Bæjarins besta


Bæjarins besta - 06.10.1993, Blaðsíða 11

Bæjarins besta - 06.10.1993, Blaðsíða 11
EÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 6. október 1993 11 VlÐ NDRÐURVEG, SÍMI 4B53 IWAICNCC MTNDIC , kynna: STORMYNDIN! UNDER SIE6E | Steven Seogal • Tommy Lee Jones Öflugasta skip bandaríska sjóhersins, USS Missouri, má muna fífil sinn fegurri. í eina tíð var þetta fljótandi smáborg með yfir 2.400 starfsmönnum innanborðs, en nú er það á leiðinni til hafnar tii afsetningar. Lágmarksáhöfn er á skiþinu, enda ekki reiknað | með neinum skakkaföllum á leiðinni yfir Kyrrahafið. En áhöfnin veit ekki hvað biður hennar. Skæruliðar hafa uþþi áform um að hertaka skipið og ná úr því kjarnavoþnum til að selja á svörtum markaði. Casey Ryback er einnig að Ijúka glæstum ferli hjá sjó- hernum. Hann var liðsmaður hinna harðsnúnu Navy Seal sveita, sem ekki kalla allt ömmu sína. Foringi hópsins er William Strannix, harðjaxl mikill og vílar ekki fyrir sér að beita hrottafullum meðulum til að ná sínu fram. Hann nýtur aðstoðar Krill, sem hefur hlaupist undan merkjum vegna gróðavonarinnar. Saman ná þeir yfirráðum á skipinu, eða svo halda þeir... VlÐ NDRÐURVEG, SÍMI 4B53 SMA WELWMEm Innanfélagsmót sjóstanga- veiðifélags ísfirðinga verður haldið laugard. 9. október nk. og hefst kl. 9:00. Nánari uppl. gefg Þórir í s. 3722 eða 3298 og Ulfar f s. 4150 eða 3167. Tíl sölu er lítill árabátur. Upp- Iýsingarísíma7171 ákvöldin. Til sölu og niðurrífs er SAAB 99 árg.’81 með 900 vél og 900 gírkassa. Einnig lítiil gamali fsskápur. Uppl. 4549 e. kl. 20. Hjón með 2 börn óska eftir leiguhúsnæði á ísafirði eða f Hmfsdal. Skilvísum greiðslum heitið, fyrirframgr. mögul. Uppl. gefur Quðrún í s. 91-684979. Óska eftir notuðum kassagftar sagft og helst poka. Uppl. f s. 7082. Til sölu er húseignin að Völu- steinsstræti 10, Boiungarvfk. Skípti möguleg á minm eign. Uppl. f síma 7082. Til sölu er MMC Lancerárg.’86 og GAZ russa jeppi, hálfupp- gerður. Uppl. í s. 4381. Kökubasar á Sílfurtorgí Ljóninu nk.f ös. kl.15.TÍI st ar ferðasjóði 10. bekkingá. Til sölu er hjónarúm. Upp- lýsingar í síma 4716. Tilsöluerca. 15-16 rúmmetra frystir. Tekur 50-60 bala. Einnig til söiu grásleppuleyfi á stóran bát. Uppl. í s. 6236. Til sölu eða leigu er húseignin að Hlíðarvegi 10, Suðureyri. Neðri hæð og 'k bílsk. Tilb. ósk- ast. Uppl. 91 -621994 e. kl. 18. Fundist hefur regnjakkl nr. 10 frá 66°N og sumarhattur í garði Eyrarskjóls. Ef einhver saknar þessara hluta, hafið þá sam- band við starfsfólk Eyrarskjóls. Óska eftir dagmömmu fyrir 13 mánaða dreng, fyrir hádegi. Uppl. í síma 4662. Krakkaklubbur Krakkaklúbbur hefst föstu- daginn 8. októberkl. 17:30 í hvítasunnukirkjunni Salem. Allir krakkar á aldrinum 0-12 ára eru velkomnir í 1 'h klst. samverustund sem verður vikulega í vetur og margt skemmtilegt verður á seyði, s.s. brúður, föndur, söngur, sögur og margt fleira. Hvítasunnukirkjan Veðrið næstudaga Veðurspádeild Veðurstofu íslands 6. október 1993 kl. 11:02 Horfur á landinu næsta sólarhring: SV-gola eða kaldi, skýjað og sums staðar dálítil súld eða rigning um NV-vert landið en hægviðri og yfirleitt bjartviðri S-lan.ds og austan, einnig víða í innsveitum norðanlands. Premur kalt verður áfram og víða næturfrost, einkum inn til landsins. Horfur á landinu föstudag: SV-læg átt á Vestfjörðum og á annesjum norðanlands en hægviðri annars staðar. Skýjað með köflum norðanlands og vestan en annars bjartrviðri. Fremur svalt og víða næturfrost. Horfur á landinu laugardag og sunnudag: A-læg og NA-læg átt, sums staðar strekkingur á sunnudag. Skýjað SA-lands en bjartviðri norðanlands ogvestan. Premur svalt áfram. Hjálparsveit skáta á ísafiröi: Nýliðastarf að NÝLIÐASTARF Hjálpar- sveitar skáta á ísafirði hefst í næstu viku. Nýliðar eru teknir inn í sveitina árlega á haustin og fer þjáifun þeirra að mestu fram með þátttöku í almennu starfi sveitarinnar. Lágmarksaldur er sautján ár. Nýliðum er strax í upphafi kynnt starfsemi sveitarinnar sem felst aðallega í almennu félagsstarfi, svo sem ferðum og útilegum en felst einnig í æfingum, fyrirlestrum og fjár- öflunum. Meóal þeirra nám- skeiða sem farið er í gegnum má nefna skyndihjálp, almenna ferðamennsku, leitartækni, rötun, snjóflóðaleit og margt fleira. 011 námskeiðin eru haldin af reyndum kennurum. Auk nýliðahóps er starf- ræktur tækjahópur sem hefur yfirumsjón með öllum öku- tækjum sveitarinnar ásamt öðrum vélbúnaði. Einnig er skíða- og fjallahópur sem starfar aðallega að fjalla- mennsku og skíðastarfsemi ýmis konar. Að lokum er hefjosl skyndihjálparhópur sem hefur yfirumsjón meö öllu sem lýtur að skyndihjálp innan sveitar- innar og skyndihjálparkennslu utan hennar. Þess má geta að mikið samstarf er á milli þessara hópa og starfssvið þeirra skarast oft. Um er að ræða þroskandi og skemmtilegt starf og geta áhugasamir haft samband við Sigurð Jónsson í síma 3693 eöa Hermann Snorrason í síma 3526 á kvöldin. -fréttatilkynning. Orðsending til foreldra barna og unglinga á ísafirði: Rútuferðir á föshi- dagskvöldum ÞAR sem Félagsmiðstöðin er nú tekin til starfa á nýjan leik eftir sumarfrí þá eru rútuferðir einnig hafnar úr miðbæ ísafjarðarkaupstað- ar. Ferðir þessar hafa verið á föstudagskvöldum undanfarin ár og verður svo einnig nú. Þær eru sérstaklega ætlaðar unglingum sem komast vilja heim til sín eftir lokun Félags- miðstöðvar og eru foreldrar eindregið hvattir til að benda börnum sínum á þessar ferðir. Eins og undanfarin ár starfar Félagsmiðstöðin þrjú kvöld í viku, það er á mánudags- og miðvikudagskvöldum frá klukkan 19:30 til 22:30 og á föstudagskvöldum frá klukkan 19:30 til 23:30. Þriðja til fjórða hvem föstudag eru böll eða aðrar skemmtanir í Félags- miðstöðinni og er hún þá opin til klukkan 01:00 eftir mið- nætti og breytist akstur vagns- ins í samræmi við það. Aðfaranótt laugardags er starfsfólk á vegum Isafjarðar- kaupstaðar á ferð um bæinn. Starfsmenn þessir munu hafa eftirlit með atferli barna og unglinga sem ekki skila sér heim og hafa samband við heimili þeirra ef með þarf. Nánari upplýsingar um rútu ferðir þessar og um starfsemi Félagsmiðstöðvar eru veittar í síma Félagsmiðstöðvarinnar 3808 og um starfsemi úti- deildar hjá félagsmálastjóra í síma 3722. Félagsmálastjórinn á Isafirði ísafjarðarkirkja: Senn líður nð fyrshi guðsþjónushinni AÐALSAFNAÐAR- FUNDUR ísafjarðarsóknar var haldinn síðastiiðinn sunnudag. Meðal þess sem fram kom á fundinum var að stefnt er að fyrstu guðs- þjónustunni í ísafjarðar- kirkju eftir þrjár eða fjórar vikur. „Þar sem kirkjan verður orðin alveg fokheld seinni partinn í þessum mánuði, þá ráðgerum við að bjóða fólki inn í hana. Kirkjuklukkum verður hringt í fyrsta sinn í þessari kirkju en þær eru úr þeirri gömlu og fram fer eigin- leg helgistund, farið verður með bæn og við munum syngja eins og einn sálm. Því naést verða kirkjugestirnir leiddir um bygginguna og þeim sýnd salarkynnin,” sagði séra Magnús Erlingsson sóknar- prestur Isafjarðarkirkju í sam- tali við blaóið. A aðalsafnaðarfundinum var fjárhagsstaða kirkjunnar rakin og fundargestum tjáð að enn vantar um tuttugu milljónir til að hægt verði að messa í kirkjunni á jólunum 1994. Því verður að öllum líkindum brugðið á það ráð að óska eftir láni sem nemur þeirri upp- hæð í þessari viku. Heildarkostnaður allra framkvæmda sem viðkoma kirkjumálunum nemur um 66 milljónum. Hönnuðir nýju kirkjunnarfengu 19,9milljónir I í sinn hlut, rúmum 7 milljónum I var varið til að rýma svæðið log byggingarverktakar fá 38 • milljónir en eftir er að greiða iþeim um 14 milljónir til að láætlun þessa árs standist. | Þessa dagana gengur fjár- öflunarnefnd kirkjubygging- árinnar í hús með gíróseðla og er það von hennar sem ^nnarra forsvarsmanna bygg- ingarinnar, að sem flestir bæjarbúar sjái sér fært að láta eitthvað fé af hendi rakna, því margt smátt gerir eitt stórt. Ný sóknarnefnd Meðal þeirra mála sem af- greidd voru á fundinum var kosning nefndarmanna í sókn- amefnd og voru úrslit eftir- farandi. Réttkjömirtil fjögurra ára voru Bjöm Teitsson, Elísa- bet Agnarsdóttir, Björn Jó- ísa§arðarkirkja í gær. hannsson og Agúst Gíslason. Til tveggja ára var kosinn Gunnar Steinþórsson. Einnig eiga sæti í sóknarnefnd þau Auður H. Hagalín og Jens Kristmannsson en þau ljúka fjögurra ára sóknamefndarsetu eftir tvö ár. Þess má geta að meðal þeirra mála sem afgreidd voru á fundinum var fjölgun nefnd- armanna úr fimm í sjö, bæði aðal- og varamanna. Alls eru því fjórtán manns viðriðnir sóknarnefndina nú í sta tíu hingað til. I J'lU- SMÁ Skokkararl Mætum á laugar- dögum kl. 13 við sundhöllina. Skokkum og förum í sund á eftir. Nýirskokkararvelkomnir. Til sölu er80m2 húseian ásamt 45m2 bílskúr í SúðaviT<. Eignin mikiðendurnýjuð.Upplýsíngar í síma 4988 og 4981. Óska eftir 3-4 herb. (búð í Bolungarvík sem fyrst. Upp- [ýsíngar i s(ma6141. Óska eftir herbergi á leigu með eldunar-og baðaðstöðu. Upp- lýsingar í síma 4939. Tveír einstaklíngar óska pftir 2ja herb. íbúð til leigu á Isa- firði. Upplýsíngar I síma 7883. Til sölu er Colt „custom-sound" gítarmagnari, 60 wött. Upp- lýsíngar i s(ma 3970. Tilsöluerstofuskáparogstórt tölvuborð á hjólum, selst ódýrt. Upplýsingarísíma4516. 26 ára karl mann vantar atvinnu sem fyrst. Upplýsingar gefur Helgi í síma3723. Halló, slysavarnakonur! Nú byrjum víð aftur með jóla- föndrið laugardaginn 9. okt. millikl. 14-17.Mætumhressar, kaffi ákönnunni. Nefndin. Til sölu er Ford Sierra árg.’83, 5 dyra. Einnig til sölu 60 lítra fískabúr með öllu, verð kr. 10,000. Uppl. ís.4159e.kl. 19. Gardfnur í poka glevmdust á rannsóknarstofunni á FSÍ í júll f sumar. Eígandi hafi samb. í s. 4500, rannsóknarst., f. ki. 16. Reglusamt par með eitt barn óskar eftir 3ja herb. (búð til leigu á (safirði eða í Hnífsdal. Upplýsíngar í síma 4863. Til sölu er Subaru Justy 4x4, árg.’85, ný dekk, nýlegt lakk, þarfnast smá lagfæringar fyrir skoðun. Staðgr.verð kr. 120.000, 150.000 á skulda- bréfi. Uppl. í s. 7190. Til sölu er Amiga 500 tölva með minnisstækkun, ásamt aukadrif i, litaskjá og forritasafn I (leikjum). Upplýsingar í síma 4621 eftirkl. 17. Til sölu er Suzuki Swiftárg.’90, sjálfskiptur, ékinnrúml. 12.000 km, reyklausbíll. Bein salaeða ski pti á ‘85-’86 árg. af japanskri 4x4 skutbifreið. Uppl. í s. 4075. Sl. sumar töpuðust 2 lyklar á trélyklaspjaldi, liklega í efri bænum (Seljal./Urðarv.). Finn- andi vinsamlegast skili þeim á lögreglustöðína á Isafirði. Karlmannsúr tapaðist í mið- bænum í síðasta mánuði. Finnandi vínsamlegast hríngi í síma 4075. Til sölu eru 2 páfagaukar og 2 búr, áhöld geta fylgt kaupunum. Uppl. gefur Helga í síma 4075. Til sölu er nýr og ónotaður kvenleðurjakki úrversluninni Sautján. Upplýsingar I síma 4075. Er á götunni frá og með næstu mánaðamótum. Vantar þvl nauðsynlega 3-4 herb. íbúð. Uppl. gefur Anna Margrét í síma 4633 eða 3152. Til sölu er Electrolux frysti- skápur, vel með farinn. Upp- lýsingar (slma4633 eóa3152. Til sölu er grind úr Benz vöru- bifreið, með afturhásingu og palli. Upplýsingarísíma4210. Til sölu er B-20 Volvo vél og gírkassi. Einnig til sölu aihatsu Charade vél og gír- kassi árg.'87. Upplýsingar í síma 7636 e. kl. 19. Til sölu er Subaru E10 4WD árg.’86 með sætum fyrir 8 manns. Upplýsingar í síma 4180 e. kl. 19.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.