Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.12.2020, Blaðsíða 19
segir Katrín um að stofna fyrirtæki í
heimsfaraldri. Hún var nýkomin úr fæðing-
arorlofi og var með lítið af verkefnum
vegna efnahagsþrenginga.
Annað sem hafði áhrif á ákvörðun Katr-
ínar var að áhugi hennar á plöntum jókst
bara og það sama má segja um áhuga Ís-
lendinga. Katrín skoðaði Facebook-hópinn
Stofublóm inniblóm pottablóm. Hún segir
að mikil fjölgun hafi átt sér stað á síðustu
tveimur árum en sprenging hafi orðið í
fjölda fólks í hópnum eftir að kórónuveiru-
faraldurinn fór að hafa áhrif á líf fólks.
Kenning Katrínar er svo að plöntur séu
bæði í tísku en auk þess dvelji fólk meira
heima hjá sér þessa dagana.
Katrín vinnur í fyrirtækinu sínu heima
og hefur þá nokkur atriði í huga á heima-
skrifstofunni við eldhúsborðið.
„Það er gott að vera með góða rútínu,
vakna á sama tíma á hverjum degi. Ég finn
að það hjálpar mér. Ég reyni að hreyfa mig
í hádeginu, fer út að ganga eða geri jóga
heima. Lýsing skiptir máli, ég passa að
hafa bjart heima hjá mér. Það er annar
hlutur sem skiptir að mínu mati mjög miklu
máli sérstaklega á Íslandi þar sem er lítið
dagsljós á veturna, að hafa góða lýsingu.
Ég myndi í rauninni mæla með að fólk væri
með dagsljóslampa á veturna. Ég er með
stóra glugga sem mér finnst þægilegt.
Hvar situr þú? Það skiptir máli. Ég sit
þannig að ég sjái út um gluggann. Það
skiptir einnig máli að sitja ekki of lengi og
mikilvægt að standa reglulega upp frá tölv-
unni.“
Plöntuveggurinn er eins
og lifandi listaverk.
Það gefur Katrínu mikið að hugsa um plönturnar sínar.
Katrín stillir upp plöntum eins
og öðrum skrautmunum.
Plakat af íslenskri
flóru er viðeigandi við
hlið plöntuveggjarins.
6.12. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19