Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.12.2020, Síða 28
an af skrifunum. „Það er alveg rétt,“
segir hann hlæjandi. „Ég ferðast
sjálfur aftur í tímann og velti stöðugt
fyrir mér hvað mér hefði fundist
skemmtilegt að lesa þegar ég var
yngri. Mér eru sjónvarpsþættirnir
Kalli í knattspyrnu sérstaklega minn-
isstæðir, því þó þeir væru ýktir þá
glöddu þeir mann mikið. Ég á líka tvo
stráka sem eru tíu og þrettán ára og
sé á hverju þeir hafa áhuga. Það
hjálpar alltaf til. Lykilatriðið er að
reyna að höfða til lesenda og tengja
við það sem er merkilegt og skemmti-
legt í þeirra huga.“
Þó íþróttir leiki stórt hlutverk í
bókunum um Orra og Möggu þá vill
Bjarni ekki skilgreina þær sem
jólunum, svo fátt eitt sé nefnt. Til allr-
ar hamingju hefur Magga Orra sér
við hlið gegnum þessar raunir allar.
„Ég hef mjög gaman af því að setja
sögurnar í ævintýralegan búning og
láta söguhetjurnar lenda í ýmsu
skemmtilegu. Það er mikilvægt að
margt sé að gerast í bókum fyrir börn
og unglinga og mikill hasar enda er
samkeppnin um athygli þeirra mjög
mikil, eins og við þekkjum. Það skipt-
ir líka máli að brjóta textann upp og
hafa myndir, eins og þau eiga að venj-
ast úr símanum og tölvunni.“
Ferðast aftur í tímann
Ekki þarf að fletta lengi til að sjá að
Bjarni hefur sjálfur ofboðslega gam-
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.12. 2020
LESBÓK
á heimasíðu Hreyfils:
hreyfill.is
eða í App Store
og Google Play
SÆKTU APPIÐ
Sæktu appið frítt á AppStore
eða Google Play
Hreyfils appið
Pantaðu leigubíl á einfaldan
og þægilegan hátt
Þú pantar bíl1
3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn.
2 fylgist með bílnum í appinu
SJÓNVARP Ný þáttaröð, sem byggist á skáldsögu
Stephens Kings, The Stand, verður frumsýnd á CBS-
sjónvarpsstöðinni í Bandaríkjunum 17. desember. Þar
er horft til eftirmála heimsfaraldurs sem sett hefur allt
mannlíf á annan endann. Og nei, King skrifaði söguna
ekki á þessu ári, heldur 1978. Hermt er þó að hann hafi
endurskoðað endinn, sumum ugglaust til fróunar en
öðrum til skelfingar. Örlög mannkyns hvíla víst á herð-
um 108 ára gamallar spákonu og fáeinna eftirlifenda.
Josh Boone leikstýrir þáttunum, sem eru níu talsins, og
lauk tökum í mars á þessu ári sem er merkileg tilviljun.
Með helstu hlutverk fara Whoopi Goldberg, Alexander
Skarsgård, James Marsden, Greg Kinnear, Jovan
Adepo, Odessa Young og Amber Heard.
Eftirmál heimsfaraldurs
Amber He-
ard er með-
al leikenda.
AFP
VINÁTTA Hafið þið átt erfitt með að einbeita ykkur
að vinnu og daglegu amstri undanfarið af ótta við
að fátt sé með breska hjartaknúsaranum Hugh
Grant og bandarísku skapgerðarleikkonunni Renée
Zellweger, getið þið tekið gleði ykkar á ný. Grant
upplýsti nefnilega í viðtali við útvarpsstöðina
SiriusXM á dögunum að allt væri slétt og fellt á milli
þeirra. Ekki nóg með það, Zellweger ku vera ein af
fáum konum sem hann hefur leikið á móti sem
Grant hefur ekki fengið upp á móti sér
en þau léku saman í nokkrum mynd-
um um hina seinheppnu en vingjarn-
legu Bridget Jones. „Ég ann Renée,“
sagði hann.
Hugh gamli Grant
er ekki vinleik-
kvennamargur.
AFP
Gene Simmons er tungulipur.
Kiss úti í
kuldanum
ÓDREPANDI Gene Simmons,
bassaleikari og söngvari Kiss, er
ekki í nokkrum vafa um að hægt
verði að efna til tónleika á næsta
ári. Í samtali við útvarpsstöðina
95.5 KLOS í Bandaríkjunum upp-
lýsti hann að gömlu glyströllin
væru búin að bóka gigg úti um alla
Evrópu næsta sumar og þegar væri
uppselt á flest þeirra. Eins og þið
munið þá er Kiss á lengsta kveðju-
túr tónlistarsögunnar, sem staðið
hefur árum saman, og Simmons lof-
ar alla vega 150 giggum í viðbót,
þar af einu á „kaldasta stað í
heimi“, án þess að skilgreina það
nánar. Varla er það Reiðhöllin í
Víðidal, eins og forðum. Þar er fun-
heitt á góðu kvöldi.
Orri óstöðvandi stendur svosannarlega undir nafni enút er komin þriðja bókin í
flokknum á jafnmörgum árum, Orri
óstöðvandi: Bókin hennar Möggu
Messi sem er sjálfstætt framhald af
Orra óstöðvandi: Hefnd glæponanna
sem kom út í fyrra og höfundurinn,
Bjarni Fritzson, fékk Bókaverðlaun
barnanna fyrir fyrr á þessu ári.
„Magga Messi fær sína kafla í
fyrri bókunum tveimur en þar sem
hún er með mikið sjálftraust og svo-
lítið kokhraust þá telur hún sig geta
léttilega skrifað sína eigin bók sem
ætti að minnsta kosti að vinna Nób-
elsverðlaunin eða Óskarinn, að því
er henni finnst,“ segir Bjarni en nýja
bókin hefst einmitt á því að Orri
óstöðvandi er að leggja lokahönd á
sína bók en Magga tekur af honum
völdin. Finnst nóg komið af Orra í
bili. Okkar maður á þó ugglaust eftir
að ná sér aftur á strik síðar.
Sem fyrr rekur hvert ævintýrið
annað. Magga lendir í bandóðum
Blikaþjálfara sem reynir að skemma
fyrir henni Rey Cup, versta fólk í
heimi flytur í húsið við hliðina á henni
og foreldrar hennar reyna að stela
Bjarni Fritzson gefur
bækurnar út sjálfur og
dreifir þeim í búðir.
Allt saman
verið mjög
óraunverulegt
Bjarni Fritzson sendir tvær bækur frá sér nú fyrir
jólin. Annars vegar er það Orri óstöðvandi: Bókin
hennar Möggu Messi og hins vegar sjálfstyrking-
arbókin Öflugir strákar: Trúðu á sjálfan þig.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Sjálfur veit Bjarni fátt skemmtilegra en að lesa bækur.
Hann las mikið sem barn en á unglingsárunum tók ann-
að við, eins og gengur. Fljótlega eftir tvítugt kom bókin
á hinn bóginn aftur af fullum þunga inn í líf hans.
Hann var liðtækur handboltamaður og þegar
hann fór í fyrstu keppnisferðina sína með A-
landsliðinu gerðist svolítið merkilegt. „Það voru all-
ir í landsliðinu með bók,“ segir hann, „og ég gat
ekki látið mitt eftir liggja. Þarna byrjaði ég að
lesa Arnald og fleiri góða höfunda. Það er svo
mikilvægt að hafa flottar fyrirmyndir í lífinu. Þess
utan fylgir því svo mikil hugarró að lesa og týna
sér í sögunni. Maður lærir ótrúlega margt af
góðum bókum.“
Bjarni er bjartsýnn á bóksölu fyrir jólin;
Enda í eðli sína bjartsýnn og jákvæður
maður. „Sjálfur finn ég ekki annað en
góða stemningu en maður veit auðvit-
að aldrei hvað gerist. Ekki er annað hægt en
að gera sitt besta svo gerist bara það sem gerist.“
Allir með bók í landsliðinu
Bjarni í leik
með ÍR
2014.
Ekki fengið Zellweger upp á móti sér