Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.12.2020, Blaðsíða 20
400 gr. smjör
500 gr. hveiti
150 gr. flórsykur
súkkulaðidropar
Hnoðið hráefnum saman.
Búið til lengjur sem eru svo
skornar í þunna bita. Setjið
á bökunarplötu og bakið við
200 gráður í nokkrar mín-
útur. Setjið súkkulaðidropa
á kökurnar um leið og þær
koma út úr ofninum.
Spesíur
Ljósmynd/Benedikt Schriefer
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.12. 2020
LÍFSSTÍLL
Kärcher
B 95 RS
Gólfþvottavél
Kärcher
KM 70/20 C
Sópur
Kärcher
ProPuzzi 400
Djúphreinsivél
Kärcher
HDS 10/20 4 M
Háþrýstidæla
Unsplash
Ómissandi
jólaklassík
Gömlu góðu uppskriftirnar hennar ömmu, í
bland við nýrri, eru tilvaldar til að spreyta sig á
fyrir þessi jól. Enginn verður svikinn af vanillu-
hringjum, spesíum og hálfmánum með glasi af
ískaldri mjólk á aðventunni.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
400 g Odense-marsípan
(Original Odense)
300 g sykur
1 dl vatn
150 g eggjahvítur
200 g Odense núggat, skor-
ið í litla ferninga
250 g dökkt súkkulaði
Takið marsípanið og búið
til rúllu sem er sirka 3
sentimetrar á breidd og
skerið niður í u.þ.b. hálfs
sentimetra þykkar sneiðar.
Leggið á bökunarpappír og
bakið í 5-8 mínútur við
180°C og látið kólna. Legg-
ið einn núggatferning á
hverja köku.
Setjið saman í pott; 300
g sykur og 1 dl vatn og
sjóðið í tvær mínútur.
Þeytið eggjahvítur þar til
léttar og ljósar.
Hellið sykurleginum
sjóðandi heitum í hægri
bunu saman við þeyttu
eggjahvíturnar og þeytið
um leið. Þeytið í fimmtán
mínútur.
Setjið því næst blönduna
í sprautupoka og sprautið
yfir núggatbitann og látið
fylla út að brún kökunnar.
Látið aðeins kólna í ís-
skáp.
Bræðið súkkulaðið yfir
vatnsbaði. Dýfið síðan kök-
unum í súkkulaði eða
penslið. Látið þorna og
setjið í kæli. Alveg sturlað
gott!
Danskir
marsipantoppar