Bæjarins besta


Bæjarins besta - 09.01.1991, Qupperneq 4

Bæjarins besta - 09.01.1991, Qupperneq 4
4 BÆJARINS BESTIA Seljalandsdalur: Skíðasvæðið opnað almenningi BÆJAMSBESR Óháð vikublað á Vestfjörðum Útgefandi: H-prent hf. Sólgata 9, ísafjörður ® 4560 Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson a 94-4277 & 985-25362 Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson S 94-4101 & 985-31062 Blaðamaður: Sigurjón J. Sigurðsson S 94-4277 & 985-25362 Útgáfudagur: Miðvikudagur Upplag: 3800 eintök Ritstjórnarskrifstofa og auglýsingamóttaka: Að Sólgötu 9 ® 94-4570 Fax S 4564 Setning, umbrot og prentun: H-prent hf. BÆJARINS BHSTA er aðUi að samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða og upplagseftirliti Verslunarráðs. Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annars efnis er óheimil nema heimilda sé getið. &KÍÐASVÆÐIÐ á Selja- ándsdal verður að öllum líkindum opnað almenningi í næstu viku. Frekar lítill snjór mun vera á Dalnum þrátt fyrir mikið fannfergi að undanförnu og kenna menn því um að ekki hefur verið SLIPPSTÖÐIN á Akur- eyri hefur ákveðið að gefa Menntaskólanum á ísa- firði vélarrúmslíkan, til notkunar við kennslu í vél- stjórnarfræðum. Er þetta í annað skiptið sem Slippstöðin gefur slíka gjöf en áður hefur Verk- menntaskólinn á Akureyri fengið vélarrúmslíkan. Líkanið mun verða afhent forráðamönnum skólans við hægt að troða snjóinn jafn- óðum þar sem snjótroðari svæðisins hefur verið úr leik að undanförnu vegna við- halds. Hafsteinn Ingólfsson um- sjónarmaður skíðasvæðisins á Seljalandsdal sagði í sam- hátíðlega athöfn innan tíðar. Að sögn kunnugra er hér um stórgjöf að ræða sem á eftir tali við blaðið að nú stæði yfir umfangsmikið viðhald á snjótroðara svæðisins sem lyki að öllum líkindum á helginni og ætti troðarinn að vera tilbúinn í slaginn í byrj- un næstu viku. f>á fyrst væri hægt að segja til um hvernig að hjálpa mjög til við kennslu í vélstjórnarfræðum. -s. snjóalög væru og í hvernig ástandi Dalurinn væri. Þó yrði reynt að opna skíða- svæðið almenningi í næstu viku. ísafjörður: Fundur um sorg SAMTÖK um sorg og sorgarviðbrögð í ísa- fjarðarprófastdæmi halda fund á ísafirði í næstu viku. Fundurinn yerður hald- inn í safnaðarheimili ísa- fjarðarkirkju næstkom- andi þriðjudagskvöld 15. janúar og stendur frá kl. 20,30 til kl. 22.00. Allir eru velkomnir á fundinn. ísafjörður: Menntaskólinn fær góða gjöf - Slippstöðin á Akureyri hefur ákveðið að gefa skólan- um vélarrúmslíkan til notkunar við kennslu • Menntaskólinn á ísafirði. RITSTJÓRN Tvö núll Áratugur er síðan vitleysan í þjóðfélaginu var komin á það stig að ákveðið var að færa okkur nær raunveruleikanum með því að klippa tvö núll aftan af verðlausri krónu í trausti þess, að með verðmeiri peninga milli handa breyttist hugsunarháttur manna og verðmætamat. Hver er árangurinn? Hvar er nýkrónan? Þegar núllin fuku höfðu menn það í flimt- ingum, hvað orðið hefði af þeim. í nýkrónum náði gamli milljón króna glæsivagninn allt í einu ekki reiðhjólavirði í þeim gömlu talið. Það varð aftur pláss fyrir núllin í gömlu góðu sjóðsbókunum og reiknivélarnar, sem áttu ekki lengur stafafjölda fyrir alla summuna, urðu aftur nýtilegar. Fyrir núllklippinguna höfðum við bæði átt bréfkrónu og flotkrónu. Bréfkrónan var all nokkru fyrr á ferðinni og var helsti eiginleiki hennar að hún leystist upp í vatni. Hin krónan flaut aftur á móti á vatni, eins og nafnið bend- ir raunar til. Eftir á að hyggja hafa báðar krónurnar verið ágætlega í takt við tímann. Nýkrónan er að mestu týnd. Skýringin á hvarfi hennar gæti verið sú, að fyrir tíu árum var ekki búið að finna upp þjóðarsáttina og þá áttum við engann bjargvætt. Og kannske fór því sem fór. En þetta væri mikil einföldun. En, hvað varð um núllin sem við tókum aft- an af krónunni? Þegar litast er um í þjóðfélaginu gæti manni til hugar komið að núllunum tveimur sem krónan missti hefði verið bætt aftan við íbúa- fjölda landsins. Fjárfestingaræðið, bruðlið og oflátungshátturinn er slíkur, að ekki nokkrum heilvita manni dettur í hug að hér búi þjóð, sem er ekki fjölmennari en meðal sveitaþorp úti í hinum stóra heimi. Hvert sem litið er blasir vitleysan við. Af umfangi fjárfestinga mætti ætla að hér byggi tugmilljóna þjóð en ekki innan við 300 þús- und hræður. Það er ekki nokkrum vafa bundið hvar núll- in af gömlu krónunni lentu. Afleiðingarnar blasa við. Gjaldþrot „risafyrirtækjanna" segja sína sögu. Hvort sem við eigum eftir að standa í þeim sporum aftur að klippa aftan af krónunni eða ekki, ættu vítin að verða okkur til varnaðar. s.h.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.