Fylkir


Fylkir - dec. 2020, Side 15

Fylkir - dec. 2020, Side 15
15FYLKIR - jólin 2020 ° ° og Gísla, bróður sínum, að hús- ið hafi nötrað og skolfið í aust- anveðrum. Þorsteinn hafði þó endurbætt Eldra-Laufás mikið og reið það vafalaust baggamuninn að húsið fyki ekki af grunni í einu mesta austanroki sem komið hef- ur í Eyjum í lok nóvember 1908. Þá þurfti hraustur maður á Kirkjubæ að skríða eftir götu til að komast heim til sín því óstætt var. Í þess- um stormi fauk Skjaldbreið, nær fullsmíðað hús, og mölbrotnaði. Eldri-Laufás gat ekki orðið fram- tíðarumgjörð um hið umsvifa- mikla útvegsheimili. En af torfunni vildu þau ekki fara. Magnús Ísleifsson í London var yfirsmiður við byggingu Laufáss, eins og svo margra annarra húsa á þeirri tíð í Eyjum. Hann hefur sennilega teiknað nýja húsið líka eða rissað það upp. Teikningar af því finnast ekki, og vera má að þær hafi aldrei verið til, aðeins í huga Magnúsar. Anna í Laufási segir að raftar hafi verið settir á gamla húsið og því verið velt út af grunninum og þá hafi það hrunið eins og „spilaborg“. Nýr kjallari hef- ur verið steyptur og hafist handa við timburverkið. Húsið reis á skömmum tíma. Efnið var innflutt og e.t.v. tilsniðið að einhverju leyti. Um haustið, í september 1912, flyst fjölskyldan inn. Kostnaður var tæplega 15 þús. kr. Sveitser-hús. Laufás er dæmigert sveitser-hús en svo er þau hús kölluð sem tekið var að byggja hér á landi seint á 19. öld og á fyrstu áratugum 20. aldar undir norskum áhrifum. Sveitser- stíll rekur nafn sitt og upphaf til svissneskra og austurrískra sveita- húsa sem eru þekkt fyrir voldug þök með framslútandi þakbrún- um. Þýskir arkitektar hrifust af al- þýðubyggingum Alpanna og hófu að líkja eftir einkennum þeirra. Þaðan bárust þessi áhrif til Noregs um miðja 19. öld. Í kjölfar vélvæð- ingar í norskum timburiðnaði urðu til háþróaðar verksmiðjur, m.a. í Strömmen og Mandal, sem fjölda- framleiddu timburhús, tilsniðið byggingarefni og húshluti til út- flutnings. Sveitser-húsin reyndust afar hentug á norðlægum slóðum. Íslensku húsin fengu þó sín sér- kenni og mest munar þar um bárujárnið sem svo vel dugði hér- lendis til að verja hús fyrir vatni og vindi. Þessi hús eru úr timbri, standa á steyptum kjallara, þakið bratt og slútir nokkuð yfir útveggi, flest portbyggð. Talsvert skraut er á húsunum, einkum í kringum glugga, sem flestir hafa kross- pósta. Sum húsanna eru með sval- ir en svo var almennt ekki í Eyjum. Inngangur er á gafli, lofthæð mikil og gert ráð fyrir ýmsum þægind- um eins og innisalerni. Útfærsla þessara húsa er margvísleg. Í nær öllum bæjum á Íslandi má sjá sveitser-hús og er sumum vel við haldið og þykja bæjarprýði. Einna þekktust er húsalínan vestan við Tjörnina í Reykjavík með Ráð- herrabústaðinn í öndvegi. Í Eyjum voru mörg sveitser-hús byggð um og upp úr aldamótum. Má þar auk Laufáss nefna Lönd, Skjald- breið, Hof, London, Þingvelli, Skuld, Höfðabrekku og mörg fleiri. Sum sveitser-húsanna á Íslandi voru forsmíðuð í verksmiðjum í Noregi (katalóg-hús). Ekki eru þó tiltækar beinar heimildir um slík hús í Eyjum, en mjög líklegt að húsið Breiðablik, sem er alveg eins og tvö önnur í Reykjavík, sé flutt inn tilhöggvið og sett saman á byggingarstað. Og svo gæti líka verið um Dagsbrún, sem síðar var forskalað, illu heilli, og Hól. Þess konar hús voru fremur með svöl- um og meira skrauti en önnur. Húsanafnið „Mandal“ (ekki -dalur) bendir til að byggingarefni hafi borist frá þeim bæ í Noregi til Eyja, og hefur þá áreiðanlega ver- ið tilsniðið, þ.e. allar stoðir í húsin, gluggar, klæðning og fleira, ver- ið merkt og aðeins þurft að setja húsið saman á staðnum. Íslenskir smiðir, m.a. í Vestmanna- eyjum, höfðu tileinkað sér grund- vallaratriði húsasmíðalistarinn- ar, þekktu hlutföll, stærðir, form og alla „skematík“ byggingar í sveitser-stíl. Má þar nefna Svein Jónsson á Sveinsstöðum, svo og Magnús Ísleifsson í London við Miðstræti. Þeir þurftu því ekki að styðjast við nákvæmar byggingar- teikningar. Jafnan tók stuttan tíma að koma íslensku sveitser-hús- unum upp og svo var um Laufás þegar Magnús byggði það sumar- ið 1912. Sá sem byggja vildi hús eins og Þorsteinn Jónsson árið 1912 kom þá að máli við húsasmíðameist- ara eins og Magnús í London og „pantaði“ hús. Hann þurfti að- eins að tilgreina óskir sínar um meginstærðir, grunnflöt, hæðir o.s.frv. Annað rakti sig við útfær- slu hússins eða var unnt að hnika til eftir þörfum húseiganda, svo sem hvort vera ætti kvistur á hús- inu eða ekki, eða um nánara fyr- irkomulag innandyra. Laufás er t.d. „sex-glugga-hús“ með kvisti og útbyggingu (bíslagi), en Skuld var „sjö-glugga-hús“ (tvær íbúðir á hvorri hæð) með kvisti. Hof var „fimm-glugga-hús“ (kvistlaust), Mandal „fjögurra-glugga-hús“, kvistlaust, svo að dæmi séu tekin. Annars voru þessi hús afar lík að gerð þótt misstór væru. Stóru- Lönd, sem voru byggð 1909, voru t.d. sláandi lík Laufási, sex gluggar langsetis, en risið (portið) hærra í Laufási og útbygging í austur stærri (hlaðan). Miklu réð þó um útlit húsanna hvar og hvernig þau stóðu. Þar var Laufás í sérflokki, tók sig afar vel út á sínum stað. Sama gilti raunar um Lönd, en húsið Skjaldbreið, sem var nauðalíkt Laufási, „fimm-glugga-hús“, naut sín miklu síður því að þröngt var um það við Urðaveg, auk þess sem byggt var við það austan megin sem spillti útliti þess nokkuð. Engar meiri háttar breytingar voru gerðar á Laufási frá því að það var byggt 1912 þar til það eyðilagðist í gosinu 1973. Engar utan húss og sáralitlar innan húss, en þó þær að vatnssalerni kom á loftið og þurftu íbúar þá ekki lengur að fara á kamarinn erinda sinna en hann var byggður inn í norðvestur-horn fjóssins. Seinna var svo útbúið baðherbergi á hæðinni. Húsráðendur eru enda hinir sömu mestallan tímann, og sennilega ekki breytingagjarnir, en viljað hafa alla hluti í góðu horfi. Aðaltröppur hússins vestan megin voru endurnýjaðar, og sömuleið- is grindverk utan um garðflötina. Viðhald Laufáss var gott alla tíð og húsið í góðu standi. Innan húss í Laufási. Herbergjaskipan í Laufási breytt- ist ekkert að ráði frá byggingu þess fram að gosinu, né að öðru leyti hvernig þau voru notuð. Frá miðri öld, fyrir og um 1950, er vitað með vissu hvernig öllu var skipað innan húss. Elínborg Jónsdóttir, dóttir Önnu og Jóns Guðleifs, bjó í Laufási með foreldrum sínum frá fæðingu 1941 og fram til þess að þau byggðu sér hús í næsta nágrenni og fluttu þangað árið 1955. Og hún var að sjálfsögðu tíður gestur hjá afa og ömmu eftir það og fylgdist með öllu á „höfuð- bólinu“. Á aðalhæðinni sunnan megin, sem við blasti af götunni, voru þrjár stofur, hver með tveim gluggum jafnstórum. Vestast var „stássstofa“ sem að venju var ekki opnuð eða notuð nema við allra hátíðlegustu tækifæri. Austast var svefnherbergi þeirra hjóna, en á milli borðstofan, sem var annar að- alvettvangur hússins auk eldhúss. Í borðstofunni var jafnan dvalist og tekið á móti gestum. Þar sat hús- bóndi og las og skrifaði á kvöldin og þar sat húsfreyjan við hannyrð- ir. Þar var hlustað á útvarp eftir að það kom til sögunnar og matast þegar eitthvað var haft við. Mynd- ir voru á veggjum, bókaskápar og skrifborð Þorsteins í vesturhorni, saumavél Elínborgar og rokkur. Orgel var í borðstofunni og tóku systurnar og Ástþór stundum í það og spiluðu. Í „betri stofunni“ var fínt en gamaldags sófasett og borð. Milli þessara herbergja þriggja voru skothurðir og mátti renna þeim frá og opna á milli við sérstök tækifæri og hafa þar langt borð. Spariinngangurinn á vestur- stafni hússins var sárasjaldan not- aður og þá aðeins í viðhafnarskyni. Úr forstofunni þar var hurð inn í stofuna en við vesturvegginn var skápur og þar héngu m.a. spariföt húsbóndans með heiðursmerkj- um í jakkaboðungi. Norðan megin var útbygging (bíslag) fyrir miðri húshlið þar sem langoftast var gengið inn. Þar voru dyr inn að hjarta hússins og helsta samkomustað, eldhúsinu, sem var rúmgott, með eldavél og stóru vinnuborði, og búr inn af því. Í eldhúsinu var stórt matar- borð þar sem snætt var frá degi til dags og áttu þar allir sitt fasta sæti, húsráðendur hvor við sinn enda. Úr eldhúsi var gengið inn í „stúlkna-herbergi“ austan megin. Í því bjuggu áður vinnustúlkur en varð síðar barnaherbergi. Þær voru áður á heimilinu húsmóð- urinni til aðstoðar þegar þar var í mat öll hin stóra fjölskylda, vinnu- menn og vertíðarfólk, stundum yfir 20 manns. Einu sinni voru þar 28 borðgestir. Stúlknaherbergi var löngu síðar skipt og gert þar bað- herbergi (salerni og baðker) við austurvegginn og annað lítið her- bergi sem Þorsteinn hafði m.a. til ritstarfa á efri árum, hvort um sig með norðurglugga. Á vinstri hönd, þegar komið var inn úr anddyri, var stigi upp á loft- ið, allbrattur. Þar voru átta herbergi, auk gangs. Á fyrri árum voru á efri hæðinni, svo og í efra risi, vinnu- menn og vertíðarmenn á báti Þor- steins, sjómenn, aðgerðarmenn og beitumenn. Í suðurkvistinum var á árunum 1920-1922 rekinn smá- barnaskóli í Laufási. Þegar Þórhild- ur kom heim eftir nám í Kvenna- skólanum tók hún, ásamt Önnu á Vegamótum, að kenna lestur og fleira gott ungum krökkum sem síðar urðu góðborgarar í Vest- mannaeyjum. Uppi á efri hæðinni var allsnemma sett klósett í lítið herbergi í norðausturhorni. Þegar dætur Þorsteins og Elínborgar stálpuðust og stofnuðu heimili voru gerðar tvær íbúðir á hæðinni, önnur handa Önnu og fjölskyldu hennar vestan megin, en hin fyrir Beru og hennar fólk austan megin. Og enn síðar, þegar þessar fjöl- skyldur fluttust í nýbyggð hús sín í nágrenninu fengu Dagný og Bogi hæðina alla til afnota fyrir sig og börn sín. Risið, háaloftið, var opið rými, en þar voru áður nokkur rúmstæði þar sem sjómenn gátu sofið. Var stigi af efri hæð upp á háaloftið. Annars var þar á seinni árum geymsla fyrir matvæli, t.d. sekkjavöru, mjöl, sykur, kaffi o.fl. Í kjallaranum var löngum lítil íbúð í vesturenda, nokkuð niður- grafin og ekki full lofthæð, á að giska 40 m2. Hún var leigð út, eldhús og stofa, með sérinngangi undir tröppunum að vestan og forstofu. Í húsnæðishraki fyrri ára gerðu menn sér slíkt að góðu. Þar bjuggu á síðari árum ýmsir þekkt- ir Eyjamenn, svo sem Hermann Jónsson, Þorgils og Lára, kennd við Grund, Haraldur Guðnason bókavörður og Ille, kona hans; þar eignuðust þau fyrsta barn sitt. Að öðru leyti var kjallarinn undir þvottahús, auka-eldhús þar sem var mikil kolaeldavél og skilvinda og margt fleira. Í kjallara var enn fremur kolageymsla áður fyrr en síðar miðstöðvarofn (fýr). Íbúðarhúsið var um 100 m2 að gólffleti, hver hæð, auk bíslagsins Elínborg Jónsdóttir: Æsku- og unglingsár í Laufási Ég fæddist í Laufási þar sem foreldrar mínir bjuggu á vestur- loftinu eins og það var kallað, frá upphafi hjúskapar síns árið 1939 þar til við fluttumst í nýbyggt hús fermingarárið mitt 1955. Íbúðin á loftinu var ekki stór en þar fæddust einnig bræður mín- ir, Óli árið 1948 og Steini 1951. Jó- hann fæddist í nýja húsinu 1956. Á loftinu hjá okkur var lítið eld- hús á norðurkvisti og inn af því lítið herbergi undir súð. Í barn- æsku minni hafði þetta herbergi gömul kona sem alltaf var kölluð Stína. Hún hafði verið vinnukona hjá ömmu og afa til fjölda ára en þegar ég man hana var hún löm- uð og rúmliggjandi og annaðist mamma hana, og ég man eftir að pabbi var að snúa henni í rúminu þegar hann kom heim af sjónum á kvöldin. Ég lék mér mikið inni hjá henni. Síðan var stofa með tveimur gluggum í vestur og inn af stofunni var súðarherbergi þar sem pabbi og mamma sváfu á dívan sem kallaður var, tvíbreið- um, en þætti varla fyrir eitt barn í dag. Ég svaf á dívan í stofunni en hann gegndi hlutverki sófa á daginn. Þetta var nú íbúðin okkar. Það var náttúrlega ekkert baðherbergi heldur útikamar. En þetta var bara hluti af loftinu. Á austurloftinu voru tvö herbergi og stórt herbergi á suðurkvisti. Þessar vistarverur tilheyrðu íbúð ömmu og afa á neðri hæðinni. Síðar var þar útbúin íbúð fyrir Beru, systur mömmu, og hennar fjölskyldu og einnig var útbúið baðherbergi undir súð. Það var þiljað af öðru herberginu aust- ur á. Þvílíkur lúxus það var að fá baðherbergi og vatnssalerni, en ekki man ég hvaða ár þetta var, sennilega skömmu fyrir 1950. Aldrei man ég eftir ósætti á milli heimilanna þótt búið væri í svo miklu nábýli. Á neðri hæð- inni bjuggu amma og afi ásamt yngstu dætrum sínum Dagnýju og Ebbu, og Ástþóri. Magnús Ísleifsson húsasmíða- meistari (1875-1949) frá Kana- stöðum í Landeyjum, oftast kenndur við hús sitt „London“ í Vestmannaeyjum. Hann byggði Laufás 1912. Sagt var um Magn- ús í minningargrein að hann hefði byggt „aragrúa af íbúðar- húsum“ í Eyjum og „má segja að hann hafi verið þar við riðinn allar helstu stórsmíðar frá því fyrst hann kom þangað og þar til hann brast heilsu.“ BETRI STOFAN BORÐSTOFAN SVEFN-HERBERGI HJALLUR HLAÐA FJÓS HESTHÚS "STÚLKNA" HERBERGI ELDHÚS BÚR FORSTOFA STIGI BÍSLAG PRODUCED BY AN AUTODESK STUDENT VERSION PR O D U C ED B Y A N A U TO D ES K S TU D EN T VE R SI O N PRODUCED BY AN AUTODESK STUDENT VERSION PR O D U C ED B Y A N A U TO D ESK STU D EN T VER SIO N Aðalhæð Laufáss. Þannig var herbergjaskipan alla tíð nema hvað „stúlknaherbergi“ var skipt og gert baðherbergi við austurvegg og lítil skrifstofa fyrir Þorstein við hliðina. Kaffiboð í borðstofunni í Laufási. Hurðum milli herbergja hefur verið rennt frá og sér inn í „betri stofu“. Myndin, sem er frá því fyrir 1950, er tekin úr svefnherberginu. Elínborg húsfreyja stendur í dyragættinni nær en Dagný fjær.

x

Fylkir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.