Bæjarins besta

Ataaseq assigiiaat ilaat

Bæjarins besta - 12.02.1992, Qupperneq 2

Bæjarins besta - 12.02.1992, Qupperneq 2
2 BÆJARINSBESIA ■ Miðvikudagur 12. febrúar 1992 Vestfirðir: Mestur munur á verðlagi milli Vest fjarða og höfuðborgarsvæðisins SAMKVÆMT könnun sem gerð var í október síðastliðinum af Verðlags- stofnun var verðlag í versl- unum á landsbyggðinni 4,9% hærra en verðlag í verslunum á höfuðborgar- svæðinu. Hefur verðlag á landsbyggðinni farið hækk- ■ NYJAR ^ MYNDIfí VIKULEGA THE RUSSIA HOUSE Að kalda stríðinu loknu fella saman hugi breskurútgefandi (Sean Connery) og Katya (M. Pfeiffer), rússneskur sendiboði. Hún hefur yfir að ráða skjölum um eitt merkasta gabb f sögu alls vopnakapphlaupsins. Gabb sem gæti hrist verulega upp í samskiptum austurs og vesturs. Embættismenn og spæjarar beggja aðila svífast einskis til að komast yfir skjölin. RICH GIRL Courtney er 21 árs gömul falleg stúlka sem á allt sem hugurinn girnist. Faðir hennar er einn ríkasti maður landsins. Hún hittir Rick sem er gítarleikari. Hún heldur uppruna sínum leyndum... JR-VIDEO VIÐ NORÐURVEG S 4299 andi á síðustu tveimur árum í samanburði við verðlag á höfuðborgarsvæðinu. Munurinn á verðlagi á Vestfjörðum og höfuðborg- arsvæðinu hefur aukist mest á umræddu tveggja ára tímabili en munurinn hefur hins vegar minnkað á Suð- urnesjum vegna aukinnar samkeppni stórmarkaða. Samanborið við höfuðborg- arsvæðið var verðlag á Vest- fjörðum 6,1% hærra en 1989, en 9% hærra 1991. Georg Ólafsson, verð- lagsstjóri segir í samtali við Morgunblaðið að verðbólga hafi þarna ákveðin áhrif þar sem veltuhraðinn sé hægari á landsbyggðinni og þá sé hin aukna samkeppni stór- markaða þýðingarmest. Þá sagði Georg: ,.Kaupmenn hafa kvartað yfir því að þarna sé jafnvel að myndast óeðlilegt ástand, þar sem af- slættir til stórmarkaðanna séu orðnir meiri en efnisleg rök séu fyrir. Lægra verð til neytenda með þessum hætti þykir mörgum hins vegar af hinu góða, og það er rétt svo langt sem það nær. Ef hins vegar er um að ræða hækk- un á álagningu til smákaup- manna og kaupmanna á landsbyggðinni þá hörfir málið öðru vísi við, og telj- um við fulla ástæðu til að kanna það nánar hvort svo sé“ sagði Georg. Georg sagði að sérstak- lega yrði könnuð áhrif heild- sala á landsbyggðinni á vöruverð, en svo virðist sem þeir drægju að einhverju leyti úr samkeppninni á við- komandi stöðum, og kostn- aður vegna rekstrar um- boðs- og heildverslana hefi lagst ofan á voruverð þar. Hafsteinn Vilhjálmsson, heildsali. á ísafirði sagði í samtali við blaðið að það væri ekki rétt sem fulltrúi Verðlagsstjóra lét hafa eftir sér í útvarpinu a.m.k. ætti það ekki við starfsemi hans að hann legði á vöruna. „Eg vinn eingöngu á af- slætti, þ.e.a.s. þeim afslætti sem ég fæ hjá heildsölum í Reykjavík og innlendum framleiðendum og í mörg- um tilfellum borga þeir und- ir vöruna þannig að ég er að selja hana á þeirra skráða verði. Það er tóm tjara að Hafsteinn Vilhjálmsson, heildsali á ísafirði. við séum að teggja okkar rekstrarkostnað ofan á vör- una. Einu tilfellin sem eitt- hvað er lagt ofaná, er þegar þeir borga ekki undir vör- una, þá kemur flutnings- kostnaður.“ -Hver er þá skýringin á þessum verðmun? „Það er náttúrulega eðli- leg skýring á þessum verð- mun miðað við stórverslan- irnar sem jafnvel hafa verið að selja vörurnar undir heildsöluverði, hvernig í ósköpunum sem þeir fara nú að því, á sama tíma og þeir sem selja þeim vörurnar, þræta fyrir að selja þeim vörurnar svona ódýrt. En það er annað. Mér finnst það stórgalli á svona könn- unum, hvað það líður langur tími frá því þær eru gerðar og þar til þær eru birtar. Hvorki neytandinn né kaup- maðurinn hefur gagn af svona könnun. Svona kann- anir þyrftu að gerast í þess- ari viku og birtast í þeirri næstu. Hér er verið að tala um margra mánaða gamla verðkönnun. Þetta er jafn- vel á þeim sem jólatilboðið voru byrjuð í Reykjavík, langt á undan landsbyggð- inni“ sagði Hafsteinn. Lesendur: Til skíðagöngu- fólks í T ungudal EG UNDIRRITUÐ vil koma þeirri ábendingu til skíðagöngufólks að bíla- plan við Bræðratungu er ein- göngu ætlað fyrir starfsfólk og þeirra er sækja Bræðra- tungu heim. ítrekað hefur það gerst á undanförnum vetrum, að þegar starfsmenn Bræðra- tungu koma til vinnu sinnar á helgum er bílaplanið yfirfullt af bílum skíðagöngufólks. Þetta skapar oft vandræða- ástand og mikil leiðindi. Það er von mín að skíða- göngufólk skilji afstöðu okkar í Bræðratungu og verði við ábendingu þessari. Bæjaryfirvöld mættu einnig athuga hvort ekki sé hægt að haga mokstri þannig við Skógarbrautina að skíða- göngufólk geti lagt bílum sínum annars staðar en við Bræðratungu. Erna Guðmundsdóttir, forstöðumaður Brœðratungu. Arctic Cat élslelasvning! í húsi Steiniðjunnar nk. laugardag og sunnudag (áður húsnæði Umboðsverslunar Hafsteins Vilhjálmssonar). Opið kl. 10-16 laugardag og kl. 12-18 á sunnudag. BÆTARINS BESIA Áskrifendur athugið! Munið að greiða áskriftargjaliið fyrir eindaga. Eindagi er 15. febrúar nk. Þjónustufulltrúi frá Bifreiðum og landbúnaðarvélum verðurá staðnum aukþess sem hann verður við hjá Bíla- leigunni Erni á föstudaginn nk. Vélsleðaeigendur Notið tækifærið og látið fagmann fara yfir vélsleðana. Bifreiðar og landbúnaðarvélar hf. BILALElaAN 'RNIR

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.