Bæjarins besta - 12.02.1992, Qupperneq 1
ÓHÁÐ
FRÉHABLAÐ
/
A
VESIÍJÖRÐUM
___ • __
DREJFT ÁN ENDURGJALDS
AÐDJ AÐ SAMTÖKUM
BÆIAR- OG HÉRAÐSFRÉITABLAÐA
MIÐVIKUDAGUR
12. FEBRÚAR 1992
6. TBL. • 9. ÁRG.
Slasaðist
á vélsleða
\ ÐFARARNÓTT
XjLsíðastliftinn laugar-
dag slasaðist ungur maður
illa á baki er hann féll af
snjósleða á Flateyri. Var
jafnvel talið að hann hefði
hryggbrotnað.
Björgunarsveitin á
Flateyri var kölluð út um
kl. 05 á laugardagsmorg-
un og kom hún manninum
til hjálpar. Hann var síð-
an fluttur með sjúkraflugi
til ísafjarðar og síðar til
Reykjavíkur þar sem
hann var lagður inn á
Borgarspítalann.
Ekki er vitað nánar um
tildrög slyssins en talið er
að hinn slasaði hafi lent á
steini er hann féll af sleð-
anum. -s.
■ W* Reglubundinn
JL • spamaður
Landsbanki íslands Réttu megin við strikið,
ísafirði S 3022 . með Reglubundnum sparnaði
Suðureyri:
Suðurver og
Kögurás tekin til
gjaldþrotaskipta
ERSLUNIN Suðurver i
á Suðureyri sem und-
anfarin misseri hefur verið
eina matvöruverslunin á
staðnum var síðastliðinn
mánudag tekin til gjald-
þrotaskipta hjá bæjarfógeta-
embættinu á Isafirði.
í síðustu viku var annað
fyrirtæki á staðnum tekið til
gjaldþrotaskipta en það var
fiskvinnslufyrirtækið
Kögurás hf. Bæði fyrirtækin
voru tekin til gjaldþrota-
skipta að beiðni stjórnar fyr-
irtækjanna. Innköllun hefur
verið gefin út í kröfur í
þrotabúin og mun auglýsing
þar að lútandi birtast í Lög-
birtingarblaðinu á næstu
dögum.
Ekkí er á þessari stundu
hægt að segja til um hversu
stór gjaldþrot er hér um að
ræða en eignir fyrirtækjanna
eru mismiklar. Hjá Suður-
ver er aðeins um að ræða
lager og tæki í versluninni
en húsnæðið sjálft var selt
fyrir stuttu á nauðungarupp-
boði og var kaupandinn
Suðureyrarhreppur. Eignir
Köguráss hf. eru m.a. fisk-
vinnsluhús og tæki við Aðal-
götu auk fiskvinnsluhúss á
hafnarsvæðinu á staðnum.
Húsnæði Köguráss við Að-
algötu var áður í eigu Bylgj-
unnar hf. á Suðureyri en
það fyrirtæki var tekið til
gjaldþrotaskipta árið 1989.
-s.
Bolungarvík:
Styrktarsjpður
til handa Astu
NOKKRIR velunnarar
skíðaíþróttarinnar í
Bolungarvík hafa stofnað
gíróreikning hjá Sparisjóði
Bolungarvíkur til styrktar
Ástu Halldórsdóttur, eina
kvenþátttakanda Islands á
Ólympíuleikunum í Albert-
ville í Frakklandi, sem hóf-
ust á helginni.
Gíróreikningurinn er
númer 999 og vilja þeir sem
að honum standa hvetja alla
áhugamenn um skíðaíþrótt-
ina til þess að leggja sitt af
mörkum til styrktar Ástu.
Skíðasamband íslands greið-
ir ferðir Ástu til og frá
Frakklandi en önnur útgjöld
verður hún að sjá sjálf um,
því er það henni mikils virði
og enn meiri hvatning til
frekari dáða, að vita af góð-
um stuðningi að heiman.
-s.
Prentaður límmiði-óáprentaður límmiði-Rauðurlímmiði-gulurlímmiði-grænn
límmiði - blár límmiði - bleikur límmiði -ferkantaður límmiðí - kringlóttur límmiði
- sporöskjulaga límmiði - Límmiði með gati - límmiði á disklinginn - límmiði
á videospóluna - límmiði á umslagið - límmiði á pakkann -fæst í H-PRENTI í stór-
um pökkum eða litlum pökkum, jafnvel á rúllum, allt eftir þínum þörfum. Ef við
eigum hann ekki tii þá útvegum við hann, skerum hann til eða prentum hann.
Fokker-flugvél veðurteppt
í þrjá sólarhringa
EIN af Fokker-flugvélum Flugleiða, Vorfari, var veðurteppt á ísafjarðarflugvelli
Vegna ísingar og slæms veður frá því á miðvikudag til laugardags í síðustu viku. Vél-
in lenti í svokallaðri ísrigningu á leiðinni til ísafjarðar og var klakabrynjuð er hún lenti.
Afísa þurfti vélina vandlega áður en hún lagði af stað í loftið aftur en nógu sterkur afísing-
arvökvrvar ekki til á ísafirði og tepptist því vélin á vellinum. Meðfylgjandi mynd var tekin
á Isafjarðarflugvelli á föstudag og sýnir Arnór Jónatansson, umdæmisstjóra Flugleiða á
Isafirði fyrir framan klakabrynjaðan Vorfara.
Faxpappír
ódýr og
vandaöur... H - PRENT HF.
...avallt á lager sóigötu9-®4560
göll#, Snjósleðamenn! Félagsfundur í Snæfara verður fimmtudaginn 13. febrúarkl. 21 í Harðarskáia. Nýjar videómyndir. Félagar fjölmennið.
RITSTJÓRN s 4560 • FAX S 4564 • AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT S 4560