Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.12.2020, Síða 4
FRÉTTIR VIKUNNAR
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.12. 2020
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
Lögð var fram hagfræðileg greining
á ávinningi félagslegrar fjárfest-
ingar til þess að grípa fyrr inn í erf-
iðar aðstæður barna á lífsleiðinni.
Samkvæmt henni nemur hann tug-
um milljarða til langs tíma litið, álíka
ábatasöm og flugvöllur. Af því tilefni
kom ekki ein einasta fréttatilkynn-
ing frá Isavia.
Arkitektar létu í ljós áhyggjur af
afleiðingum breytingartillagna á
aðalskipulagi Reykjavíkur, þar sem
þétting byggðar er ofarlega á blaði.
Þeir óttast að byggt verði svo þétt
og hátt að Reykvíkingar muni boða
til sólarkaffis í maí, líkt og sums
staðar þekkist í þröngum fjörðum
landsins þegar loks sést til sólar.
Íbúar í Úlfarsárdal eru ekki hrifnari
af fyrirhuguðum skipulagsbreyt-
ingum heima hjá sér, en þar stendur
til að hætta við íbúðabyggð og koma
frekar upp iðnaðarsvæði. Þeir óttast
að blómleg byggð þar breytist í nýj-
an Ártúnshöfða, lífsskilyrðin versni
og fasteignir þeirra hrynj í verði.
Slysavarnafélagið Landsbjörg ótt-
ast að tekjur sínar í ár verði um 600
milljónum króna lægri en í fyrra.
Þar gætir kórónuveirunnar eins og
víða annars staðar, en gert er ráð
fyrir mun dræmari flugeldasölu en
áður og eins verður sala Neyðar-
kallsins flutt yfir á nýja árið.
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur
varð þriggja ára gömul, nýtur sam-
kvæmt könnunum stuðnings meiri-
hluta landsmanna og fátt sem bendir
til annars en að hún starfi út kjör-
tímabilið með meirihluta á þingi. Það
hefur ekki gerst síðan 2007.
Umræður um fjárhagsáætlanir
sveitarfélaga eru komnar á fullt, en
þar er um lítið annað talað en halla-
rekstur og þrengingar. Minna er
hins vegar rætt um að tekjur
sveitarfélaganna á þessu ári hafa
síður en svo lækkað, þó viðbúið sé að
það gerist á næsta ári og launa-
hækkanir taki að sliga þau.
Á sama tíma kom fram að erlend
staða þjóðarbúsins hefði aldrei ver-
ið betri, næmi næstum billjón króna
og hafði batnað um rúma 300 millj-
arða króna frá lokum annars árs-
fjórðungs.
Hins vegar kom líka á daginn að
efnahagssamdráttur hér á landi af
völdum kórónuveirunnar er talsvert
meiri en gerist og gengur í helstu
nágrannaríkjum. Það má að mestu
leyti rekja til lokunar ferðaþjónust-
unnar.
Þó það lifi enginn á loftinu, þá lifa
menn ekki án þess og því gladdi það
fólk að fá staðfestingu á því að í
Evrópu sé loftið einna hreinast á
Íslandi.
Aftur á móti greindi Náttúrufræði-
stofnun frá því að rjúpan væri mun
rýrari í ár en í fyrra, ekki alveg það
sem menn vildu heyra í upphafi
aðventu.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins féll-
ust á nýtt frumvarp Lilju Alfreðs-
dóttur menningarmálaráðherra um
styrkjakerfi fyrir einkarekna fjöl-
miðla. Það gerðu þeir þó með sem-
ingi og fyrirvörum, svo ekki er víst
að það fari klakklaust eða óbreytt í
gegnum þingið.
Fjölmörg sveitarfélög krefjast þess
að efnt verði til þjóðaratkvæða-
greiðslu um framtíð Reykjavíkur-
flugvallar; hann sé ekki einkamál
Reykvíkinga.
Íslenska kvennalandsliðið í fót-
bolta sigraði Ungverjur með einu
marki gegn engu og áunnu sér
þannig sæti á Evrópumótinu á
Englandi 2022.
Fullveldisdagurinn var haldinn há-
tíðlegur, en með minna sniði en oft-
ast. Þó ákvað Róbert Spanó, forseti
Mannréttindadómstóls Evrópu, að
það væri tilvalinn dagur til að kynna
dóm sinn um fyrri dóm sinn, þó síð-
an kæmi víst í ljós að hvorugt var
beinlínis dómur. Öllum að óvörum
komst hann að því að hann hefði haft
rétt fyrir sér. Lögspekingar rýndu í
spekina og voru almennt á því að
umfjöllun dómsins hefði engin áhrif.
Umhverfisráðherra kynnti loks nýtt
frumvarp um Hálendisþjóðgarð en
heyra mátti á bæði samherjum í
ríkisstjórn og stjórnarandstöðu, að
menn telja málið alls ekki útrætt og
gerðu margvíslega fyrirvara við það.
Einkum vilja sveitarstjórnamenn
halda óskoruðu skipulagsvaldi sínu,
öfugt við það sem þeir vilja t.d. um
Reykjavíkurflugvöll.
Reykjavíkurborg spáir því að 11,3
milljarða halli verði á rekstrinum á
næsta ári. Þrátt fyrir mikla skulda-
söfnun á undanförnum árum boðar
meirihlutinn í borginni að farið verði
í 175 milljarða króna fjárfestingu á
ýmsum dásemdum. Boðað var að
borgin vildi taka að láni milljarð
króna á viku allt næsta ár og meira
síðar.
Elko var dæmd milljóna endur-
greiðsla frá ríkinu vegna oftekinna
eftirlitsgjalda, sem lögð voru á út-
selda vöru, og munu aðrar raftækja-
verslanir fá ámóta glaðning. Fyrir-
tækið lýsti yfir mikilli ánægju með
málalyktir, en minntist þó ekki á það
hvernig aurunum yrði komið til
neytenda, sem borguðu gjaldið.
Með breyttum vinnubrögðum hefur
tekist að hraða málstíma verulega
og vinna á málahalla hjá embætti
héraðssaksóknara. Þar munar
langmest um skjótari afgreiðslu
kynferðisbrotamála.
Bandarísk rannsókn á vöru frá Lýsi
bendir til þess að hún sé afar gagn-
leg til þess að hamla veirusmiti.
Samtök ferðaþjónustunnar greindu
frá því að gjaldþrot í greininni hefðu
orðið mun færri en spáð hafði verið.
Mikið virðist hafa munað um aðgerð-
ir stjórnvalda á borð við greiðslu-
skjól, stuðningslán og uppsagnar-
styrki. Hins vegar telja samtökin að
slípa þurfi tekjufallsstyrki til.
Morrinn kom til landsins með
stormsveipi og hrollkalt heim-
skautaloft. Hitastig féll verulega um
allt land, en Veitur gripu til við-
bragðsáætlunar og báðu fólk um að
spara heita vatnið vegna þessa
þriggja daga kuldakasts. Hjá sum-
um kviknuðu spurningar um hvort
hnattstaða landsins hefði farið
framhjá þeim og hvað myndi gerast
ef þessari drepsótt fylgdi líka frosta-
vetur mikill.
Þrátt fyrir allt tal Pírata um
gagnsæi og strangleika í bókhaldi
kom á daginn að þeir hafa trassað að
gera ársreikning mánuðum saman
og höfðu auk þess týnt nótum fyrir
1,3 milljónir í bókhaldinu. 99,5%
tekna þeirra koma úr opinberum
sjóðum.
Skatturinn íhugar að flytja sig um
set í nýtt hús í Katrínartúni. Sama
dag ákvað Ríkið að halda vínbúðinni
í Borgartúni opinni eftir allt saman.
Fjármálum borgarinnar er stundum
líkt við brennandi ruslagám. Sorpa
kynnti hljóðlega gríðarlegar hækk-
anir á verðskrá sinni, þó í bland
væru lækkanir á öðrum þjónustu-
liðum. Reglan virtist vera sú að verð
lækkaði í samkeppnisþjónustu en
einokunin sprengd upp. Sorpa hefur
átt við mikla fjárhagsörðugleika að
stríða, sem m.a. má rekja til mistaka
stjórnenda.
Gengi krónunnar hefur styrkst að
undanförnu og það skilaði sér hratt
og vel á bílamarkað. Gert er ráð fyr-
ir að verðlækkanir berist jafnóðum
með nýjum bílum, eitthvað fram á
nýja árið.
Fjárhagur Reykjanesbæjar vakti
enn áhyggjur, en bærinn hefur orðið
illilega fyrir barðinu á kórónuveir-
unni. Um 22% atvinnuleysi er nú í
bænum. Kjartan Már Kjartansson
bæjarstjóri segir þó að bærinn þoli
vel hallarekstur í einhvern tíma, en
hann nýtti góðærið vel til þess að
vinda ofan af fyrri fjárhagsvanda frá
í hruni.
Gert er ráð fyrir því að íslensk
stjórnvöld skrifi undir samninga um
bóluefni frá Pfizer í komandi viku.
Þegar hefur verið samið við Astra-
Zeneca.
Ólafur Helgi Kjartansson, fyrrver-
andi lögreglustjóri á Suðurnesjum,
hefur verið sendur í leyfi af dóms-
málaráðuneytinu, en hann hefur
stöðu sakbornings í rannsókn hér-
aðssaksóknara á gagnaleka til fjöl-
miðils.
Fjögur veiðiskip héldu til loðnu-
leitar norður fyrir land.
Salmann Tamimi, forstöðumaður
Félags múslima á Íslandi, lést, 65
ára að aldri.
Kuldakast í
upphafi aðventu
Bæði veitustofnanir og landsmenn voru illyrmislega minnt á hnattstöðu landsins og það að jafnvel á Íslandi geti orðið
kalt á veturna. Höfuðborgarbúar lifa í voninni um að aldrei verði meira en þriggja daga kuldakast.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
29.11.-4.12.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is