Bæjarins besta

Útgáva

Bæjarins besta - 12.02.1992, Síða 4

Bæjarins besta - 12.02.1992, Síða 4
4 BÆJARINS BESIA • Miðvikudagur 12. febrúar 1992 □ Óháð vikublað Útgefandi: H-prent hf. Sólgötu 9, © 94-4560. Ritstjórí: Siguqón J. Sigurðsson S 4277 & 985-25362 Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson © 4101 & 985-31062. Blaðamaður: Gísli Hjartarson © 3948. Útgáfudagur: Miðvikudagur. Upplag: 3800 eintök. Ritstjórnarskrífstofa og auglýsingamóttaka að Sólgötu 9, © 4570 • Fax 4564. Setning, umbrot og prentun: H-prent hf. Bæjaríns besta er aðili að samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðrítun, notkun Ijósmynda og annars efnis er óheimil nema heimilda sé getið. Leiðarinn: Þegar draumurinn rætist Saga Vetrar-Ólympíuleikanna hefst með leikunum í franska bænum Chamonix árið 1924 eða 28 árum eftir að Ólympíuleikarnir voru endurvaktir í Aþenu 1896. Sextíu og átta árum seinna erum við aftur stödd í Frakklandi. Að þessu sinni í Albertville, þar sem draumur bolvískrar stúlku verður allt í einu að veru- leika þegar hún, gengur inn á leikvanginn í fararbroddi íslensku keppendanna á 16. Vetrar-ólympíuleikunum. íslendingar tóku ekki þátt í vetrarleikunum fyrr en í Osló 1952, en þá fóru þeir líka myndarlega af stað og sendu tólf keppendur. Af þessum, hinum fyrstu kepp- endum fyrir íslands hönd á Vetrar-ólympíuleikum voru fimm frá ísafirði, og reyndar einum betur hvað uppruna snertir. Mývetningar voru þá fræknir göngumenn og áttu helming göngumanna á móti ísfirðingum. Á leikunum 1956, er fram fóru í Cortina á Ítalíu áttu ísfirðingar fjóra keppendur. Síðan hafa fleiri til sögunn- ar komið þótt upphafið hafi verið með slíkum brag, að vandséð er að bætt verði um, í bráð að minnsta kosti. Setningarathöfn leikanna í Albertville og frásagnir af undirbúningi færðu okkur heim sannin um, að íþróttir nútímans snúast meira um peninga en áður var. Lengi vel reyndu menn að halda Ólympíuleikunum utan við atvinnumennsku í íþróttum, en nú er svo komið, að jafnvel á þeim vettvangi hefur verið látið undan síga. Kannske varð ekki hjá því komist, en miður er það engu að síður. En hvað sem líður atvinnumennsku í íþróttum og himinháum fjárhæðum í greiðslum til fræknustu íþrótta- manna samtímans skulum við ekki missa sjónar í gildi íþrótta, sem hollum og góðum leik til að ná fram grund- vallarmarkmiði íþróttahreyfingarinnar: Að skapa heil- brigða sál í hraustum líkama. Meðan við missum ekki sjónar á þessum háleitu hugsjónum eiga íþróttir rétt á sér. Og ekki verður um það deilt, að þeir sem fram úr skara eru fyrirmyndin, sem alla verðandi íþróttamenn dreymir um að líkjast. ísfirðingar hafa löngum mátt vera stoltir af skíðafólki sínu. Orðstýr þess hefur víða farið. Skíðakonan unga frá Bolungarvík, sem við setningarathöfn Ólympíuleik- anna í Albertville hélt sameiningartákni íslensku þjóð- arinnar á lofti á svo sannarlega heima í þeim frækna hópi skíðafólks sem borið hefur hróður íslands út í hinn stóra heim. s.h. Ps. Leiðinleg villa slæddist inn í upphafi síðustu máls- greinar í síðasta leiðara. í stað „Sveinsstauli“ á árinu 2020 o.s.frv. stóð „sveitastauli“ sem að sjálfsögðu er rangt. Petta leiðréttist hér með. J Tungudalur: Magnús vann „Búbba-bikarinn" UM SÍÐUSTU helgi fór fram í Tungudal Skíðafélags- mót í göngu 13 ára og eldri. Keppnin fór fram í ágætu veðri, suðaustan golu og urðu úrslit sem hér segir: Drengir 13-14 ára (5 km); 1. Magnús Einarsson................... t. 17.36. 2. Haukur Davíðsson .................. t. 20.58. Drengir 15-16 ára (7,5 km): 1. Arnar Pálsson..................... t. 31.30. 2. Hlynur Guðmundsson ................t. 36.19 3. Eyjólfur Þráinsson ................ t. 38.26. Piltar 17-19 ára (10 km): 1. Gísli E. Árnason.................. t. 46.14. Stúlkur 13-15 ára (3,5 km): 1. Sigurbjörg Sigurjónsdóttir ........ t. 30.40. Karlar 35-49 ára (10 km): 1. Þröstur Jóhannesson .............. t. 49.13. 2. Sigurður Gunnarsson............... t. 54.48. 3. Konráð Eggertsson................. t. 56.09. 4. Guðjón Höskuldsson............... t. 56.50. 5. Óli M. Lúðvíksson ................ t. 58.38. 6. Halldór Margeirsson .............. t. 59.29. Karlar 50 ára og eldri (10 km): 1. Elías Sveinsson ................... t. 56.30. Á móti þessu var í fyrsta skipti keppt um Búbba- bikar- inn en það er bikar sem Sigurður Jónsson (Búbbi prentari) gaf félaginu (göngunefnd) og setti það eitt skilyrði að ekki mætti keppa um bikar þennan í flokki 70 ára og eldri. Verður framvegis keppt um bikarinn á Skíðafélagsmóti í göngu í flokki 13-14 ára og vann hann að þessu sinni Magnús Einarsson. -s. Lesendur: Athugasemd vegna BB-mola s IBB MOLUM 5. febrúar 1992 er sagt frá því að Landsbankinn hafi fetað í fótspor íslandsbanka og óskað eftir aðstöðu fyrir af- greiðslu á Hlíf. Athugasemdir blaðsins út frá þessu eru auðvitað í anda þeirrar fréttamennsku sem rekin er nú til dags. 1 stað þess að sjá jákvæðar hliðar málsins, sem sé þær að hér á að leitast við að færa þjónustu til fólks, sem í mörgum tilfellum á erfitt með að nálgast hana, nema með aðstoð annarra, þá er slegið upp einhverjum ann- arlegum skoðunum sem þar eigi að liggja að baki. Til er máltæki sem segir „Góðar fréttir er engar fréttir". Þó svo að þetta sé gott og gilt máltæki þá finnst mér ástæðulaust að frétta- menn starfi nær eingöngu út frá því. í þessu tilfelli var blaðið með góða frétt, en treysti sér ekki til að birta hana öðrivísi en með neikvæðum undirtón. Auðvitað verða blaða- menn að fá að starfa eftir sinni samvisku og út frá sín- um þankagangi, en jákvæð umfjöllun um mannlífið ætti held ég ekki að skaða neinn. Virðingarfyllst, Halldór Margeirsson, útibússtjóri íslandsbanka. Frá blaðamanni MIKIÐ þykir okkur leitt að þessi litla klausa skyldi fara svona fyrir brjóstið á útibússtjóra Is- landsbanka á Isafirði. Hon- um og öðrum lesendum blaðsins til upplýsinga skal það tekið fram að BB-molar eru hugsaðir sem frétta- og fróðleikskorn í léttum dúr þar sem sannleikurinn er kannski stundum látinn í léttu rúmi liggja. Margar „góðar“ og já- kvæðar fréttir geta líka ver- ið spaugilegar. Svo var með þessa um samkeppni bank- anna, a.m.k. að okkar mati og margra annarra lesenda blaðsins og ekki getum við séð að hér sé um neikvæða umfjöllun að ræða. Við munum áfram flytja lesend- ur blaðsins BB-mola með þeirri von að það sem þar stendur fari ekki svo mjög fyrir brjóstið á lesendum. —Meðal annars— - á sýningarsvæði - MMC Pajero Stuttur D ’83 Ekinn 165.000 km. Verð 590.000.- Skipti athugandi. SuzukiFox410 '85 Ek. 81.000 km. Verð 530.000.- Nýtt lakk. Bein sala. Toyota Touring 4x4 ’89 Ek. 1.190.000 km. Verð 970.000.- Sk.á 4x4 á 500.000. Nissan Patrol D ’84 Ek. 192.000 km. Verð 1.180.000.- Skipti ath. Subaru Justy J-10 '85 Ek. 88.000 km. Verð 360.000.- Bein sala. MMC Pajero langur B '88 Ek. 84.000 km. Verð 1.760.000,- Skipti ath. Daihatsu Charade '85 Ek. 57.000 km. Verð 330.000.- Bein sala. ■fc Mikið úrval af 4x4 fólks- bílum og jeppum á skrá. Töluvert úrval af vél- sleðum. Getum tekið vélsleða á skrá. ýV Áhersla lögð á traust og örugg viðskipti fx Vaktað svæði. MIÐSTÖÐ BÍLAVIÐ- SKIPTA Á VESTFJÖRÐUM BILASALAN ELDING s/f Skeiði 7, 400 ísafirði sími 94-4455 ■ fax 4466 Sjávarréttahlaðborð laugardagskvöld Stórkostlegt úrval af ' girnilegum réttum á drekkhlöðnu hlaðborði. Pantið borð Verið velkomin! Sími 94-4111

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.