Lögmannablaðið - 2016, Page 8

Lögmannablaðið - 2016, Page 8
8 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/16 Þann 1. desember sl. stóðu Lögmannafélag Íslands og Dómarafélag Íslands fyrir hádegisverðarfundi um nýlegan dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli tveggja einstaklinga gegn Noregi þar sem reyndi á hvort málsmeðferð skattalagabrota í Noregi stæðist ákvæði 4. gr. 7. viðauka við mannréttindasáttmála Evrópu. Fyrir Mannréttindadómstól Evrópu bíða nú til úrlausnar sambærileg mál er varða fyrirkomulag refsimála vegna skattalagabrota á Íslandi og hvort það brjóti gegn framangreindu ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu, þ.e. annars vegar leiðrétting skattaskila fyrir stjórnvaldi, sem lokið getur með úrskurði um 25 % álags á vantalda skattstofna og hins vegar refsiþáttur málsins, sem ýmist er sektarmeðferð fyrir stjórnvaldi eða refsimál fyrir dómstólum og varðað geta fangelsisrefsingu auk sekta. Davíð Þór Björgvinsson, prófessor við lagadeild Kaupmannahafnarháskóla og fyrrverandi dómari við Mannréttindadómstól Evrópu, fór yfir niðurstöðu Mannréttindadómstólsins og mögulega þýðingu hans gagnvart íslenska málinu. EKKI TVÍVEGIS FYRIR ÞAÐ SAMA Hádegisverðarfundur Lögmannafélags Íslands og Dómarafélags Íslands Fullt var út úr dyrum á fundinum og komust færri að en vildu. Davíð Þór Björgvinsson hélt erindi um dóminn og Hildur Ýr Viðarsdóttir hdl. hjá Landslögum var fundarstjóri.

x

Lögmannablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.