Bæjarins besta - 12.02.1992, Page 8
8
BÆJARINSBESIA • Miðvikudagur 12. febrúar 1992
Lesendur:
„Bandormurinn“
og sveitarfélögin
ASÍÐUSTU vikum hef-
ur mikið verið fjallað
um Bandorminn svokallaða
í öllum fréttum. Fólk veit að
það er umdeilt frumvarp rík-
isstjórnarinnar um ráðstaf-
anir í ríkisfjármálum. Á
næstu vikum munu áhrif
þess koma æ betur í Ijós. Eg
ætla með þessum skrifum að
velta fyrir mér hvaða áhrif
þessi lagasetning mun koma
til með að hafa á afkomu
sveitarfélaga.
Félagslegar
íbúðir
Með þessum lögum er rík-
isstjórnin að velta yfir á
sveitarfélögin ýmsum álög-
um sem ekki hafa verið
áður. Þar er t.d. ákvæði um
að sveitarfélög skuli leggja
fram sérstakt óafturkræft
framlag 3,5% af kostnaðar-
verði eða kaupverði hverrar
félagslegrar íbúðar í sveitar-
félaginu. Nú er bygging fé-
lagslegra íbúða mikið hags-
munamál og áhugamál
sveitarfélaga og í ljósi þess
hefðu sveitarfélögin senni-
lega ekki tekið illa í viðræð-
ur um aukna hlutdeild í
þessum byggingum. En það
er með þetta eins og flest
önnur mál sem snerta sveit-
arfélögin. Ekkert samráð
var við þau haft um þessa
breytingu,og kemur það
mjög skýrt fram ef skoðuð
eru bréfaskipti sem fóru
fram milli félagsmálaráðu-
neytis og Samb. ísl. sveitar-
félaga, á þessum tíma.
Þar er einungis um ein-
hliða ákvörðun ráðuneytis
að ræða, sem ekki getur
flokkast undir samráð. Sam-
kv. áliti Samb. ísl. Sveitar-
fél. getur hér verið um 128
millj. kr. að ræða.
Kostnaður vegna félags-
legra íbúða verður þar að
auki stöðugt meiri hjá sveit-
arfélögunum og stærri bæj-
arfélög þurfa að hafa laun-
aðan starfsmann einn eða
fleiri við þá vinnu. Og í
minni sveitarfélögum 3-500
manna kallar þessi vinna á
a.m.k. hlutastarf.
Nefskatturinn
Þá er það „lögguskattur-
inn“ svokallaði. Þar eru 600
millj. kr. sem deila á niður á
sveitarfélög sem nefskatti.
Upphæðin er þó misjöfn eft-
ir íbúatölu og miðast markið
við 300 íbúa. Sveitarfélög
með 300 íbúa eða fleiri
greiða kr. 2.370 pr. íbúa og
þau sem hafa færri en 300
íbúa greiða kr. 1.420 pr.
íbúa. 300. íbúi sveitarfélags-
ins getur því orðið því alldýr
eða kr.286.420. I smærri
sveitarfélögum er heldur
• Jóna Valgerður Kristjáns-
dóttir.
ekki um reglubundna lög-
gæslu að ræða. Það er því al-
gjört öfugmæli að nefna
þetta kostnað vegna lög-
gæslu. Hér er verið að taka
upp svipaða skattheimtu og
hvað óvinsælust varð í Bret-
landi á tímum Margretar
Thatcher.
Þessi skattheimta ríkisins
hefur nú þegar haft þau
áhrif að þau sveitarfélög sem
ekki hafa fullnýtt leyfilegan
útsvarsstofn á síðustu árum,
hafa nú þegar hækkað hann.
Þar með öðlast þau einnig
rétt til framlaga úr Jöfnun-
arsjóði sveitarfélaga, ef
tekjurnar eru undir ákveðnu
meðaltali pr. íbúa. Það hef-
ur það síðan í för með sér að
minna er til skiptanna fyrir
þau sveitarfélög sem mjög
eru háð framlagi Jöfnunar-
sjóðsins og hafa ekki mögu-
leika á að bæta sér tekju-
skerðingu vegna þessa á
annan hátt, nema þá með
lántökum.
Aukinn
kostnaður í
strjábýli
Þá er gerð breyting á lög-
um um eyðingu refa og
minka. í stað þess að ríkið
greiddi áður 75% kostnaðar
greiðir það nú 50%. Þó eru
undantekningarákvæði sem
segja að verði heildarkostn-
aður við þennan málaflokk
hærri en kr. 3.000 pr. íbúa
þá greiði ríkissjóður 3/4
hluta kostnaðar. En þrátt
fyrir þessi ákvæði er um-
hverfisráðherra heimilt að
ákveða að ríkissjóður taki
ekki þátt í þessum kostnaði
á tilteknum svæðum. Ekki
er vitað hvaða svæði er um
að ræða, en það á að auglýsa
fyrir 1. maí nk. Og er þá
sveitarstjórnum heimilt að
fella niður grenjaleitir á
þeim svæðum.
Fyrir okkur á Vestfjörð-
um getur þetta atriði verið
afdrifaríkt. Verði ekki
veiddir refir og minkar á
ýmsum óbyggðum svæðum,
getur það haft í för með sér
mikla fjölgun á öðrum stöð-
um. Því ekki er hægt að
reikna með því að skepn-
urnar haldi sig innan þeirra
marka sem umhverfisráð-
herra ákveður, þær eru
meira að segja mjög fljótar í
förum.
Þá getur svo farið að
sveitarstjórnir sjái sig knúð-
ar til að láta fara fram refa-
og minkaleit á svæðum sem
ríkissjóður tekur engan þátt
í að greiða veiðar á. Þar
kemur því aukakostnaður á
sveitarfélögin.
Ábyrgðarsjóður
launa
Með því að setja á stofn
ábyrgðarsjóð launa vegna
gjaldþrota er verið að setja
enn fleiri álögur á sveitarfé-
lögin. Það lækkar kostnað
ríkisins um 450 millj. ef
miðað er við það sem hefði
þurft að vera framlag ríkis-
ins til greiðslu vegna ríkis-
ábyrgðar á laun á árinu 1992.
Sá kostnaður dreifist nú á
atvinnureksturinn í landinu
og þar með sveitarfélögin.
Kostnaður sveitarfélaga
vegna þess er lauslega áætl-
aður kr. 23 millj.
Beinn og
óbeinn
kostnadur
Þá er eftir ýmis annar
beinn eða óbeinn kostnaður
sveitarfélaga í kjölfar þess-
arar umdeildu lagasetning-
ar, þar má nefna kostnað
sveitarfélaga ef um meiri
akstur skólabarna verður að
ræða milli hverfa, en það
gæti orðið ef fjölga á í
bekkjum, sem er einn
sparnaðarliðurinn. Aukinn
kostnaður vegna skipulags-
mála, en þar er framlag rík-
isins skorið niður.
Breyting á lögum um
skráningu og mat fasteigna
mun verða til kostnaðar-
auka fyrir sveitarfélögin.
Sérstakt 25% álag á vöru-
gjöld í höfnum sem koma á
til framkvæmda, getur vald-
ið sérstaklega minni höfnun-
um ýmsum vandkvæðum í
innheimtu. Ekki hefur í
þessu máli frekar en öðrum
verið haft samráð við sveit-
arfélögin. Það mun einnig
hafa áhrif til hækkunar á
vöruverði á landsbyggðinni,
þó ekki liggi fyrir útreikn-
ingar þar um.
Ákveðin er skerðing á
tekjum Vegasjóðs um 265
millj. og skulu þeir fjármun-
ir renna í ríkissjóð. Með
þessum lögum og fjárlögum
fyrir 1992 er skerðing til
vegamála orðin 765 millj.
miðað við gildandi vega-
áætlun. Það hefur áhrif á at-
vinnustig í landinu og mun
því lækka tekjur sveitarfé-
laga af þeim framkvæmd-
um.
Samstarf ríkis
og sveitarfélaga
Ekki er langt um liðið frá
því að samþykkt voru lög
um breytta verkaskiptingu
ríkis og sveitarfélaga. Þar er
m.a. ákvæði sem kveður á
um samráð milli ríkis og
sveitarfélaga, eigi að gera
breytingar á þeirri verka-
skiptingu. Þau lög hafa ver-
ið þverbrotin. Samb. ísl
sveitarfélaga hefur harðlega
mótmælt þeim vinnubrögð-
um sem hér hafa verið við-
höfð af hálfu ríkisvaldsins.
Þá ætti ríkisstjórninni að
vera það vel ljóst að mjög
þrengir nú að hjá mörgum
sveitarfélögum vegna erfið-
leika í atvinnulífi og gjald-
þrota hjá fyrirtækjum og
einstaklingum. Af þeim sök-
um hafa mörg sveitarfélög
tekið á sig auknar fjárhags-
byrðar til að halda atvinnu-
lífinu gangandi.
Þau eru því engan veginn
í stakk búin til að taka nú á
sig auknar álögur, sem
skipta hundruðum milljóna
króna.
Ritað 29.janúar 1992.
Jóna Valgerður
Kristjánsdóttir.
HELGII
• »
HOFUÐBORGINNI
Jr ekki kominn tími til að
skreppa suður og gera eitthvað
fyrir sjálfan sig. Kíkja í búðir,
fara í leikhús,koma við á krá
njóta skemmtunar á Hótel
íslandi og fullkomna ferðina
með dvöl á fyrsta flokks hóteli.
Láttu þetta eftir þér, þú átt það
skilið.
Pantanasími 688999.
Grœnt símanúmer 996099
H O T E L
ÍSLAND
Ármúli 9. 108 Reykjavík.
f
Isfirðingar- Vestfirðingar
Getum bætt við okkur verkefnum í
nýsmíði, endurbótum eða viðgerð-
um. Einnigdúka-, teppa- eðaparket-
lögn eða annað sem til fellur.
Gerum föst verðtilboð ef óskað er.
Vönduð vinna — vanir menn.
NAGLINN HF.
Hjálmar Guðmundsson Halldór Antonsson
S 4665 S 4041