Bæjarins besta - 10.11.1993, Síða 9
BíJARINS BEI'A • Miðvikudagur 10. nóvember 1993
9
ísafjöröur:
Ysukrýli komið
á markaðinn
NÝR harðfiskur kom á markað fy rir tæpum þremur vikum
sem heitir Ýsukrýli. Hann er framleiddur af tveimur ungum
ísfirskum konum, þeim Friðgerði Omarsdóttur og Höllu
Björk Reynisdóttur. Ýsukrýlið er bitafiskur, þurrkaður í
heitu lofti innandyra en framleiðsluhúsnæðið er að
Hnífsdalsvegi 29.
„Eins og nafnið gefur til
kynna, er bara um ýsu aó ræða
og hana fáum við á fiskmarkað-
inum. Við handflökum ýsuna,
leggjum hana í pækil og frystum
á grindum, skerum hana síðan
frosna í bita og þurrkum hana
þannig í tvo sólarhringa. Eftir
að ýsan hefur staðið í þrjá til
fjóra daga er hún tilbúin og getur
farið í pökkun og sölu,” sagði
Friðgerður Omarsdóttir.
Aðspuróar um nafngiftina
segjast þær hafa farið í „hugar-
flug” og endað á nafninu Ýsu-
krýli þar sem aðeins er um
undirmálsfisk að ræða.
„Hugmyndin fæddist í júní í
sumar og var í þróun fram undir
september þegar prufur hófust.
Ýsukrýlin komu fyrst í sjopp-
umar fyrir um hálfum mánuði
og salan virðist hafa gengið
ágætlega. Við teljum vera góðan
rnarkað fyrir harðfiskinn og
erum því bjartsýnar á fram-
tíðina.” sagði Friðgerður.
-hþ.
ísafjöröur:
Paul Weeden með
djass- og blúsnámskeið
í DAG hófst fiinm daga námskeið bandaríska djass- og
blúsleikarans Pauls Weedens. Um er að ræða þriðja nám-
skeiðið hans á jafnmörgum árum á vegum Tónlistarskólans
á Isafirði sem byggjast á hópkennslu en þátttakendur geta
fengið einkatíma, sé þess óskað.
Þó að Paul Weeden hafi sér-
hæft sig í gítarleik, kennirhann
áöllhelstu strengja-ogblásturs-
hljóðfærin, píanó og trommur,
auk þess sem hann er með söng-
kennslu. Þátttaka ætti að vera
flestum möguleg þar sem
kennsla fer fram jafnt á daginn
sem á kvöldin, allt eftir því
hvemig nemendum hentar.
Aðgangur er öllum heimill og
hvetur skólinn sem flesta til
ísafjörður:
Tveir minni hátlnr árekslrar
TVEIR minni háttar árekstrar urðu á ísafirði i síðastliðinni
viku. Engin slys urðu á fólki og litlar skemmdir urðu á bílunum.
Fyrri áreksturinn varð á homi Sólgötu og Fjarðarstrætis kl. 15.30
á föstudaginn. Vegna eðlis málsins óskuóu hlutaðeigandi aðilar
aðstoðar lögreglu við skýrslugerðina.
Hinn síðari var að kvöldi sunnudags, þá lentu tveir bílar saman á
homi Hafnarstrætis og Skutulsfjarðarbrautar og var óhappið afgreitt
með tjónstilkynningu þar sem aðilar vom sammála um málsatvik.
-hþ.
ARNAR G. HINRIKSSON
Silfurtorgi 1 • ísafirði • Sími 4144
Góuholt 4: Glæsilegt 140 m2
einbýlishús ásamt bílskúr.
Urðarvegur45: Rúmlega 100
m2 4ra herb. íbúð á etri hæð í
tvíbýlishúsi ásamt bílskúr.
íbúðin er laus.
Mánagata 6, 2. hæð: 135 m2
sérhæð.
Sundstræti 24: Onnur hæð.
Rúmlega 120 m2 sérhæð. 3
svefnherbergi. Bílskúr fylgir.
Strandgata 7: Nýuppgert,
tvílyft einbýlishús úr timbri.
Hjallavegur 1: Einbýlishús,
íbúðarhæðin er 120 m2. Bílskúr
og geymsla eru um 60 m2.
Húsið er laust í haust.
Pólqata 4: 5 herbergja íbúö á
з. hæð.
Bakkavegur 23: Einbýlishús,
и. þ.b. 160 m2 ásamt bílskúr.
Aðalstræti 22b: 3ja-4ra herb.
íbúðir á 2. og 3ju hæð._____
FASTEIGNAVIÐSKIPTI
Lyngholt 2: 140 m2 einbýlis-
hús ásamt bílskúr. Laust eftir
samkomulagi.
Aðalstræti 20: 3ja herb. íbúð
á 2. hæð, u.þ.b. 95 m2.
Mjallargata 6: Norðurendi.4ra
herb. íbúð ásamt tvöföldum
bílskúr.
Fitjateigur 4: U.þ.b. 151 m2
einbýlishús á einni hæð ásamt
bílskúr.
Súðavík____________________
Aðalgata 60: Lítiðeinbýlishús.
Bolungarvík_______________
Hlíðarstræti 24: Tvílyft ein-
býlishús, 2 x75 m2.
Hólastígur 5: Rúmlega fok-
helt raðhús. Selst á góðum
kjörum.
Hlíðarstræti 21: Gamalt ein-
býlishús, 80 m2.
T raðarland 24: T vílyft einbýlis-
hús, u.þ.b. 200 m2 með bílsk.
þátttöku og er ekki of seint að
skrá sig þó námskeiðið hafi
byrjað í dag.
Þess skal getið að kennslu-
tímarnir eru „opnir”, sem
merkir að almenningur getur
fengið að sitja hjá og fylgjast
með, sem hefur þótt vinsælt á
síðustu námskeiðum.
Námskeiðið mun enda á
sunnudaginn með nokkurs
konar tónleikaskemmtun nem-
endanna á sal Framhaldsskóla
Vestfjarða.og verður nánar
auglýst síðar. Aðgangur verður
ókeypis en í hléinu verða seldar
kaffiveitingar og rennur ágóði
þeirra í húsbyggingarsjóð Tón-
listarskólans. ,,
Veggtennis:
Alberl
sigroði
STÚDÍÓ Dan ogFlugleiðir
efndu til veggtennismótsí for-
gjafarformi síðastliðinn
laugardag en um var að ræða
fyrsta mót svokallaðs vegg-
tennistímabiis sem stendur í
allan vetur.
Alls tóku tíu keppendur þátt
og var keppt í tveimur riðlum,
A og B. IA riðli sigraði Albert
Guðmundsson og fékk hann að
launúm frítt flugfar á vegum
Flugleiða til Reykjavíkur, báðar
leiðir. I öðm sæti var Kristinn
Amarsson og fékk hann tíu tíma
í ljósabekkjum Stúdíó Dan að
launum.
Heimir Snorrason var hlut-
skarpastur í B rióli og fékk
hann tíu fría veggtennistíma í
verðlaun. I ööm sæti var Om
Ingólfsson og fékk hann finmi
tíma í ljósabekkjum Stúdíó Dan.
-hþ.
Friðgerður og Halla, Ýsukrýlisframleiðendur, í frystiklefanum með stafla af verðandi
Ýsukrýlum í kringum sig.
Opnunartími
Virka daga ki 7:00-8:30 og 17:00-21:30
Laugardaga kt. 10:00-16:00
Sunnudaga ki. 10:00-14:00
Ath.! Á virkum dögum k/. 18:30-20:00 er aðeins ein braut opin
ásamf böðum, heitum potti og sánabaði.
Opið fyrirkarlmenn mánudaga. þriðjudaga. miðvikudaga, föstudaga
og iaugardaga. Opið fyrir konur fimmtudaga og sunnudaga.
Verðskrá
Fuiiorðnir 1 miði...kr. 145,-
10 miðar—kr. 1.200,-
30 miðar...... kr. 2.800,-
Börn 1 miði.........kr. 70,-
10 miðar—kr. 500,-
Leiga á sundfatnaði— kr. 120,-
Leiga á handktœðum.. kr. 120,-
Ath.! Sána og heitur pottur er innifaiið í sundmíða.
Ekki er se/t inn há/ftima fyrir /okun.
ísfirðingar. Sund er hoi/ og góð hreyfing fyrir a//a.
SundhöHin ísafirði.
Framhaldsaðalfundm
Verslunannenn á ísafirði.
Framhaldsaðalfundur Verslunarmannafélags ísafjarðar
verður haldinn á Hótel ísafirði fimmtudaginn 11. nóvem-
ber kl. 21:00. Stjórnin.