Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.12.2020, Blaðsíða 2
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.12. 2020
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Gildir á alla viðburði í húsinu
Nánar á harpa.is/gjafakort
Gjafakort
sem hljómar
alltaf vel
Þetta er rosalegt. Hvenær fáum við að byrja aftur? Það er ekki nóg meðað ég sé kominn með ístru, ég er að fá brjóst!“ sagði vinur minn í vik-unni og andvarpaði gegnum símann. Hann er karlkyns. Báðir eigum
við aðild að Knattspyrnufélagi Magnúsar Finnssonar (KMF) sem starfrækt
hefur verið hér á Morgunblaðinu frá árinu 1976. Yfirstandandi sparkrof hef-
ur tekið á félaga í KMF eins og aðra sparkendur í þessu landi. Upp til hópa
sýna menn aðgerðum sóttvarnalæknis og stjórnvalda skilning en það breytir
ekki því að fótkláðinn er orðinn nánast óbærilegur. Ég veit um alla vega einn
sem er þegar búinn að reima á sig takkaskóna og setja upp legghlífarnar. Svo
hann komist þráðbeint út á völl, þegar Þórólfur og Svandís segja gó, eins og
Bó forðum.
Slík er örvæntingin að ég velti því
alvarlega fyrir mér um daginn, þeg-
ar gefið var grænt ljós á sparkiðkun
barna á ný, að halda sem leið lá nið-
ur í ráðuneyti með myndefni úr
öryggismyndavélum í Fram-
heimilinu. Það myndefni sannar
nefnilega, svart á hvítu, að sum okk-
ar eru í raun og veru börn – þegar
við erum komin inn á völlinn!
Svokallaðir afreksíþróttamenn
hafa haft sig mjög í frammi að und-
anförnu og ég viðurkenni að maður
óttast að þeir fái leikheimild á undan
okkur hinum, sem erum með bumbu
og karlabrjóst og tökum ekki þátt í neinum lögformlegum mótum. Þá bið ég
menn að hafa þetta í huga: Í KMF eru menn, fleiri en einn og fleiri en tveir,
sem komnir eru á sjötugsaldur (og sumir vel það) en missa eigi að síður ekki
úr æfingu. Og við æfum jafn oft í viku og Auðbjörn, tvítugur töffari, fór í ljós í
gamla daga. Við erum til dæmis með einn á sjötugsaldri sem tekið hefur stór-
stígum framförum á umliðnum árum og sparkspekingar spá að muni ná per-
sónulegum hæðum sem leikmaður á þarnæsta ári, 66 ára. Ef það er ekki af-
reksíþróttamennska þá heiti ég Dolly Parton!
Hápunktur ársins hjá okkur KMF-liðum er svokallaður Jesúbolti sem
fram fer á Klébergi á Kjalarnesi á páskum og jólum meðan hinn fasti leigu-
sali okkar, Fram, lokar sínum sölum, selur flugelda og liggur á bæn. Sú
veisla var tekin af okkur um páskana en því skal ég lofa ykkur að Jesúboltinn
mun fara fram nú um jólin. Í versta falli mætum við bara í boltagerðið við
Klébergsskóla í sérstökum geimbúningum sem Stefán vinur minn sæti segir
að Elon Musk geti útvegað okkur en þeir eru kunningjar.
Vonandi verður þó búið að snúa veiruna það hraustlega niður fyrir jól að
geimbúningarnir geti beðið betri tíma. Þess vegna biðla ég til ykkar, lands-
menn góðir: Haldið ykkur heima þangað til – þó ekki væri nema fyrir ykkar
sparkglöðustu og brjóstmestu bræður!
Ég er að fá brjóst!
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’Það myndefni sannarnefnilega, svart áhvítu, að sum okkar eru íraun og veru börn –
þegar við erum komin
inn á völlinn!
Sigríður Guðnadóttir
Já, að sjálfsögðu. Ég er
heilbrigðisstarfsmaður.
SPURNING
DAGSINS
Ætlarðu að
láta bólu-
setja þig
við Covid?
Karl Jóhann Jónsson
Já, örugglega.
Margrét Ívarsdóttir
Já, alveg handviss.
Júlíus Hafstein
Já. Alveg ákveðinn.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Ertu orðinn spenntur að koma til byggða?
Þú getur ímyndað þér! Sei sei. Ég er orðinn hundleiður á
þessu fjallalífi með bræðrum mínum.
Finnst þér gott að vera fyrstur?
Já, það er langbest. Ég er líka langbestur af þeim öllum,
það sjá það allir. Myndarlegastur líka.
Af hverju ertu með staurfætur?
Nú það er auðvitað af því ég missti lappirnar. Þær kól af
mér einn veturinn. Meira vesenið. Heldurðu að þú gætir
reddað mér tíma hjá Össuri? Það er voða erfitt að sjúga
ærnar með þessa staurfætur.
Kemurðu með eitthvað gott í skóinn fyrir
krakka landsins?
Heldur betur! En hvað það verður veit nú enginn, vandi er
um slíkt að spá!
Hvað er að frétta af fjölskyldunni?
Allt það besta. Karlinn er orðinn óttalegt skar en mamma er
hress. Þetta eru bara sögusagnir að gamla sé dauð, hún er
eldhress! En er þó alveg hætt að borða börn. Það þótti ekki
nógu gott.
Ertu ekki hræddur um að smitast af
kórónuveirunni?
Sú bévítans padda! Nei, við erum öll búin að fá hana. Urðum
alveg hundveik og minnstu munaði að Stúfur steindræpist.
Hvaðan kom smitið?
Hann Ketkrókur var að sniglast til byggða í vor og Jón
bóndi smitaði hann þegar hann datt þar inn í kaffi. En allur
er varinn góður og ég set upp grímu og drekk spritt. Eða
átti það að fara á hendurnar?
Morgunblaðið/Eggert
STEKKJARSTAUR LEPPALÚÐASON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Staurfætur
eru heftandi
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Von er á jólasveinum til byggða en Stekkjarstaur er fyrstur og kemur að-
faranótt tólfta desember. Hinir tólf fylgja fast á eftir, einn á hverjum degi.