Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.12.2020, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.12. 2020
08.00 Strumparnir
08.20 Blíða og Blær
08.45 Ruddalegar rímur
09.10 Mæja býfluga
09.25 Adda klóka
09.45 Zigby
10.00 Mia og ég
10.20 Lína langsokkur
10.45 Latibær
11.10 Lukku láki
11.35 Ævintýri Tinna
11.55 Jóladagatal Árna í Ár-
dal
12.00 Nágrannar
12.20 Nágrannar
12.40 Nágrannar
13.05 Nágrannar
13.25 Nágrannar
13.50 Impractical Jokers
14.10 Kviss
14.55 The Good Doctor
15.40 Lodgers For Codgers
16.30 60 Minutes
17.20 Víglínan
18.26 Veður
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.40 Sportpakkinn
18.50 Ísland í dag
19.05 Jólaboð Evu
19.35 The Great Christmas
Light Fight
20.20 Belgravia
21.10 Ummerki
21.35 Briarpatch
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 93,5
Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
20.00 Sögur frá Grænlandi –
þáttur 6
20.30 Heimildamynd –
Kjarnakonur
21.00 Tónlist á N4
Endurt. allan sólarhr.
18.00 Tónlist
18.30 Ísrael í dag
19.30 Jesús Kristur er svarið
20.00 Blönduð dagskrá
21.00 Blönduð dagskrá
22.30 Gegnumbrot
23.30 Tónlist
24.00 Joyce Meyer
18.00 21 – Úrval á föstudegi
18.30 Atvinnulífið
19.00 Matur og heimili
19.30 Skáldin lesa
20.00 Mannamál (e)
20.30 Suðurnesja-magasín
Víkurfrétta (e)
21.00 Aðventa
21.30 Fjallaskálar Íslands (e)
12.30 Dr. Phil
13.15 Dr. Phil
14.45 Superstore
15.10 BH90210
16.25 Family Guy
16.45 The King of Queens
17.05 Everybody Loves Ray-
mond
18.15 This Is Us
19.00 Líf kviknar
19.30 Hver ertu?
20.00 Venjulegt fólk
20.35 The Block
21.55 Catherine the Great
(2019)
22.55 Phantom
00.30 Emergence
06.55 Bæn og orð dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Hringsól.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Á tónsviðinu.
09.00 Fréttir.
09.03 Svona er þetta.
10.00 Fréttir.
10.05 Veðurfregnir.
10.15 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta í Nes-
kirkju.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
13.00 Það sem skiptir máli.
13.05 Sögur af landi.
14.00 Víðsjá.
15.00 Glans.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Úr tónlistarlífinu.
17.25 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Íslenska mannflóran II.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Hraustir sveinar og
horskar meyjar.
20.35 Gestaboð.
21.30 Fólk og fræði.
22.00 Fréttir.
22.05 Veðurfregnir.
22.10 Meistaraverk Beetho-
vens.
23.10 Frjálsar hendur.
24.00 Fréttir.
07.15 KrakkaRÚV
07.16 Tulipop
07.19 Úmísúmí
07.42 Kalli og Lóa
07.53 Klingjur
08.04 Lalli
08.11 Friðþjófur forvitni
08.33 Nellý og Nóra
08.40 Robbi og Skrímsli
09.02 Hrúturinn Hreinn
09.09 Unnar og vinur
09.32 Músahús Mikka – 2.
þáttur
09.56 Millý spyr
10.00 Síðbúið sólarlag: Jóla-
þáttur
10.30 Mamma mín
10.45 Fullveldisöldin
11.00 Silfrið
12.05 Villta vestrið
13.00 Aðventumessa
14.00 Óperuminning
14.05 Bækur og staðir
14.15 Ólympíukvöld fatlaðra
14.50 Serbía – Ungverjaland
16.40 Reikistjörnurnar í hnot-
skurn
16.45 Sagan bak við smellinn
16.50 Menningin – samantekt
17.20 Jóladagatalið: Snæholt
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Stundin okkar
18.25 Jóladagatalið – Jól í
Snædal
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir á sunnudegi
19.40 Veður
19.50 Landinn
20.20 Ólympíukvöld fatlaðra
21.10 Óperuminning
21.15 Hvítklædda konan
22.15 The Piano
00.10 Silfrið
12 til 16 Þór Bæring Besta blandan af tónlist á
sunnudegi og létt spjall með Þór Bæring. Hækkaðu í
gleðinni með K100.
16 til 18 Tónlistinn Topp40 með Dj Dóru Júlíu. Einn
vinsælasti plötusnúður landsins kynnir 40 vinsælustu
lög landsins á hverjum einasta sunnudegi. Tónlistinn
er eini opinberi vinsældalisti landsins.
18 til 00 K100 tónlist Besta tónlistin dunar í allt
kvöld.
Jólalag Sigga tekst á við
sorg og erfiðleika
Söngvarinn Siggi Pálma mætti í Ísland vaknar og ræddi
við þau Kristínu Sif, Ásgeir Pál og Jón Axel um nýtt jóla-
lag sitt, Heillastjarna. Lagið samdi Siggi árið 2015 og
flutti það á tónleikum með föður sínum. Síðan fór lagið
ofan í skúffu og gerði Siggi ekkert meira með það þar til
nú. Lagið samdi Siggi sjálfur en textann samdi barns-
móðir hans, Unnur Björk Hauksdóttir. Hann segir lagið
vera óhefðbundið jólalag sem fjalli ekki um piparkökur
og gleði heldur takist á við sorgina sem margir upplifi
um jólin. Viðtalið og lagið má hlusta á á K100.is.
Söngvarinn Siggi
Pálma mætti í
Ísland vaknar.
... stærsti uppskriftarvefur landsins!
Vinna að sjónvarpsþáttaröðinniÁtta vitni (8 Zeugen) stend-ur nú yfir í framleiðsluverinu
UFA í Potsdam-Babelsberg rétt fyr-
ir utan Berlín. Þessir þýsku þættir
fjalla um réttarsálfræðing, sem hef-
ur minnisrannsóknir að sérgrein og
reynir að rekja slóð sannleikans,
eins og segir á vefsíðu framleiðanda
um þættina.
Sálfræðingurinn í þáttunum heitir
Jasmin Braun og fer Alexandra
Maria Lara með hlutverkið. Þætt-
irnir snúast um mannrán, sem átta
manns urðu vitni að. Hlutverk sál-
fræðingsins er að ræða við vitnin til
að fá fram hvort þau geti lagt eitt-
hvað fram til að leysa málið. Engar
vísbendingar liggja fyrir aðrar en
vitnisburður þeirra. Kjarninn í starfi
hennar er að meta hvort við getum
treyst minningum okkar og með
hvaða hætti sé hægt að hafa áhrif á
þær.
Hugmyndin af þáttunum er
sprottin af rannsóknum þýsk-
kanadíska réttarsálfræðingsins
Juliu Shaw, sem starfar í London og
hefur verið lögreglu og lögmönnum
innan handar við að meta sannleiks-
gildi frásagna vitna.
Shaw segist í viðtali við þýska
tímaritið Der Spiegel eiga erfitt með
að átta sig á að hún sé fyrirmynd að
persónu í sjónvarpsþáttum, en kann
að meta að í þeim er stuðst við raun-
verulegar rannsóknir. Söguhetjan
spyrji meðvitað opinna og hlutlausra
spurninga eftir kúnstarinnr reglum
til að koma í veg fyrir að vitnið verði
leitt að ákveðinni niðurstöðu.
Shaw segir að það gerist allt of oft
að yfirheyrslutækni sé ekki í sam-
ræmi við niðurstöður nýjustu rann-
sókna.
Hún hefur í rannsóknum sínum
kannað hvernig koma megi fölskum
minningum fyrir í huga fólks.
„Grundvallaratriðin eru alltaf þau
sömu,“ segir hún. „Fyrst hef ég sam-
band við fólk sem þekkir þátttakand-
ann í rannsókninni, til dæmis for-
eldra. Þeir segja mér frá einhverju
sem gerðist í raun þannig að það
verði trúverðugra þegar ég blanda
fölskum minningum saman við.“
Síðan segir hún við fólkið að at-
burðurinn hafi gerst, það þurfi bara
að rifja hann upp. „Svo sendi ég fólk-
ið heim og segi því að það verði að
reyna að lifa sig inn í atvikið. Eftir að
hafa hitt fólkið þrisvar eða svo er það
farið að sjá sífellt fleiri smáatriði fyr-
ir sér. Þegar upp er staðið muna um
70% þátttakenda eftir tilfinninga-
ríkum atburðum sem aldrei gerð-
ust.“
Shaw segir að hafa megi áhrif á
minningar allra. Gáfur hafi ekkert
að segja, en lykilatriði er að viðkom-
andi treysti þeim sem er að vinna
rannsóknina. Reyndar sé auðveldara
að hafa áhrif á börn en fullorðna og
einnig skipti máli hvort spyrillinn sé
opinn eða lokaður persónuleiki.
Þessar niðurstöður benda til þess
að máli skiptir hvernig vitni eru
spurð. Shaw segist þegar hún er
fengin til að meta framburð vitna
fara yfir það hvort aðrar vísbend-
ingar eða sannanir séu fyrir hendi
eða önnur vitni, sem styðji framburð
þeirra. Máli skipti hvort vitnis-
burður hafi breyst í tímans rás. Þá
kannar hún hvort eitthvað hafi verið
gefið í skyn við vitnið við yfirheyrslu
og eins hvort vinir eða fjölskylda hafi
getað haft áhrif á það.
Shaw bendir á að í þremur af
hverjum fjórum röngum dómum,
sem fallið hafi í Bandaríkjunum, hafi
óáreiðanlegar minningar eða vafa-
samur vitnisburður átt þátt í sakfell-
ingu. Það gerist líka aftur og aftur að
rangar játningar liggi fyrir og hinir
dæmdu trúi því að þeir hafi framið
glæpinn, þótt síðar komi ljós að það
geti ekki verið, jafnvel með DNA-
greiningu.
Shaw beitir sér fyrir því að lög-
regluyfirvöld tileinki sér yfir-
heyrslutækni þar sem áhersla er á
að hafa ekki áhrif á eða leiða vitnið.
Minnið getur glap-
ið og blekkt. Úr
þýskum réttarsal.
AFP
MINNISRANNSÓKNIR GRUNNUR GLÆPAÞÁTTA
Er minni okkar
treystandi?
Julia Shaw réttarsálfræðingur.
Ljósmynd/Heike Huslage-Koch