Bæjarins besta


Bæjarins besta - 16.03.1994, Blaðsíða 12

Bæjarins besta - 16.03.1994, Blaðsíða 12
12 BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 16. mars 1994 SIÐAKT Handbolti: 26. mars nk„ hefur verið tókst að útvega gestaiið- unum gistingu í bænum. vera inum handbolti á kvarða frarið fyrir iítið. Stjórn Boltafélags: ísa- fjarðar vann hörðum höndum að því í siðasta mánuði að koma á tot stórmótí í íþrötta- húsinu á Torfnesi: í lok nuin aðarins. þar sem fjögur 1. deildar lið húgðust taka þátt. Félðgin sém ætluðu að keppa voru Valur, Haukar, Selfoss ..Að gistirýminu undan- skiklu var þvíekkert til fyrir- stöðu að halda mótið, við höfðum fengið ölí tilskilin leyf'i og forsvarsmenn fþróttahússins höfðu hiiðrað til fþróttatímum hússins tii að af mótinu gætí orðið. Svo kom þaft í ljós þegar stað- festaátti pöntun gistirýmisins á Hótel Isafirði að allt var orðið upppantað. Pað er ekki um neina aðra gistingu að jræða. Við erum vissulega vonsviknir, en ég tek það skýrt fram að ekkert ósætti ríkir milli hótelsins og íþróttahreyílngarinnar þó að málin hafi æxlast svona í þettasinn,“ ságði lakoh Óla- Að sögn Jakobs kom fað- einsþessieinaheigi til grcina. því hun er í miðju tíu daga hiéi milií deildarkeppninnar og úrsiitakeppninnar. Skíöi: Alþjóðlegt svigmót á SeQatandsdal í apríl SKÍÐAFÉLAG ísafjarðar mun sjá um framkvæmd á al- þjóðlegu svigmóti sem fram fer á Seljalandsdal dagana 12. og 13. apríl næstkomandi. Mótið er á mótaskrá alþjóða skíða- sambandsins (FIS) og er þetta í þriðja skipti sem hluti mótsins er haldinn á Isafirði. Mótið er í mótarunu sem hefst í Reykjavík 9. apríl en þar verður keppt í tveimur svigum. Síðan heldur hópurinn til ísa- fjarðar en hér verður einnig keppt í tveimur svigum. Mót- unum lýkur síðan á Akureyri en þar verður keppt í stórsvigi, dagana 15. og 16. apríl. Á síðasta ári tóku 82 keppendur þátt í mótunum og þar af voru 42 þeirra erlendir. Gert er ráð fyrir svipuðum þátttökufjölda í ár en endanleg tala þátttakenda mun ekki liggja fyrir fyrr en daginn fyrir fyrsta mótið. Á vegum Skíðafélags ísa- fjarðar starfar sama mótanefnd að undirbúningi FlS-mótanna og undanfarin ár en hana skipa þeir Bergmann Ólafsson, Eyj- ólfur Bjamason, Geir Sigurðs- son, Gylfi Guðmundsson og Jóhann Torfason. Vasagangan í Svíþjóð: Getum vel hug okkur að kepp ÞANN 6. mars síðastliðinn fór hin árlega Vasaganga í Svíþjóð fram í sjötugasta sinn. Margir Islendingar tóku þátt, þar af tíu ísfirðingar, en alls voru þátttakendur róm- lega 14.000 sem er þátttökumet. Þessi 90 kílómetra langa gönguskíðakeppni er haldin í minningu Gustavs Vasa og er gengin frá bænum Selen til Mora. Þessa sömu leið, að vísu öfuga, gekk Gustav Vasa fyrir margt löngu og flutti þá boð um stríð og hefur gangan verið kennd við hann síðan. BB fékk einn keppendanna, hinn næstum 64ra ára gamla Gunnar Pétursson, í spjali við heimkomuna og spurði hann fregna ór ferðinni. „Hópurinn hittist snemma í haust og hóf æfingar um leið og snjóalög leyfðu. en að auki æfði hver í sínu horni. Þátttökuhug- myndin varð að alvöru síðast- liðið sumar og þá vorum við sautján en margir heltust úr lestinni af ýmsum sökum. Annars hefur undirbúningurinn gengið vel og flestir okkar eru í sínu bestaformi, til dæmis erum við Isfirðingamir sem einnig kepptum í síðustu Vasagöngu fyrir tíu árum, líkamlega betur á okkur komnir nú en þá,“ sagði Gunnar sem keppti nú í þriðja sinn, en fyrst gekk hann Vasa- gönguna árið 1952. Garparnir hafa stundað gönguskíðaíþróttina í áratugi og hafa iðulega látið hana hafa for- Snæfplllngar sækja Isflrðinga heim á helglnní - Jonathan Bow leikur með KFÍ NÆSTKOMANDI laugardag fer fram í íþróttahúsinu á Torfnesi, vináttuleikur á milli Snæfells, sem leikur í úrvals- deildinni og Körfuknattleiksfélags Isfirðinga sem leikur í 2. deild. Leikurinn sem hefst kl. 15 er hluti af undirbúningi KFI fyrir úrslitakeppni 2. deildar sem hefst í endaðan apríl. 1 leiknum á laugardag mun Jonathan Bow, sem síðast lék með Keflavíkur- liðinu, leika með Isfirðingum og verður án efa um skemmtilegan leik að ræða. Leikurinn á laugardag er í boði Bakarans á Isafirði og Samsölubakaríanna í Reykjavík. _s gang umfram allt annað. Og það virðist sem þessum hörku- tólum séu engin takmörk sett. og lýsandi dæmi þess er að aldursforseti hópsins, Sigurður Jónsson (Búbbi prentari) sem verður 75 ára á þessu ári, fór létt með níutíu kílómetrana. „Vasagangan fer alltaf fram fyrsta sunnudag mars mánaðar og í ár hófst hún klukkan átta. I þetta sinn var veðrið alveg skínandi gott en sama var ekki hægt að segja um færið; þarna skiptust á þrjár ólíkar aðstæður, svell, sólbráð og þurr snjór á skuggsælum stöðum. Og til að gera illt verra, var brautin víða óslétt og hnökrótt. Það reyndist því mörgum erfitt að standa hana, sérstaklega þeint sem ekki höfðu báða fætur í fullkomnu lagi. Menn fóru því bara var- lega. En veðurblíðan bjargaði miklu. það var nánast stafalogn, lofthitinn var þægilegur og við fundum aldrei fyrir kulda á leiðinni. Flestir Islendinganna sem keppt höfðu fyrr í Vasagöng- unni, voru töluvert lengur á leiðinni en áður. Við gengum leiðina á sjö til níu klukkutímum en sigurvegarinn, Svíinn Janne Ottoson, fór hana á rúmum fjórum klukkutímum. Aðstaðan og skipulagið var með eindæmum og til mikillar fyrirntyndar. Það er ótrúlegt að allt umstangið íkringum keppn- ina skyldi ganga svona vel upp. Til dæmis var farangri kepp- endanna, hátt í 20.000 bak- pokum og töskum, ekið í fjöru- tíu flutningabílum að markinu og allt dótið komst til réttra eigenda. I Malung, föstudaginnfyrir keppni. F.v.: Guðmundur Agnarsson sem var aðstoðarmaður og fararstjóri Isfirðinganna, Sigurgeir Svavarsson frá Olafsfirði, Daníel Jakobsson, Gunnar Pétursson, Stefán Jónasson frá Akureyri. Björn Þór Ólafsson frá Ólafsfirði, Óli M. Lúðvíksson, Árni Freyr Elíasson (Sveinssonar), Rúnar Sigmundsson frá Akureyri, Elías Sveinsson, Árni Aðalbjarnarson, Sigurður Jónsson, Sigurður Gunnarsson (Péturssonar), Halldór Margeirsson, Konráð Eggertsson, Hjálmar Jóelsson frá Egils- stöðum og Kristján Rafn Guðmundsson. Keppendur voru fjórtán þús- und, þar af hættu fimmtán hundruð keppni, og ísfirð- ingarnir voru á bilinu fimm til átta þúsundasta sæti. Daníel var fremstur af íslendingunum og hafnaði í 89. sæti og Sigurgeir Svavarsson frá Ólafsfirði varð í 160. sæti, níu mínútum á eftir Daníel. Þeirnáðusemsagt besta árangrinum af íslendingunum. Margir þeirra sein ekki höfðu keppt áður, voru kvíðnir fyrir keppnina en að henni lokinni voru allir sammála um að enginn þeirra hefði viijað niissa af henni. Að taka þátt í Vasa- göngunni er hverju skíðamanni mikil upplifun, hún er fræg manndómsraun þeirra Svía og er stundum nefnd „pílagríms- ferðin“. Segja tná að þrátt fyrir leið- indafæri, hafi íslendingarnir verið heppnir í keppninni, því enginn þeirra varð fyrir óhappi eða slysi, öfugt við marga kollega þeirra sem brutu skíða- stafi og jafnvel skíðin líka í öllum látunum. - Heldurðu að þið munið taka einhvern tímann þátt aftur? „Ég get vel ímyndað mér það, já. Sumir höfðu reyndar orð á þvíeftiraðmarklínunni varnáð að svona nokkuð myndu þeir aldrei gera aftur. En daginn eftir hafði hljóðið í mönnum breyst á annan veg. Ég hef samt ekki trú á því að við tökum þátt í næstu keppni, líklegar verður úr því eftir þrjú til fimm ár. Og ef ég þekki mannskapinn rétt, mun sami hópur halda utan næst.“ -hþ. A góðri stundu í rútunni til Malung. Búbbi prentari og Gunnar á póstbílnum.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.