Morgunblaðið - 30.12.2020, Page 21

Morgunblaðið - 30.12.2020, Page 21
DÆGRADVÖL 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2020 Axels og hann er því þriðji ættlið- urinn. „Foreldrar mínir komu inn í reksturinn 1977 og urðu eigendur 1998, og við Heiða komum inn í starfið 2006 og eigum núna stöðina með foreldrum mínum. Þegar for- eldrar mínir tóku við breyttu þau rekstrinum í blómaræktunarstöð, en áður var blönduð ræktun, bæði grænmeti og blóm. Við erum með 8.000 fermetra í blómarækt og framleiðum um tvær og hálfa millj- ón blóma á ári fyrir íslenskan markað. Við höfum verið í fjöl- breyttri ræktun, ekki bara með rósir eða liljur heldur erum við með margar tegundir af blómum og gerum okkar eigin blómavendi og virðisaukum þannig vöruna sem hefur tekist einstaklega vel og gef- ið okkur smá forskot inn á mark- aðinn.“ Axel selur mikið af blómum til stórmarkaða og segir að blóm séu orðin neysluvara í dag, en salan hafi aukist jafnt og þétt. „Við vor- um að stækka stöðina í sumar og ég held að það séu ennþá tækifæri á markaðnum að stækka og gera betur.“ Blómabóndinn er greinilega að gera eitthvað rétt því garðyrkju- stöðin Espiflöt hlaut landbún- aðarverðlaun Íslands fyrir árið 2020. Fjölskylda Eiginkona Axels er Heiða Pálrún Leifsdóttir, f. 21.8.1984, hjúkr- unarfræðingur og garðyrkjubóndi. Börn Axels og Heiðu eru Auðunn Torfi Sæland, f. 22.3. 2004; Lilja Björk Sæland, f. 26.4. 2007; Adda Sóley Sæland, f. 22.1. 2010 og Áki Hlynur Sæland, f. 29.3. 2015. Systkini Axels eru Eva Sæland, f. 4.10. 1978 og Ívar Sæland, f. 31.10. 1983. Foreldrar Axels eru hjónin Sveinn Auðunn Sæland, f. 29.10. 1954 og Áslaug Sveinbjarnardóttir, f. 25.7. 1956, garðyrkjufræðingar og meðeigendur Espiflatar ehf. Axel Sæland Sigrún Sigurðardóttir húsfreyja á Hofsstöðum íGarðabæ Gísli Jakobsson sjóm.og b.á Hofsstöðum íGarðabæ Sigríður Gísladóttir húsfr.og b.á Hofsstöðum íGarðabæ Sveinbjörn Jóhann Jóhannesson búfr.og b. á Hofsstöðum íGarðabæ Áslaug Sveinbjarnardóttir garðyrkjufræðingur á Espiflöt II Kristín Jóhannesdóttir húsfreyja í Fagradal á Hólsfjöllum Jóhannes Eyjólfsson bóndi í Fagradal á Hólsfjöllum Klara Ólafía Benediktsdóttir verkakona í Reykjavík Gústaf Sigurbjarnason vann hjá Pósti og síma í Reykjavík Hulda Sæland húsfr.og garðyrkjukona á Espiflöt I Eiríkur Ágúst Sæland garðyrkjufræðingur á Espiflöt I Sigríður Eiríksdóttir Sæland ljósmóðir í Hafnarfirði Stígur Sæland lögregluþjónn í Hafnarfirði Úr frændgarði Axels Sæland Sveinn Auðunn Sæland garðyrkjufræðingur á Espiflöt II „VIÐ FUNDUM MÁLVERKIÐ Á EBAY, BORÐIN Á BLAND OG LAMPANN Á KIRKJUBASAR.” „YFIRMAÐURINN ÞINN VILDI EKKI AÐ ÞÚ HEFÐIR ÁHYGGJUR AF ÞVÍ AÐ VERKEFNIN HRÚGUÐUST UPP, SVO HANN RAK ÞIG.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... yndisleg. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann HVERS VEGNA ERU MÝSNAR Í BOÐHLAUPI INNI Í ELDHÚSI? OG AÐ ÞVO BÍLINN MINN? OG AÐ GERA ARMBEYGJUR? OG HVAÐ VARÐ UM KIPPUNA AF ORKUDRYKKNUM? ÉG HELD AÐ ÞÚ SÉRT BÚINN AÐ RÁÐA GÁTUNA, SHERLOCK ÉG ÆTLA AÐ FÁ FRANSKAR KARTÖFLUR! HVERS VEGNA FÓRUM VIÐ ÞÁ Á SKANDINAVÍSKAN VEITINGASTAÐ? Bjarni Stefán Konráðsson setti áfacebook á aðfangadag: Þótt oft sé dimmt í desember og dúri löngum sólin, helga birtu beri þér blessuð, heilög jólin. Hann rifjar upp, að Rósberg heit- inn Snædal hafi sagt við sig: „Vertu skáld“ fyrir tæpum fjörutíu árum. Síðan hafi hann leiðrétt eina stöku eftir sig og sagt: „Þetta máttu aldr- ei gera aftur.“ Þannig hafi Rósberg leiðbeint sér fyrstu skrefin og það orðið sér ómetanlegt veganesti. Í vor komu sex bækur út eftir Bjarna Stefán hjá Bókaútgáfunni Hólum. Ein nefnist Ljóð, ein Ljóða- sögur, tvær Söngljóð og tvær Stöku-vísur. Nú hef ég þessar sex bækur fyrir framan mig og er búinn að fletta þeim og lesa. Þær fara vel í hendi og eru smekklega uppsettar. Mér þykja þær góðar og vel kveðnar og tek hér sýnishorn úr Stöku-vísum. Það er létt yfir þeim og myndmálið óvænt: Flestar kenndir frá mér sneru, fimbulkuldi hjartað þvingar. Og forskalaðar orðnar eru allar mínar tilfinningar. Í morgun upp á Mosfell bar mig í veðrabáli. Ögn þá hærra en áður var yfir sjávarmáli. Glaðleg er mín ytri hlið, allt í þessu fína. Í gleði minni geng þó við grátstafina mína. Það er stutt í sveitamanninn: Kyngir niður kafamjöll, kann ég það að meta. Bóndinn gefur býsnin öll búfénu að éta. Bjarni Stefán var að fara til Kölnar eftir eitthvert jólafríið á Frostastöðum í Skagafirði, senni- lega 1986: Nú kveð ég þennan kæra fjörð um kaldan dag á vetri. Engan stað á okkar jörð annan veit ég betri. Bjarni Stefán er kominn suður: Á mig leitar einhver hrollur, ónot ég í huga finn. Á Esjunni er hvítur kollur og komið frost í huga minn. Hér er lífsreynslusaga: Marga daga myrka leit, mér sem færðu hlekki. Já, það er margt sem myrkrið veit og margt sem það veit ekki. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Vel kveðið og skemmtilega

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.