmur.
Honda e kemur í tveimur gerðum, „e“ og „e
Advance“, en munurinn felst aðallega í aflinu.
Yðar einlægur fékk Advance til reynslu hjá
Öskju, sem er með 154 hestafla vél, en grunn-
gerðin er með 136 hestöfl. Sannast sagna eru
154 hestöfl miklu meira en nóg, svo það eru
sjálfsagt nokkru betri kaup í grunngerðinni.
Jú, það fylgir fleira Advance-gerðinni, en samt
er staðalútbúnaður beggja gerða svo vel úti-
látinn, að það er ekki víst að fólk sakni neins í
grunngerðinni.
Það er eitthvað sem fólk ætti að velta fyrir
sér, því það munar um 300.000 kr. á þessum
tveimur gerðum af Hondu e. Og það er ekki
heldur hægt að horfa fram hjá því, að Honda e
er ekki ódýr bíll af borgarbíl að vera, byrjar í
4.390.000 kr.
Það er ekki vegna þess að þetta sé ekki gott
verð, það er bara ekki lágt verð. Af því að
Hondu e er ekki ætlað að vera ódýr bíll. Nei,
allt við hann ber með sér að þetta sé bíll sem
fólki eigi að þykja vænt um, þyki þægilegur og
umfram allt skemmtilegur. Og það er hann
svikalaust allt.
Eins og minnst var á hér að framan tekur
fólk eftir þessum bíl á götu, hann hefur sér-
stakt yfirbragð og góða hönnun. Að því leyti
til höfðar hann sjálfsagt til svipaðs kaup-
endahóps og gæti hugsað sér rafmagnsútgáf-
una af Fiat 500 eða Mini, vill eiga sérstakan og
praktískan bíl, þar sem áhersla er lögð á
hönnun, gæði og skemmtilega aksturseig-
inleika. Það fólk ætti tvímælaust að gefa
Hondu e gaum. Jú, hann er kannski skamm-
drægur og í dýrara lagi, en hann er hugsaður
fyrir borgarbúa með góðan smekk.
Þetta er sprækur bíll, með nóg af hestöflum
og fínu togi (315 Nm). Og af því að hann er
þungur, þá steinliggur hann, líka í beygjum.
Fyrir vikið er hann beinlínis sportlegur í
akstri, en mjög öruggur líka. Hann er með
sjálfstæða fjöðrun á öllum, sem sakar ekki
heldur og gerir bílinn veigameiri í akstri en
stærðin segir til um.
Það er enginn vandi að þræða bílinn um
þrönga stíga Grjótaþorpsins og hann gaf ekki
heldur neitt eftir á frekar lélegum og bugð-
óttum malarvegi. Þrátt fyrir að hann sé ekki
gerður fyrir langferðir, þá var Honda e þræl-
fínn á Keflavíkurveginum líka, en drægið sem
fyrr segir takmarkað, sérstaklega ef bílnum er
haldið uppi við hraðatakmarkið.
Í stuttu máli sagt, einstaklega skemmti-
legur bíll í akstri og það er nú einhvers virði.
Myndavélar í stað spegla
Það á líka við akstursrýmið. Það er aðsniðið,
en ekki þröngt. Það er líka nýstárlegt um
sumt, fyrst og fremst hvað varðar skjámæla-
borðið, sem gefur marga möguleika, en er
samt ekki óþarflega flókið. Þar kemur einn
stakur snúningstakki líka sterkur inn.
Á Hondu e eru ekki hliðarspeglar, heldur
eru myndavélar staðalbúnaður og yst sitt
hvorum megin eru sérstakir skjáir sem gefa
manni mynd af því sem er fyrir aftan. Þeir
skjáir eru hárrétt staðsettir og venjast miklu
fyrr heldur en maður gæti óttast. Og gott bet-
ur, því þeir gefa betri mynd en speglar gerðu
við léleg birtuskilyrði. Baksýnisspegillinn er
líka skjár og svo er bakkmyndavél og ýmsar
myndavélar aðrar sem koma sér vel. Tölvu-
tæknin gerir þá svo enn betri, því það má t.d.
fá upp tilbúna mynd sem virðist tekin eins og
5 m fyrir ofan hann til þess að átta sig á af-
stöðu í þröngu stæði. Og þegar bakkað er út
úr stæði er engu líkara en að bíllinn „sjái“ fyr-
ir horn. Mjög til fyrirmyndar allt. Svo er hann
auðvitað með hleðslutengjum fyrir síma,
CarPlay og allt bullið. Það er meira að segja
hægt að hafa hann nettengdan svo farþeg-
arnir tengist WiFi meðan þeir eru í honum.
Eitt enn, sem nefna þarf, er að bíllinn er
ótrúlega hljóðlátur. Ekki aðeins þannig að lítið
heyrist í vélinni út á við, heldur er varla að
menn taki eftir henni, vindi eða veghljóði í
akstri.
Svo er Honda e peninganna virði? Ef dræg-
ið truflar fólk ekki, ef það er í alvöru að leita
að borgarbíl sem það ætlar að nota þannig, þá
er hann það. Hann er ekki ódýr, en þetta er
ekki heldur nein dós, heldur alvörubíll með
frábæra eiginleika. Með tilvísun til fortíðar í
útliti, en vísar um allt annað til framtíðar.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Umfram allt er Honda e
fallega hannaður og
snotur bíll með frábæra
aksturseiginleika.
MORGUNBLAÐIÐ | 9
» 113 kW með 35,5 Kws rafhlöðu
» Sjálfskiptur
» Afturdrifinn
» 154 hö / 315 Nm
» 0-100 km/klst. á 8,3 sek.
» Hámarkshraði 150 km/klst.
» 0 g/km CO2
» 14,7 kWst / 100 km
» Eigin þyngd 1.518 kg
» 171 l farangursrými
» Umboð: Askja
» Grunnverð 4.690.000 kr.
Honda e
Advanced
Mælaborðið í Honda e er æði nýstárlegt, en kemur vel út.
Það er ekki mikið farangursrými aftur í en dugar fyrir innkaupin, skólatöskur og ámóta. Aftursætin henta eiginlega bara börnum.
Hliðarmyndavélarnar eru með miklu minni vindmótstöðu en speglar.