Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.09.1991, Blaðsíða 10

Bæjarins besta - 18.09.1991, Blaðsíða 10
10 BÆJARINS BESOA • Miðvikudagur 18. september 1991 var báturinn kominn af stað. Pað var nú lánið, annars hefði ég hrokkið út. Ég veit ekki hvað hefði getað gerst, en svona getur maður verið vitlaus. Svo fór ég að draga til mín færið og finn það að hún kvikar ekki lengur. Annars var hún ofansjávar með hvítuna upp í loftið. Hún var steindauð, þetta voru dauðateygjurnar í henni svona miklar. Það hefði ver- ið ógurlegt hefði fundist maður á reki með dauða spröku í eftirdragi. Ég gat náð henni inn því ég var bú- inn að fiska dálítið. Hún var 120 kg. Þegar ég dró upp drekann kom í ljós að álm- urnar voru brotnar, tvær, og það bjargaði mér.“ Með gapandi kjaftinn og lappirnar á borðstokknum „Einu sinni vorum við Öl- ver heitinn sonur minn hérna úti á Grunni. Þá skaut ég á stóran landsel og hann hálfdrapst. Það hittist nú svo á að skotin voru búin og þetta var síðasta skotið. Ég tók þá hneifina og krækti í hausinn á honum. Þá fór hann náttúrlega niður og ég gaf honum eins og sprök- unni. Svo þegar ég byrjaði að draga hann til mín þá fann ég að allt var laust. Þá kemur hann bara með gap- andi kjaftinn með lappirnar upp á borðstokkinn. Hann fann að hann var fastur og ætlaði að ráðast á mig. Ég gat slegið hann með goggn- um á nasirnar þar til hann gaf sig. Þetta er ljótasta að- ferð, sem ég hef vitað um við sel, og hef ég skotið þá marga.“ Reglulegt happ að f á tóf u „Ég er búinn að skjóta margar tófur. Flestar mínar tófur skaut ég nú bara dag- tíma. Rakti förin þeirra í snjó og gat komist að þeim svoleiðis. Ég skaut þær líka við agn. Ég get sagt þér hvernig tilviljanir geta ver- ið. Einu sinni var ég í tófu og fór út á Reykjanesbjörg, þar fékk ég flestar mínar tófur. Þar lágu þær venju- lega inni í urðum. Það kom fyrir að ég varð að svæla þær út. Þess þurfti ekki í þetta skiptið, ég rak bara inn hlaðstokkinn og það glamr- aði svo í honum. Þá skaust út hvít tófa. Ég var ekki nógu fljótur að skjóta hana og hún komst í hvarf. Hún hljóp heim Björg og ég rakti förin hennar. Þegar ég kom þar sem flugvöllurinn er núna þá hætti ég við hana, alveg. Það var komið norð- an kul og skafrenningur. Pabbi var búinn að biðja mig að fara í vitann um leið og gerði ég það. Ég stoppaði svolitla stund í vitanum og held svo bara mína koppagötu beina lcið heim. Þegar ég er kominn þarna dálítið upp fyrir þá sé ég hvar tófan er að koma. Þegar hún sá mig þá lagðist hún niður og ætlaði að láta mig ganga hjá sér. Ég var nú slóttugur líka og gekk til hliðar við hana og passaði að þegar ég væri þvert af henni þá væri ég í færi. Þeg- ar ég var svo kominn í sæmi- legt færi þá sneri ég mér snöggt til og skaut. Hún stökk upp rétt um leið og skotið hljóp af og steinlá. Þarna undir Björgunum eru holgrýtisurðir sem tófurnar liggja inni í yfir daginn á vet- urna. Eitt sinn fórum við Jakob að sækja kindurnar og ég hafði með mér byssu eins og venjulega. Við fórum undir Björgin og sáum talsvert mikið af tófuförum. Jakob minn fór að kraka þarna inn í holu og ég var búinn að láta skotið í, ef það kæmi tófa. Hann var ekki búinn að kraka lengi þegar skaust út mórauð tófa. Ég skaut á eftir henni á sprettinum og hún lá eins og steinn. Svo sótti Jakob tófuna og hann langaði að gamni sínu að vita hvort ekki væri þarna önnur tófa. Ég segi það geti ekki komið til mála, að svo sé, en set þó skot í byssuna. Hann var ekki búinn að kraka lengi þegar kemur aftur tófa. Hún fór sömu leiðina, auðvitað. Þetta voru afskaplega fallegar tóf- ur, tvær. Það eru ekki nema nokkur ár síðan þetta var og þetta voru með síðustu tóf- unum sem ég skaut. í gamla daga var reglulegt happ að fá tófu, það var svo gott verð á þessu. Skinnið lagði sig á kýrverð. Nú er ekkert verð á skinnunum og tófu- eldið komið mest á haus- inn.“ Það á að nytja náttúruna „Þessi friðunardella er tóm vitleysa. Islendingar eru t.d. búnir að stunda hval- veiðar í 40 ár og ég get ekki séð að það hafi háð hvala- stofninum neitt. íslendingar eiga ekki að láta útlenda friðunarvitleysinga segja sér neitt fyrir verkum á neinn hátt. Það á að nytja selinn, hvalinn og gæði náttúrunn- ar. Þessi fiskveiðistefna er ekki rétt á margan hátt. Mér finnst ekkert réttlæti í því að menn fái kvóta og selji hann svo. Þarna fá menn peninga fyrir bókstaflega ekki neitt. Er ekki nær, ef mennirnir vilja ekki veiða kvótann, að hann falli niður, ekki veitir nú þorskstofninum af, eða þá að úthluta einhverjum öðrum honum? Hvaða vit er að setja tveggja, þriggja og upp í fimm tonna trillur í bann? Þetta er stuttur tími sem þær geta stundað veið- ar. Við megum ekki fara á sjó tíu daga í ágústmánuði. Þetta er besti tíminn okkar, bæði vegna veðurlagsins og svo er fiskurinn mestur þá, hjá okkur. Þetta er ekki nema stuttur tími sem við getum stundað sjó.“ Allt er bannað „Mér líst ekkert á þessa stjórnmálamenn. Það kom þarna einn fram í meinhorn- inu í útvarpinu. Hann talaði alveg eins og ég hefði. verið að tala. Nema það, að ég viðurkenni kannski ekki, að annar hver íslendingur sé geggjaður. Hann sagði það að svo væri. Ég held að það sé hátt upp í það. Þessir geggjuðu menn eru að kjósa sér þessa menn í ábyrgðar- Enginra venjulegur klúbbur -enginn venjulegur banki! MEÐ ÞÉR FYRIR ÞIG! Nú kynnir íslandsbanki sérstakan klúbb sem heitir Unglingaklúbbur íslands- banka, UK-17. Hann bobar nýja tíma í fjár- málaþjónustu fyrir sjálfstætt ungt fólk. Klúbburinn er sérsniðinn ab þörfum þess og býður upp á möguleika og þjón- ustu sem 13-17 ára unglingum hefur ekki staöiö til boba ábur. UK-17 er því enginn venjulegur klúbbur. Ef þú gerist meölimur í UK-17 býöst þér fjölbreytt þjónusta þar sem starfsfólk Islandsbanka vinnur með þér og fyrir þig. Þetta fœröu í UK-17: VASAKORT Þú færð afhent Vasakort sem gengur í 25 Hraðbanka og gildir einnig sem sérstakt klúbbskírteini. RÁÐGJÖF Þú nýtur aðstoðar hjá þjónustufulltrúum bankans um ýmis mál sem tengjastfjármálum. DAGBÓK Þú færð skemmtilega dagbók og penna við inngöngu í UK-1 7. Dagbókin nýtist þér vel í skóla og við skipu- lagningu fjármála þinna. TILBOÐ! Ef þú leggur inn 5.000 krónur eða meira við inngöngu í UK-1 7 færðu, auk alls annars, hljóðsnældu meb 12 íslenskum stublögum. Þú sækir um aðild að UK-1 7 í næsta Islandsbanka. Komdu í klúbbinn, við eigum ábyggilega vel saman! HRAÐBANKAR í Hraðbankanum, sem opinn er allan sólarhringinn, getur þú tekið út, lagt inn og skobab stöðuna á Vasakortareikningnum þínum. UK-17 Unglingaklúbbur Islandsbanka Með þér-fyrir þig! REGLUBUNDINN VASAPENINGUR Þú getur geymt peningana þína á Spari- leið 2 sem ber góða vexti og samið um að ákveðin upphæð sé millifærð vikulega á V/a«:aknrtarpikninninn hinn störf og það er ekki von að það sé betra en það er. Ég álít að áður hafi margt verið mikið skárra en nú orðið. Á íslandi er það lítið skárra heldur en í Rúss- landi. Hvað mega menn? Eru íslendingar ekki orðnir eins og hverjir aðrir fangar? Enginn má eiga krónu án þess að hún sé tekin í alls lags skatta. Við sjáum t.d. að ef fólk nennir ekki að vinna, þá lifir það á atvinnu- leysisstyrk. Ég heyrði í frétt- unum um daginn, ég held að það hafi verið í Neskaup- stað. Þeir voru að panta 40 Pólverja vegna þess að það fæst enginn Islendingur til þess að vinna. Svo þarf maður leyfi til þess að fara á sjó og draga fisk í kjaftinn á sér. Maður má eiginlega ekki nokkurn skapaðan hlut. Við megum ekki leng- ur hafa rollur fyrir sjálfa okkur til að éta. Mér er sagt að í Norðurtanganum á Isa- firði sé helmingur verka- fólksins útlendingar. Sko, kvenfólkið núna er o'f fínt til þess að vinna í fiski." Ég er bara núll „Hvort ég er á förum frá Gjögri, ég ræð nú líkast til litlu um það. Það er náttúr- lega ekki hægt að hanga hér yfir mér. Strákarnir hefðu gott af því að vinna annars- staðar. Það eru engir eftir á hinum bæjunum í Gjögri nema Adolf. Hann verður í burtu í vetur. Það getur ver- ið að við verðum ekki hérna í vetur en við komum norð- ur aftur næsta vor, náttúr- lega, til að fara á grá- sleppunna. Þeir ráða þessu strákarnir. Ég er bara núll.“ - GHj. • „Svo þarf maður leyfi til þess að fara á sjó og draga fisk í kjaftinn á sér. Maður má eiginlega ekki nokkurn skapaðan hlut. Við megum ekki lengur hafa rollur fyrir sjálfa okkur til að éta.“

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.