Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.12.2020, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.12. 2020
LÍFSSTÍLL
Fallegar vörur
fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Nýja Tokyo línan
komin í sýningasal
Eigum við ekki að taka Zoom áþetta?“ spyr Börkur Gunnars-son, rithöfundur, leikstjóri og
blaðamaður með meiru, og gerir sér
augljóslega ekki grein fyrir því að
sveitasetur mitt er útibú frá Árbæj-
arsafninu. Hann hlær á innsoginu að
þessum óvenjulega skorti á tækja-
kosti á heimilinu en fellst góðfúslega á
að láta gamla góða símann duga. Tja,
eða nýja góða símann, ég bý jú að svo-
kölluðum snjallsíma. Ótrúlegt en satt.
„Þetta er gleði- og glottbók og það
var ógeðslega gaman að skrifa hana.
Síðustu þrjár bækur mínar hafa verið
frekar þungar og að þessu sinni lang-
aði mig að hafa þetta aðeins léttara
og skemmtilegra. Allar þessar sögur
rifjuðust hratt upp fyrir mér og ég
rúllaði bókinni eiginlega bara upp,“
byrjar Börkur að lýsa nýjustu skáld-
sögu sinni, Frásögu Jóns Jónssonar
af því hvernig á að ná árangri í starfi
og einkalífi.
Jón þessi, eða Nonni, svo við ger-
umst aðeins heimilislegri, er blaða-
maður sem áður vann á jaðarsettum
smáblöðum en stefnir nú hægt upp
metorðastigann á ritstjórn Morgun-
blaðsins. Með áherslu á orðið „hægt“.
Börkur kveðst hafa lokið við sög-
una sumarið 2019 en tók svo snarpan
snúning á henni síðasta vor; skar nið-
ur tvo þriðju hluta. „Ég kann ófáar
skemmtisögur af fólki í fjölmiðlum,
ekki síst á Morgunblaðinu, þannig að
af nægu var að taka. Ég ákvað hins
vegar að einblína á senurnar sem
færðu söguna áfram,“ segir Börkur
sem starfaði lengi sem blaðamaður,
meðal annars á Morgunblaðinu, í
fleiri lotum en einni.
Ýmis nöfn koma fyrir í bókinni sem
lesendur kannast við af síðum Morg-
unblaðsins. „Agnes Bragadóttir og
Kolbrún Bergþórsdóttir eru þarna;
stórkostlegar dívur. Það var virkilega
gaman að vinna með þeim. Þær höt-
uðu að vísu hvor aðra sem var ekkert
persónulegt, að ég held. Moggahöllin
í Hádegismóum er hins vegar ekki
nema nokkur þúsund fermetrar og
alls ekki nógu stór fyrir tvær svona
stórar dívur og sterka karaktera sem
þurfa sitt pláss. Fyrst vann ég með
Kollu og þegar ég færðist yfir á deild-
ina hjá Agnesi þá sagði Kolla við mig,
grafalvarleg á svipinn: „Þú getur
ekki verið vinur okkar beggja!““
Börkur kom að vonum eintaki til
þeirra um leið og bókin kom úr prent-
vélinni. „Agnes hringdi nokkrum
dögum síðar og sagðist hafa hlegið út
í gegn en Kolla hefur ekkert látið í
sér heyra. Annaðhvort er hún brjáluð
yfir því hvernig mynd ég dreg upp af
henni eða hún er reið yfir því að ég
hafi ekki gert betri bók.“
Hann skellir upp úr.
– Þetta er samt fyrst og fremst
skáldskapur, er það ekki rétt skilið?
„Margar uppákomurnar í bókinni
eru raunverulegar, sannar sögur, en
bókin er uppdiktaður sannleikur. Ég
set kjánaprikið hann Nonna inn í
þessar raunverulegu aðstæður til að
sjá hvernig hann spjarar sig. Hann er
með mikið álit á sjálfum sér, bless-
aður, og heldur að hann sé stærri og
merkilegri en hann er.“
– Hefurðu kynnst mörgum þannig
týpum gegnum tíðina?
„Já, það hef ég gert og ekki bara í
blaðamennsku. Flestar starfsgreinar
eru uppfullar af svona mönnum. Það
er mun algengara að menn hafi hærri
hugmyndir um sjálfa sig en aðrir.“
Í skugga kærustunnar
Það er ekki bara vinnan; einkalífið
gengur heldur ekki áfallalaust fyrir
sig hjá Nonna. „Hann er með kær-
ustu sem er allt öðruvísi týpa; hún er
ekki eins metnaðargjörn og Nonni
sem ætlar sér ritstjórastólinn en
ræður varla við að vera sendill. Kær-
astan er hins vegar toguð upp met-
orðastigann, þótt hún hafi engan sér-
stakan áhuga á því, enda er hún
eldklár og miklu betri starfskraftur
en Nonni. Hann vill líka vera að-
alkarlinn í vinahópnum en verður
undir þar líka. Það er á brattann að
sækja.“
– Í bókum og bíómyndum einkenn-
ir hraði og glamúr oft blaðamennsk-
una. Er það í raun og veru þannig?
„Nei, alls ekki,“ svarar Börkur
hlæjandi. „Í hruninu voru blaðamenn
að vísu um tíma á vígvelli, þar sem
spennan var mikil en það gerist ekki
oft yfir starfsævina. Í bókinni reyni
ég að lýsa hlutum sem söguhetjan
lendir í og eru örvandi og áhugaverð-
ir en þetta er ekkert heimildarrit um
starfið sem slíkt. Öll störf eru í eðli
sínu átómatísk og frekar leiðigjörn,
blaðamennskan er ekkert öðruvísi.“
Börkur kveðst hafa fengið fín við-
brögð frá blaðamönnum sem lesið
hafa bókina en vonar eigi að síður að
hún nái út fyrir þann hring. „Ef fólk
glottir meðan á lestrinum stendur þá
er markmiðinu náð. Þegar menn
skrifa um blaðamennsku reyna þeir
oft að vera eitthvað svo djúpir og
merkilegir að það verður hundleið-
inlegt. Ef eitthvað djúpt eða alvarlegt
finnst í þessari bók er það fyrir slys.“
Það er bókaútgáfan Sæmundur
sem gefur út. „Bjarni Harðarson, sá
mikli meistari, gekk á mig úti á götu
fyrir nokkrum árum og tjáði mér að
bókin mín Hann væri besta skáld-
saga ársins. Þess vegna fannst mér
tilvalið að leita til hans nú; það er allt-
af gott að vinna með fólki sem hefur
trú á manni.“
Höfundurinn kveðst vel geta hugs-
að sér að vera áfram á þessum léttu
og líflegu nótum í verkum sínum.
„Mig langar að vinna meira með
þetta, glottið og gleðina. Núna er ég
að klára handrit fyrir Kvikmyndasjóð
en fer svo í næstu bók. Ég er með
þrjár til fjórar teiknaðar upp og ein
þeirra er í sama fíling, hinar ekki.“
Frumsýning eftir ár?
– Um hvað er kvikmyndin?
„Hún er um ungt fólk sem er að
stíga sín fyrstu skref í listaheiminum.
Þetta eru tvö pör, mjög ólíkir ein-
staklingar. Ætli megi ekki segja að
þetta sé drama en það er gleði þarna
líka.“
Börkur vonast til þess að geta farið
í tökur á myndinni næsta sumar, þó
það velti auðvitað á Kvikmyndasjóði
og öðrum sjóðum. „Gangi allt upp læt
ég mig dreyma um að frumsýna
myndina í lok næsta árs.“
Við lifum sem kunnugt er á stór-
furðulegum tímum og Börkur við-
urkennir að oftast hafi verið auðveld-
ara að koma bók á framfæri en núna.
„Menn eins og Einar Kárason og
Arnaldur Indriðason þurfa ekki að
fara fram úr rúminu á morgnana til
að selja bækurnar sínar en fyrir okk-
ur hin þá skipta upplestrar og aðrar
kynningar verulegu máli. Þetta snýst
um að fara sem víðast og reyna að
heilla lesendur. Ekkert slíkt er í boði
um þessar mundir.“
– Ekki einu sinni á Zoom? Það er
líklega erfitt að afhenda bækur á
þeim vettvangi?
„Já, alla vega hef ég ekki fundið þá
rauf á tölvunni.“
Uppdiktaður sannleikur
Börkur Gunnarsson hef-
ur sent frá sér skáldsögu
um metnaðarfullan en
fremur misheppnaðan
blaðamann sem ætlar
sér stóra hluti á ritstjórn
Morgunblaðsins. Mörg
nöfn í bókinni koma
kunnuglega fyrir sjónir.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Börkur Gunnarsson kann
vel við sig á léttu og
skemmtilegu nótunum.