Lögmannablaðið - 2016, Síða 28

Lögmannablaðið - 2016, Síða 28
28 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/16 ANDARTAK VIÐ SJÓINN RAGNAR JÓNASSON – SMÁSAGA Hann gat ekki lengur séð sjóinn, en hann fann þó sjávarlyktina. Sterkari en nokkru sinni fyrr. Sami salti og seiðandi keimurinn og hann hafði andað að sér þegar hann kom í fyrsta sinn til Siglufjarðar, í litla afskekkta bæjarfélagið á Norðurlandi, eftir langt og strangt ferðalag þangað með stúlkunni sinni. Áratugir voru liðnir síðan þá. Hann hafði nú búið einn um nokkurra ára skeið í litla húsinu innarlega í firðinum, nokkuð langt frá byggðakjarnanum á eyrinni. Lóð sem fékkst ódýrt á sínum tíma, á stað þar sem aðrir höfðu ekki áhuga á að búa. Skeytti lítið um aðra bæjarbúa og þeir létu sjaldan sjá sig hjá honum. Átti þó nokkra góða kunningja í bænum, leit til þeirra í kaffi öðru hverju, en æ sjaldnar hin síðari ár eftir að aldurinn færðist yfir. Þá var best að sitja bara heima. Aðventan hafði liðið hægt, þykkur snjór lá yfir bænum, stórhríð suma daga og tilveran tilbreytingarlaus. Kuldinn smaug inn um allar glufur á gamla timburhúsinu, en það var ekkert nýtt á þessum norðlægu slóðum. Og nú voru jólin loksins að ganga í garð. Hann var búinn að kveikja á jólakertinu á stofuborðinu eins og venjulega, fyrir hana. Átti sér þá einu ósk að fá að hitta hana aftur. Kertið hefði átt að loga út jólanóttina. Hann hafði kveikt á útvarpinu til þess að missa ekki af messunni. Hangikjötsilmurinn hafði fyllt eldhúsið. Bara dálítill kjötbiti, máltíð fyrir einn. Þau kynntust í heimabæ hennar, sjávarþorpi við Eyjafjörð. Hann var þar í verkamannavinnu, hún var tíu árum yngri en hann. Ung og fögur, eftirsótt af flestum karlmönnum í sveitinni, en féll fyrir honum. Samband þeirra fór leynt til að byrja með og þegar þau trúlofuðu sig sögðu þau engum neitt. Hamingjan vandlega innsigluð með þögninni. Að lokum fór þó svo að þau ákváðu að láta slag standa og biðja föður hennar um að blessa ráðahaginn. Hann tók beiðninni afar illa. Barði í borðið, pírði lúin augun og sagði dimmum rómi að hann fyrr myndi hann dauður liggja. Dóttir hans ætti betra skilið. Þetta gerðist á fallegu sumarkvöldi, en fegurð þess var þó ekki jafn tilkomumikil eftir þessi skýru skilaboð. Skötuhjúin hittust í skjóli nætur, niðurbrotin en ekki buguð. Sumarnóttin var björt og þau töluðu um framtíðina sem þau ætluðu að verja saman. Ekkert skyldi koma í veg fyrir það. Hugurinn reikaði aftur til bernskujólanna, þá var minna umstang en nú. Færri gjafir, meiri hátíðleiki. Ekkert jólatré á heimilinu, það var í mesta lagi að hann fengi að sjá heimatilbúið jólatré fjölskyldunnar á næsta bæ. Á aðfangadagskvöld söng fjölskyldan Heims um ból. Nú var hann löngu hættur að syngja. Undanfarin ár hafði hann leyft kirkjukórnum í útvarpinu að syngja fyrir sig í staðinn.

x

Lögmannablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.