Bæjarins besta


Bæjarins besta - 06.10.1993, Page 5

Bæjarins besta - 06.10.1993, Page 5
BÆjARINS BESTA • Miðvikudagur 6. október 1993 5 ísafjarðarkirkja: Tílboða leitoð í nýtt tdrkjuorgel ORGELNEFND Isafjarð- arkirkju fór á fund orgel- nefndar Þjóðkirkjunnar í Reykjavík síðastliðinn mánudag þar sem rædd voru orgelkaup Isfirðinga auk þess sem ýmsar faglegar ráð- leggingar voru iagðar fram og ákveðið var að leita til- boða sjö orgelsmiða. „Við höfum hug á vönduðu pípuorgeli, stærðin er ekki ljós ennþá en við höfum hug- myndir um átján til tuttugu og þriggja radda orgel. Við viljum auðvitað hafa orgelið sem glæsilegast og helst stærra en minna, en við munum taka mið af því hversu mikla peninga við höfum handa á milli. Við getum náttúrulega ekkert fullyrt um verðið ennþá en það verður nálægt tuttugu milljónum. A fundinum með orgelnefnd Þjóðkirkjunnar var samið bréf þar 'sem fram kom raddskipan og fleiri eiginleikar hljóð- færisins sem við förum fram á að verði í því. Þetta bréf verður sent innan skamms til sjö viðurkenndra orgelsmiða, þar af eins innlends, þar sem leitað er tilboða í verkið,” sagði séra Magnús Erlingsson sóknarprestur Isafjarðarkirkju. I orgelsjóð hefur safnast meira fjármagn en í byggingar- sjóð kirkjunnar sjálfrar og er þar um óumbeðin fjárframlög að ræða. I orgelsjóð eru í dag 18,8 milljónir með vöxtum, og koma þeir peningar aðal- lega frá fjórum aðilum, Hrað- frystihúsinu í Hnífsdal, Fiski- mjölsverksmiðjunni í Hnífs- dal, Básafelli hf. og Hrönn hf. á Isafirði en síðastnefnda fyrirtækið hefur gefið í ríf- lega helming sjóðsins. -hþ. Samkeppni um slagorö fyrir OV: Úrslit tilkynnt í dng í DAG, klukkan fjögur, gerir Orkubú Vestfjarða kunnugt hvert sigur slag- orðið er í slagorðasam- keppninni sem fram fór í ágúst og september síðast- Iiðnum. Orkubú Vestfjarða leitaöi að stuttu og hnitmiðuðu slag- orði fyrir fyrirtækið og átti að koma fram í því nafn þess eða sterk tilvísun til nafnsins. Yfir þrjú hundruð tillögur bárust og sagði Kristján Har- aldsson Orkubússtjóri í sam- tali við blaðið í síóustu viku að margar þeirra hefðu verið góðar og efnilegar og að þriggja manna dómnefndin hafi skemmt sér hið besta við valið. Veitt verða fern verðlaun, ein aðalverðlaun að upphæð fjörtíu þúsund krónur og þrenn aukaverðlaun að upphæð tíu þúsund krónur hver. -hþ. pizzunr Athugið! Breyttur opnunartími í Efribæ Lokað klukkan 21:00. I ^ung.' PÖBB Á Neðribœ öll föstudags- og laugardagskvöld Nœstkomandi augardagskvölc er lifandi tónlist ÝÍrábær VEiriNGA STAva UK Sími 4306 WaWoom mánuður í október Gildir til 20. október 1993 Aðalstrœti 24, ísafirði, sími 3517 Gildir út október 1993 Hár-studio Ingunnar Holtabrún 1, Bolungarvík, sími 7374 Gildir ótímabundið Hár-studio Ingunnar L Holtabrún 1, Bolungarvík, sími 7374 I Gildir til 14. október 1993 Aðalstræti 27, Isafirði, sími 4442 J

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.