Bæjarins besta


Bæjarins besta - 28.04.2016, Qupperneq 4

Bæjarins besta - 28.04.2016, Qupperneq 4
4 FIMMtudagur 28. APRÍL 2016 Útgefandi: Athafnagleði ehf., kt. 690715-0740 Afgreiðsla og ritstjórn: Mánagötu 2, Ísafirði, sími 456 4560 Ritstjóri BB og bb.is: Bryndís Sigurðardóttir, 896 9838, bb@bb.is Ábyrgðarmaður: Bryndís Sigurðardóttir. Blaðamaður: Smári Karlsson, 866-7604, smari@bb.is Auglýsingar: Sími 456 4560, auglysingar@bb.is Prentvinnsla: Litróf ehf. Upplag: 2.200 eintök Dreifing: Íslandspóstur. Dreift án endurgjalds inn á öll heimili á norðanverðum Vestfjörðum Stafræn útgáfa: www.bb.is / facebook.com/pages/bbis Önnur útgáfa: Á ferð um Vestfirði ISSN 1670-021X Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið bb@bb.is. Auglýsingar þurfa að berast fyrir kl. 17 á mánudögum fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Ritstjórnargrein Salt í sárin Spurning vikunnar Ert þú sáttur með sjötta framboð Ólafs Ragnars? Netspurningin er birt vikulega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. Alls svöruðu 581. Já, mjög svo og mun kjósa hann, sögðu 293 eða 51% Já, en mun samt ekki kjósa hann, sögðu 37 eða 6% Mér er slétt sama, sögðu 52 eða 9% Nei, sögðu 199 eða 34% Það er bæði reið og hnípin þjóð sem hokrar þessa dagana á landinu fagra, landi sem er svo norðarlega að það telst vart byggilegt. Sárin frá 2008 hafa nú verið rifin upp og okkur blæðir. Hvernig má það vera að starfsmenn, stjórnarmenn og fulltrúar stjórnmála­ flokka haga sér með þeim hætti sem nú er öllum ljós, hvernig getur það gerst að fyrrum ráðherra og seðlabankastjóri leyfir sér að svindla og svíkja eins og komið hefur í ljós. Við vorum með forsætisráðherra sem geymdi fé sitt í skattaskjólum, gerði kröfur á banka og samdi svo fyrir okkar hönd við sjálfan sig, sagði engum frá og skammast sín ekki neitt. Við erum með fjármálaráðherra sem vílaði og dílaði með upplýsingar um hann sjálfan í skjólum, hann barðist ekki beint af hörku fyrir því að upplýsingarnar bær­ ust til skattstjóra, þvert á móti. Hann sagði heldur engum frá og er ekkert nema hrokinn. Við erum með menntamálaráðherra sem skellir skólahurðinni á nefið á þeim sem vilja í menntaskóla séu þeir orðnir 25 ára eða eldri, menntamálaráðherra sem nú vill lækka námslán til nemenda erlendis, lán sem ekki eru beysin fyrir. Það fer lítið fyrir metnaði fyrir menntun þjóðar hjá ráðherranum sem þagði sömuleiðis fram í rauðan dauðann um leigusalann sinn og fyrirgreiðslu honum til handa. Og við bíðum eftir fleiri fréttum, bankarnir voru ryksugaðir fyrir hrun og smátt og smátt er að koma í ljós hvert heimilis silfur þjóðarinnar fór og mun fara ef við höldum þessari meðvirkni áfram. Við eigum fullt af heiðarlegum stjórnmálamönnum og við þurfum að nota vitið sem okkur var gefið þegar í kjörklefann er komið, höfnum spillingarpésunum, það ætti ekki að vera flókið. Það þarf að taka þátt í starfi stjórnmálaflokka og hjálpa til við val á framboðslistum, sneiða hjá þeim hafa svo mikið sem tyllt litlu tánni á hin illræmdu Aflönd, líka þeim sem hafa snargleymt því að þeir ættu þessi félög en muna svo sannarlega mætavel að þau voru gefin upp til skatts! Nú er lausnin ekki sú að slökkva á fréttum og fara bara út að hlaupa, við berum öll ábyrgð á þeim við veljum á þing og það er þar sem er hægt að spyrna við fótum, leggja steina í götu þessara ótíndu glæpamanna sem purkunarlaust ræna okkur. Þetta er ólíðandi. BS Þátttakendur á skotvopnanámskeiðum þurfa að skila inn sakavottorði, læknisvottorði og passamynd til skrifstofu sýslumanns fyrir námskeiðin. Læknisvottorðið þarf að vera sérstaklega útgefið vegna skotvopnaleyfis. Skotvopnanámskeið og veiðikortanámskeið Skráning og nánari upplýsingar á www.veidikort.is ÍSAFJÖRÐUR Veiðikortanámskeiðið kostar kr. 14.900 Skotvopnanámskeiðið kostar kr. 20.000 STAÐSETNING Fræðslumiðstöð Vestfjarða VEIÐIKORTANÁMSKEIÐ 10. maí kl. 17:00-23:00 SKOTVOPNAN BÓKLEGT 19. ágúst kl. 18:00-22:00 20. ágúst kl. 10:00-14:00 SKOTVOPN VERKLEGT Á viðurkenndu skotsvæði Krakkar úr Skíðafélagi Ís­ firðinga fjölmenntu á Andrésar andar leikana sem haldnir voru á Akureyri um helgina. Óhætt er að segja mótið það vinsælasta á landinu meðal yngstu skíðaiðk­ endanna og hefur svo verið í áratugi, en fjörtíu ár eru síðan það var fyrst haldið. Alls voru kepp­ Mikil gleði á Andrésarleikunum Yngstu keppendur í alpagreinum á Andrésarleikunum taka á móti viðurkenningu fyrir þátttöku. Gönguskíðahópur SFÍ á Andrésarleikunum. Mynd: Guðmundur Ágústsson. endur frá SFÍ 80 talsins og kepptu þeir í skíðagöngu, alpagreinum og á bretti. Krakkarnir í hópnum komu frá Ísafirði, Bolungarvík og Þingeyri. Hinn akureyrski Andrés önd heldur áfram að vaxa og dafna og var í fyrsta sinn boðið upp á leikjabraut fyrir 5 ára börn og voru nokkrir iðkendur úr Skíðafélaginu sem nýttu sér það. Allir voru sælir og rjóðir eftir sólríka daga í fjallinu, búnir að eignast nýja félaga og sumir með verðlaun í farteskinu og kom hópurinn heim með 13 gullpen­ inga, 11 silfur og 12 brons. annska@bb.is

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.