Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.12.2020, Blaðsíða 29
íþróttabækur. „Markmiðið er að
bækurnar höfði til allra, ekki bara
íþróttakrakka. Mér finnst líka mikil-
vægt að hafa sterka karaktera og fyr-
irmyndir í bókunum og reyni því að
tengja þær samtímanum. Þannig
dæmdi Aron Einar, landsliðsfyrirliði í
fótbolta, úrslitaleikinn í síðustu bók
og núna kemur Margrét Lára,
markahæsta landsliðskona Íslands-
sögunnar, við sögu.“
Fyrsta bókin um Orra seldist upp
fyrir jólin 2018 og önnur bókin var
fimmta mest selda bókin í fyrra og
vann til Bókaverðlauna barnanna.
Bjarni er að vonum í skýjunum með
viðtökurnar. „Þetta hefur allt saman
verið mjög óraunverulegt fyrir mig.
Ég kom ekki inn á þennan markað
fyrr en fyrir tveimur árum og er rétt
að byrja að líta á mig sem rithöfund
núna. Auðvitað hafði ég trú á þessu
efni, þessum hugmyndum, en við-
tökurnar hafa verið vonum framar
og í raun alveg ótrúlegar. Að sitja í
öðru sæti á eftir Arnaldi Indriðasyni
á sölulistanum, það er eitthvað sem
ég bjóst satt að segja ekki við. Það
var líka alveg æðislegt að vinna þessi
verðlaun, enda krakkarnir hinir einu
sönnu gagnrýnendur á barnabækur
og því eru Bókaverðlaun barnanna
mikilvægustu verðlaunin fyrir mig.“
Bjarni gefur bækurnar út sjálfur
undir merkjum forlags síns, Út fyrir
kassann, og dreifir þeim í búðir.
Hann segir það vissulega útheimta
mikla vinnu en á móti komi að þetta
sé skemmtilegt, auk þess sem hann
ráði ferðinni sjálfur og verkefnið
standi og falli með honum. „Ég er líka
með frábært fólk í kringum mig; góð-
an ritstjóra hana Guðrúnu Láru og
frábæran teiknara og hönnuð, hann
Þorvald Sævar Gunnarsson. Auðvitað
er ég búinn að gera fullt af mistökum
en ég er alltaf að læra betur og betur
á þennan bókabransa.“
Öflugir strákar
Hin bókin er Öflugir strákar: Trúðu á
sjálfan þig. Bókin er sjálfstyrking-
arbók fyrir stráka og byggð á nám-
skeiðunum sem Bjarni hefur haldið í
að verða sjö ár.
„Ég lagði mikið upp úr því að hafa
bókina aðgengilega fyrir krakka og
er hún því sett upp í svipuðum stíl og
Orra óstöðvandi-bækurnar. Stútfull
af myndum og skemmtilegum sögum
af Orra, Möggu og öðrum flottum fyr-
irmyndum. Allt gert til þess að auð-
velda lesandanum að skilja og til-
einka sér umfjöllunarefni líkt og
sjálfsmynd, sjálfsrækt, sjálfstraust,
núvitund, árangur, mótlæti, þæg-
indaramma og margt margt fleira,“
segir Bjarni og bætir við að forvörnin
byrji strax, ekki þegar hlutir eru
byrjaðir að fara á verri veg.
Hann kveðst hafa fengið mikil við-
brögð við námskeiðunum sínum og
segir að hugsunarhátturinn sé óðum
að breytast, ekki bara hjá strákunum
sjálfum, heldur einnig foreldrum
þeirra.
Bjarni kveðst hafa verið með þessa
bók á teikniborðinu í tvö ár en lét slag
standa og lauk við hana í heimsfar-
aldrinum. „Covid hefur verið góður
tími til að vinna í sjálfum sér enda
hefur þetta ár reynt á andlegu hliðina
hjá okkur öllum, börnum sem full-
orðnum. Ég ákvað því að kýla á þetta
og er mjög ánægður að það náðist.
Það er bara vika síðan bókin kom út
en hún hefur farið rosalega vel af
stað.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
6.12. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com
Sölustaðir:
Hagkaup, Nettó, Melabúð, Fjarðarkaup, Heilsuhúsið, Frú Lauga, Matarbúðin,
Brauðhúsið, Fiskkompaní, Mamma veit best og Matarbúr Kaju Akranes
Sælkerabitar
SJÓNVARP Hvenær eiga aðdá-
endur búningadramaþátta í sjón-
varpi að gleðjast ef ekki einmitt um
jólin, og á sjálfan jóladag frumsýnir
efnisveitan Netflix glænýja slíka,
Bridgerton. Sögusviðið er Lund-
únir snemma á nítjándu öld og ung
stúlka af efnuðu foreldri er þvinguð
inn á harðsvíraðan hjúskaparmark-
aðinn þar sem allt getur gerst, eins
og við þekkjum. Með helstu hlut-
verk fara Phoebe Dynevor og
Regé-Jean Page en sjálf Julie And-
rews er sögumaðurinn.
Þvinguð á hjúskaparmarkað
Phoebe Dynevor leikur í þáttunum.
AFP
BÓKSALA 23.-29. NÓVEMBER
Tekið saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda
1 Þagnarmúr Arnaldur Indriðason
2 Snerting Ólafur Jóhann Ólafsson
3 Bráðin Yrsa Sigurðardóttir
4
Orri óstöðvandi – bókin
hennar Möggu Messi
Bjarni Fritzson
5 Vetrarmein Ragnar Jónasson
6 Útkall – á ögurstundu Óttar Sveinsson
7 Fávitar Sólborg Guðbrandsdóttir
8
Una, prjónabók
Sjöfn Kristjánsdóttir og
Salka Sól Eyfeld
9 Gata mæðranna Kristín Marja Baldursdóttir
10 Þín eigin undirdjúp Ævar Þór Benediktsson
11 Krakkalögin okkar Jón Ólafsson, Úlfur Logason o.fl.
12 Lára lærir að lesa Birgitta Haukdal
13 Lára fer í leikhús Birgitta Haukdal
14 Hetja Björk Jakobsdóttir
15 Fjarvera þín er myrkur Jón Kalman Stefánsson
16 Spænska veikin Gunnar Þór Bjarnason
17 Dýralíf Auður Ava Ólafsdóttir
18 Leikskólalögin okkar Jón Ólafsson, Úlfur Logason o.fl.
19 Barnaræninginn Gunnar Helgason
20 Verstu kennarar í heimi David Walliams
Allar bækur
Upp á síðkastið varð ég fyrir því
happi að uppgötva rithöfund
sem oft hefur verið reynt að
troða upp á
mig án árang-
urs. En um
daginn gerðist
það að byrjað
var að gefa út
myndasög-
urnar The
Sandman eftir
Neil Gaiman
sem hljóð-
bækur. Þar
sem ég hef verið blindur allt
mitt líf hef ég aldrei fyrr getað
komist nálægt því að lesa
myndasögur og því er það mjög
spennandi og ný upplifun að lesa
Sandman sem nokkurs konar út-
varpsleikrit. Bókin er gefin út af
audible.com og inniheldur fyrstu
10 sögurnar. Hún er virkilega vel
unnin og ég get ekki beðið eftir
því að næsta bindi komi út. Sög-
urnar fjalla um Morpheus kon-
ung draumanna sem í byrjun
sagnanna hefur verið handsam-
aður af valdagráðugum töfra-
mönnum. Ég mæli eindregið
með því að næla sér í þessa bók,
skella á sig
heyrnartólum
og gleyma sér
aðeins, t.d. yf-
ir uppþvott-
inum.
Mig langar
einnig til að
mæla með
annarri bók
eftir Neil Gai-
man. Það er
bókin American Gods. Bókin
fjallar um hina ýmsu guði sem
hafa tekið sér bólfestu í Am-
eríku og berjast þar fyrir tilvist
sinni. Nokkrar aðalpersónur eru
gömlu norrænu goðin eins og
Óðinn og Loki settir fram í ör-
lítið nýju ljósi. Fyrir unnendur
hljóðbóka er hægt að nálgast út-
gáfu af þessari bók lesna af
nokkrum mismunandi lesurum
svo persónurnar fá allar sína
eigin rödd. Þetta form af hljóð-
bók er mjög viðkvæmt en au-
dible.com hefur tekist að gera
þessa bók virkilega vel með
þessu formi.
Þriðja bókin sem mig langar
að mæla með
er Why we
Sleep eftir
Mathew Wal-
ker. Nýverið
las ég hana og
lærði alveg
heilmikið um
svefn og mik-
ilvægi hans.
Bókin er
fræðileg en
hún er skrifuð á aðgengilegan
hátt. Bókinni tekst að gera
fræðilega umfjöllun um áhrif
svefns og drauma á andlega og
líkamlega heilsu að spennandi
og skemmtilegu viðfangsefni
jafnframt því sem hún bendir
okkur á með mjög skýrum hætti
að jú, við þurfum að bera virð-
ingu fyrir svefninum okkar og
reyna að fá nóg af honum.
EYÞÓR ÞRASTARSON ER AÐ LESA
Konungur draumanna,
guðir og góður svefn
Eyþór Þrastar-
son er hljóð-
bókaormur.