Bæjarins besta


Bæjarins besta - 06.10.1993, Blaðsíða 12

Bæjarins besta - 06.10.1993, Blaðsíða 12
Fljúgið með elsta starfandi áætlunar- flugfélagi á íslandi FLUGFÉLAGÍÐ ERNIRf ÍSAFJARÐARFLUGVELLI © 4200 • □ 4688 Lágidalur: Kvartað yfir hrossum í LOK síðustu viku fékk lögreglan á ísafirði nokkr- ar kvartanir vegna lausa- göngu hrossa við vegirin upp Lágadal í ísafjarðar- djúpi. Þegar ökumaður einn átti leið um veginn i síðustu viku ók hann fram á sextán hross sem voru á veginum og lét lögregluna þegar vita. Lausaganga hrossa og annarra dýra við þjóðvegi getur verið mjög hættuleg og er skemmst að minnast banaslyssins sem var við Hólmavík fyrir stuttu. Lög- reglan hafði þegarsamband við eigandann sem fjarlægði hrossin. Um síðustu heígi fékk iögreglan síðan í tví- gang, tilkynníngu um lausa- göngu kálfa á Kirkjubóls- hlíð og fjarlægði eígandinn kálfana. Aðfararnótt síðastlíðins laugardags var síðan ekið yfir tvær gæsir á Skutuls- fjarðarbraut. Þrátt fyrir ítrekuð tilmæli hefur eigandi gæsanna ekki sinnt því aó hafa þær innan heldrar girð- ingar og hafa þær því getað farið sínar ferðir um Skut- ulsfjarðarbraut og oft skap- að stórhættu. „ ísafjörður: Bærinn áfrýjar Á FUNDI bæjarráðs ísa- fjarðar sem haldinn var 27. september síðastliðinn var tekin fyrir niðurstaða Héraðsdóms Vestfjarða í gatnagerðargjaldamátinu svokallaða sem bærinn tapaði í undirrétti. Bæjarsjóður ísafjarðar höfðaói mál á hendur Rún- ari Grímssyni vegna grció- slu svonefnds B-gatnagerð- argjalds og féllst Rúnar ekki á að greiða gjaldið þar sem álagning væri óheimil. Niðurstaða Héraðsdóms varð sú að Rúnar skykli sýkn að kröfu bæjarsjóðs um greiðslu gjaldsins. Bæjarráð hefur lagt til að málinu verði áfrýjað til Allavirka milli ísafjarðar og Reykjavíkur yöruflutningar Armanna LeífSSOOar Búöaj’kajiti 2 • Bolungarvik Símar 94-7848 Se 9 M 0440 Parsímar 988-20877, 20879 23871 * 40277 BÍIALEIGAN 'RNIR Þar sem bílarnir skipta um eigendur SKEIÐI 5 • ÍSAFIRÐI © 4300 • © 4448 Óshlíð: Vegaframkvæmdir uppá 115 milliónir króna VEGAGERÐIN hefur staðið í miklum framkvæmdum á Óshlíðinni undanfarna mánuði og er þessa dagana unnið að lækkun vegarins á 450 metra kafla. Jón og Magnús hf. á ísafirði vinna verkið sem hljóðar upp á 7,6 milljónir. Lokið var við þriðja vegskálann þann 15. september og útboð þess fjórða fer væntanlega fram seinna í haust. „Fjórði vegskálinn verður boðinn út bráðlega, hvenær nákvæmlega get ég ekki sagt um. Lengd hans er fimmtíu og fimm metrar og hann verður staðsettur á svokallaðri Ófæru með stiga og er því þrjátíu metrum innar en sá skáli sem lokið var við í september síðastliðnum,” sagði Gísli Eiríksson umdæmisverkfræð- ingur Vegagerðarinnar. Gísli segir vegalækkunina ganga sæmilega, verkið sé ör- lítið á eftir áætlun en muni samt standast réttan tíma en því á að ljúka I. nóvember næstkomandi. „Lækkun og breytingar vegarins núna er í raun undir- búningur þess verks. Það var hæð á veginum, allt að því blindhæð, og við förum nát- túrulega ekki að setja þarna mannvirki upp á fjörtíu mill- jónir á þessa hæð og teljum því réttast að laga veginn áður. Þar að auki eyðileggst hvort eð er vegur þar sem verið er að reisa vegskála hverju sinni og því er sjálfsagt aó nota tækifærið núna. Annars var reyndar byrjað á vegabótum á þessum stað, Ófæru með stiga, árió 1980. En þær kröfur og þær ákvarð- anir sem þá voru teknar, meðal annars um vegalækkunina, þykja í dag úreltar og ekki hæfar. Við reiknum með að leggja bundið slitlag á þennan kafla Frá firamkvæmdum á Óshlíð. núna í október. Endanlegur kostnaðurvið lækkuninasjálfa er ekki alveg ljós, Jón og Magnús framkvæma hana fyrir 7,6 milljónir en þarna spilar margt inní. Heiidarkostnaður þeirra framkvæmda sem unnar verða á þessu ári nemur um 115 milljónum. í því felst bygging tveggja vegskála, allar lagfæringar vegarins með bundnu slitlagi ásamt færslu ýmissa lagna eins og Ijós- leiðara, ljósastaurastrengja og fleira,” sagði Gísli Eiríksson. -hþ. OHAÐ FRÉTTABLAÐ / A VESTFJÖRÐUM Fr.i Flateyrarhöfri. Á FÖSTUDAGS.MORG- UNINN fékk lögreglan á ísafirði tilkynningu um að leystar hefðu verið festar á tveirnur smábátum sem lágu í smábátahöfninni á Flatevri. Bátana, Guðna ÍS og Má ÍS rak upp í grjótgarð sem er til rrióts við smábáta- bryggjuna og cr talið að litlar sem engar skemmdir hafi orðið á bátunum. Ekki het'ur enn tekist að hafa upp á þeim sem þarna voru að verki og er málið í rannsókn. Látrabjarg: Ríkissjóð- ur kaupir RÍKISSJÓÐUR hefur keypt Hæjarbjarg í Rauða- sandshreppi en það er hæsti hlut' Látrabjargs við Breiðafjörð. Kaupverðið er 800 þúsund krónur. Kaupin eru gerð að beiðni Össurar Skarphéð- insson.tr umhverfísráðherra og: hýggst hann friðlýsa bjargið. í Bæjarbjargi er stærsta svartfuglavarpið í Látrabjargi og er það mjög sérsjætt náttúrufyrirbæri. Látrabjarg er á náttúrum inja- skrá og á ríkissjóður for- kaupsrétt ef fram fer sala á einhverjum hluta bjargsins. RITSTJÓRN B8 4560 - FAX *ZT 4564 - AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT B8 4570

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.